Fjarðarfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 2
2 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016
Útgefandi: Hönnunarhúsið ehf. kt. 450106-1350
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, Auglýsingar: 565 3066,
fjardarfrettir@fjardarfrettir.is
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 2298-8858 Vefútgáfa: ISSN 2298-8866
www.fjardarfrettir.is
www.facebook.com/fjardarfrettir.is
Hönnunarhúsið ehf., Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Jólin eru hátíð okkar allra.
Þrátt fyrir allar deilur um trú og
kirkjur höfum við öll – næstum
öll getað verið sammála um að
halda jól friðar og kærleika. Þrátt
fyrir öll skrif um annað byggjum við líf okkar á
kærleika. Allt frá því að við fæðumst erum við
umvafin kærleika. Við getum átt misjafna ævi en
kærleikurinn er það sem heldur okkur saman sem
fjölskyldu, vinum og þjóð.
Ég hef aldrei beðið neinn að trúa á Guð eða
aðhyllast kristna trú, hvað þá ganga í Fríkirkju
söfnuðinn þó ég hafi verið í fríkirkju alla mína ævi.
Ég bið þó eins; að við sem aðhyllumst trú – hverja
trú sem er – fáum að halda trú okkar í friði. Ég bið
þess eins að fólk reyni ekki að sverta trú okkar,
reyni að hindra aðgengi okkar eða fjölskyldna
okkar að kirkjum. Ég hef aldrei tekið skaða af að
kynnast trúarbrögðum annarra, hvað þá að heim
sækja kirkjur. Vil ég fullyrða það að trúlaus maður
getur ekki tekið skaða af að heimsækja kirkjur. Ég
virði þá skoðun fólks að hafa aðra trú en ég og
einnig trúleysi fólks. Að virða trúleysi fólks er ekki
sama og að hætta að heimsækja kirkjur, hvort sem
það er eðlilegur þáttur í fræðslustarfsemi skóla eða
hluti af undirbúningi jólanna.
Þó kærleikurinn sé einn af hornsteinum kristinnar
trúar þá er það líka besti mannkostur hvers og eins,
trúaðs manns og trúleysingjans.
Kæri lesandi! Um leið og ég óska þér gleðiríkrar
jólahátíðar og ánægjulegra áramóta vil ég nota
tæki færið og þakka fyrir ánægjulegt samstarf á
ár inu sem er að líða. Án lesenda væri bæjarblað
lítils virði og ég er mjög þakklátur fyrir þær góðu
móttökur sem hið nýja blað, Fjarðarfréttir, hefur
hlotið, bæði hjá lesendum og hjá auglýsendum.
Frjálst bæjarblað er mikilvægt í hverju sveitarfélagi,
blað sem getur verið málpípa bæjarbúa og um leið
að bera hróður bæjarins hátt og að horfa gagnrýnum
augum á stjórnun bæjarfélagsins. Ég vænti góðs
samstarfs við þig og aðra lesendur á nýju ári og
hvet bæjarbúa til að láta skoðanir sýnar í ljós.
Gleðileg jól!
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565-9775
Frímann
s: 897 2468
Hálfdán
s: 898-5765
Ólöf
s: 898 3075
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNAFJARÐAR
FRÍMANN & HÁLFDÁN
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Aðfangadagur, 24. desember
Aftansöngur kl. 18
Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn
Matthíasar V. Baldurssonar.
Einsöngvarar eru Áslaug Fjóla Magnúsdóttir,
Kolbrún Árnadóttir og Ólöf Inger
Kjartansdóttir.
Prestur er sr. Kjartan Jónsson.
Jóladagur, 25. desember
Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14
Annar í jólum, 26. desember
Skokkmessa kl. 10
Allir hlauparar velkomnir.
Kirkjuhlaupið í beinu framhaldi.
www.astjarnarkirkja.is
Aðfangadagur 24. desember:
Aftansöngur kl. 18
Kór Fríkirkjunnar leiðir sönginn.
Einsöngur Kirstín Erna Blöndal.
Jólasöngvar á jólanótt kl. 23.30
Sönghópur Fríkirkjunnar
leiðir fallega söngdagskrá.
Jóladagur 25. desember:
Hátíðar- og fjölskyldu-
guðþjónusta kl. 13
Kór og hljómsveit Fríkirkjunnar leiðir
sönginn ásamt Krílakór og barnakór.
Agnes Björk Rúnarsdóttir spilar á horn og
syngur, mæðgurnar Inga Dóra Hrólfsdóttir og
Arna Guðlaug Axelsdóttir spila á flautu.
Rósa Guðbjörg Guðmundsdóttir syngur.
Gamlársdagur 31. desember:
Aftansöngur kl. 18
Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir
sönginn. Tónlistarstjóri við allar athafnir
er Örn Arnarson. Orgel: Skarphéðinn Þór
Hjartarson. Bassi: Guðmundur Pálsson.
www.vidistadakirkja.is
Víðistaðakirkja
Aðfangadagur, 24. desember
Aftansöngur kl. 17
Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn
Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Einsöngur: Egill Árni Pálsson tenór.
Saxófónleikur:
Vigdís Klara Aradóttir og Guido Bäumer.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson
Miðnæturmessa kl. 23.30
Kór Flensborgarskólans og
Flensborgarkórinn syngja undir stjórn
Hrafnhildar Blomsterberg.
Prestur: Sr. Hulda Hrönn Helgadóttir.
Jóladagur, 25. desember
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14
Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn
Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Einsöngur: Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópran.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson.
Gamlársdagur 31. desember
Helgistund kl. 17
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar
Guðmundsdóttur.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson.
Sóknarprestur og starfsfólk
Víðistaðakirkju óska íbúum
Víðistaðasóknar og Hafnfirðingum öllum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári!