Fjarðarfréttir - 22.12.2016, Síða 4

Fjarðarfréttir - 22.12.2016, Síða 4
4 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016 Senn koma jólin og líf okkar snýst um þessar mundir að miklu leyti um að undirbúa þau. Engin hátíð fær jafnmikla athygli og þau og engin hátíð vekur jafnmiklar tilfinningar með okkur, bæði góðar en einnig erfiðar hjá sumum. Aldrei er talað eins mikið um kærleika og hve mikilvægt er að hjálpa þeim sem eru hjálparþurfi en á aðventunni. Oft hefur verið bent á að ýmsar birtingarmyndir fátæktar séu afleiðingar af ófullkomu þjóðfélags­ kerfi þar sem sumir ná að efnast vel en aðrir viðhaldast í fátækt. Flóttamenn hafa verið mikið í fréttum síðustu vikur og mánuði og margir þeirra búa við mjög erfiðar aðstæður. Gott er að minnast þess að frelsarinn var sjálfur flóttamaður í æsku. Flóttamenn eru fólk með vonir og drauma eins og við. Francis, páfi kaþólsku kirkjunnar, hefur gert málefni flóttamanna og fólks sem flytur á milli landa að áhersluatriði í stefnu sinni því að þetta fólk er oft í mjög viðkvæmri stöðu og auðvelt er að misnota það á ýmsan hátt. Hann hefur talað gegn því sem hann kallar þægindamenningu sem gerir okkur tilfinningalaus gagnvart þjáningu annarra og heldur því fram að við höfum alþjóðavætt skeytingaleysi. Við þurfum að biðja um náð, segir hann, til að geta grátið skeytingarleysi okkar og grimmdina í heiminum, sem er í okkur sjálfum og þeim sem taka nafnlausar ákvarðanir sem geta af sér þjáningar fólks. Jólin eru hátíð kærleika og friðar. Þau standa fyrir þann kost að við getum valið veg kærleika, umhyggju og virðingar fyrir náunganum í stað þess sem veldur honum skaða. Guð vill gera okkur að höndum sínum og fótum til að gera þetta að veruleika í einkalífi okkar og á öllum sviðum þjóðfélagsins. Megi boðskapur jól­ anna glæða kærleikslogann í hjörtum okkar. Ég enda þessa þanka mína á hluta af aðventuljóði eftir Hákon Aðalsteinsson: Brátt nálgast sú helgasta hátíð í bæ með heilögu ljósunum björtum. Andi Guðs leggst yfir lönd yfir sæ og leitar að friði í hjörtum. … Þó vill hann oft gleymast, sem farveg oss fann fæddur í jötunnar beði. Við týnum úr hjartanu trúnni á hann og tilefni jólanna gleði. Vökvaðu kærleikans viðkvæmu rós þá veitist þér andlegur styrkur. Kveiktu svo örlítið aðventuljós, þá eyðist þitt skammdegismyrkur. Það ljós hefur tindrað aldir og ár yljað um dali og voga. Þó kertið sé lítið og kveikurinn smár mun kærleikur fylgja þeim loga. Láttu svo kertið þitt lýsa um geim loga í sérhverjum glugga. Þá getur þú búið til bjartari heim og bægt frá þér vonleysisskugga. Sr. Kjartan Jónsson Sr. Kjartan Jónsson, sóknarprestur í Ástjarnarkirkju: Jólahugvekja Skötuveisla á Ásvöllum Hin árlega skötuveisla Hauka verður á Ásvöllum á Þorláksmessu. Kæst skata og saltfiskur frá kl. 12. Borðapantanir í síma 525 8700 og á bhg@haukar.is Ban Kúnn Thai Restaurant Opnunartími um jól og áramót 24. desember, aðfangadagur jóla Lokað 25. desember, jóladagur Lokað 26. desember, annar dagur jóla Opið kl. 17-21 27.-30. desember Opið kl. 11-21 31. desember, gamlársdagur Lokað 1. janúar 2017, nýársdagur Lokað Tjarnarvöllum 15, Hafnarfirði Opið virka daga kl. 11-21 og um helgar kl. 17-21 Hafnfirsku sundmennirnir Anton Sveinn McKee og Hrafnhildur Lúthers­ dóttir hafa verið útnefndir sundmaður ársins 2016 og sundkona ársins 2016 af Sundsambandi Íslands. Anton Sveinn McKee er 23 ára sundmaður í Sundfélaginu Ægi. Hann stundar nú nám í Ala bama í Banda ríkj­ unum og er á styrk þar vegna sundiðk ­ unar. Hann hefur á undanförn um ár um náð mjög góðum árangri í bringu sundi. Anton Sveinn stóð sig best allra íslenskra karla í sundi á árinu 2016. Hann er sem stendur númer 46 á heimslista í 200 m bringu sundi og númer 75 í 100 m bringusundi í löngu brautinni. Anton Sveinn er afskaplega metnað­ ar full ur gagnvart sinni íþrótt og hefur náð miklum þroska undanfarin ár. Hann hefur náð miklum framförum í íþrótt sinni og hefur alla burði til að ná enn lengra. Hann er fyrirmynd í keppni og ástundun hans er í alla staði til fyrir­ myndar. Hrafnhildur Lúthersdóttir er 25 ára sund kona í Sundfélagi Hafnarfjarðar. Hrafnhildur og er sem stendur í 10. sæti á heims lista í 200 metra bringusundi í löngu brautinni og í því 11. á sama lista í 100 metra bringusundi. Árangur Hrafnhildar árið 2016 er besti árangur íslenskra kvenna í sundi og ef litið er til árangurs Íslendinga á þessum þremur stórmótum, EM50, ÓL og HM25 þá er hann með þeim betri í sundsögu Íslands og þar á Hrafnhildur verulegan hlut að máli. Hrafnhildur er nú flutt til Íslands á ný og æfir undir handleiðslu Klaus Jürgen Ohk. Hún er jákvæð, kappsöm og mjög einbeitt þegar kemur að íþróttinni. Hún hefur á undanförnum árum þroskast mjög mikið sem afreksíþróttakona, setur sér skýr markmið og fylgir þeim eftir. Anton Sveinn og Hrafnhildur sundfólk ársins

x

Fjarðarfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.