Fjarðarfréttir - 22.12.2016, Qupperneq 14

Fjarðarfréttir - 22.12.2016, Qupperneq 14
14 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016 1. janúar sl. voru íbúar Hafnarfjarðar 28.189 talsins og þar af voru 2.851 einstaklingar eldri en 67 ára. Fjölgun aldraðra eykst hratt ár frá ári og þarf að meta þjónustu við aldraða í því ljósi. Þetta kemur fram í áfangaskýrslu um málefni eldri borgara í Hafnarfirði. Frá árinu 2013 hefur hlutfall íbúa 67 ára og eldri aukist úr 8,99% í 10,11% árið 2016. Gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu hjá Hafnafjarðarbæ var síðast tekin til endurskoðunar og samþykkt í bæjar­ stjórn 9. desember 2015 og tók hún gildi 1. janúar 2016. Skv. henni er greitt fyrir félagslega heimaþjónustu á vegum Hafnar fjarðar­ bæjar 750 kr. á klukkustund. Elli­ og örorkulífeyrisþegar greiði 570 kr. á klukkustund. Undanþegnir gjaldskyldu vegna félagslegrar heimaþjónustu skulu þeir sem ekki hafa aðrar tekjur en ellilífeyri/ örorkulífeyri og óskerta tekjutryggingu. Þá er fjölskylduráði heimilt að gefa eftir hluta greiðslu fyrir veitta félags­ þjónustu eða fella alveg niður. Skal þá tekið tillit til efnahags og annarra aðstæðna. EKKI TEKJUTENGD GJALDSKRÁ Þegar gjaldskrá er borin saman við nokkur önnur sveitarfélög kemur í ljós að gjaldskráin er tekjutengd í Kópavogi en þeir sem hafa yfir 292.647 kr. á mánuði greiða hærra en í Hafnarfirði en fólk með undir 202.726 kr. greiða þar ekkert. Í Reykjavík er gjaldið 1.150 kr. á klst. Undanþegnir gjaldskyldu vegna félagslegrar heimaþjónustu eru þeir sem ekki hafa aðrar tekjur en ellilífeyri/ örorkulífeyri og óskerta tekjutryggingu. Gjaldskrár eru mjög mismunandi og samanburður nokkuð erfiður en það er mat skýrsluhöfunda að ekki sé þörf á að tekjutengja gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu, frekar en aðra þjónustu sem Hafnarfjarðarbær veitir. Gjaldskrá Hafnarfjarðarbæjar um félagslega heimaþjónustu er mun lægri en hjá öðrum sveitarfélögum. BIÐLISTAR Mikil aukning hefur verið í umsókn­ um um heimaþjónustu á árinu 2016 og biðlistar myndast bæði eftir þjónustunni og einnig vegna þjónustumats. Í desember 2016 hefur tekist að eyða biðlistum um þjónustumat auk þess sem tryggt hefur verið að einstaklingar fái heimaþjónustu fyrir jólin. Á nýju ári mun Hafnarfjarðarbæ nýta sér þjónustu frá ISS, sem mun væntanlega fyrir­ byggja biðlista. FÉLAGSSTARF ALDRAÐRA Aðsókn í félagsstarf í Hafnarfirði er að aukast og óskir eru frá eldri borgurum um fjölbreyttara starf. Til þess að það geti orðið að veruleika ermikilvægt að auka við stöðugildi en í Hraunseli eru 2,5 stg., á Hjallabraut eru 0,7 stg. og á Höfn eru 0,2 stg. Fyrir utan ofangreinda staði er sundleikfimi í boði í Ásvallalaug, ganga í húsakynnum FH og leikfimi í Bjarkarhúsinu. Í dag fer félagsstarfið að mestu leyti fram í Norðurbænum og þörf á að huga að því aðefla félagsstarfið með því að opna starfsemi nær Völlunum, Holti eða Áslandi. Samkvæmt Hagstofu Íslands eru tæp 20% eða 556 einstaklingar (67 ára og eldri) skráðir með lögheimili í póstnúmeri 221. Félagsstarf í mið­ bænum er einnig ákjósanlegur kostur. ÓLGA VEGNA MATAR Í byrjun árs gerði Hafnarfjarðarbær samning við ISS. Mikil óánægja varð meðal matargesta og hefur sú óánægja verið nokkuð viðvarandi það sem af eru þessu ári. Í mötuneytinu á Hjallabraut 33 má greina fækkun matargesta en mun minni á Sólvangsvegi. Því miður eru ekki fyrirliggjandi tölur til að sýna fram á þessar breytingar. Í nóvember sl. var reynt að koma til móts við ítrekaða beiðni matargesta um sjálfsskömmtun í mötuneytum bæjarins. Nær samdægurs var hætt við þá nýbreytni vegna mikillar óánægju. Að mati starfsmanna í mötuneyti bæjarins virðast matargestir nú vera almennt sáttir og kvörtunum hefur fækkað. 18% fjölgun 67 ára og eldri á 3 árum Fjölgar sem hlutfall af fjölda bæjarbúa 1 Áfangaskýrsla um málefni eldri borgara í Hafnarfirði Lögð fyrir Fjölskylduráð Hafnarfjarðar þann 16. desember 2016 Fjöldi eldri íbúa (67 ára og eldri) í Hafnarfirði Þann 1. janúar 2016 var íbúafjöldi í Hafnarfirði 28.189 einstaklingar og þar af voru 2.851 einstaklingar eldri en 67 ára. Fjölgun aldraðra eykst því hratt ár frá ári og þarf að meta þjónustu við aldraða í því ljósi. Frá árinu 2013 hefur íbúafjöldi einstaklinga (67 ára og eldri) aukist frá 8,99% í 10,11% árið 2016. Gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu Félagsleg heimaþjónusta er veitt á grundvelli 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og 25. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999. Gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu hjá Hafnafjarðarbæ var síðast tekin endurskoðunar og samþykkt í bæjarstjórn þann 9. desember 2015. Gjaldskráin gilti frá 1. janúar 2016. Gjaldskráin er eftirfarandi: 1. Fyrir fél gslega heimaþjónustu á vegum Hafnarfjarðarbæjar sk l greiða gjald, sem nemur 750 kr. á klukkustund. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiði gjald sem nemur kr. 570 kr. á klukkustund. 2. Undanþegnir gjaldskyldu vegna félagslegrar heimaþjónustu skulu þeir sem ekki hafa aðrar tekjur en ellilífeyri/örorkulífeyri og óskerta tekjutryggingu. 3. Fjölskylduráði er heimilt að gefa eftir hluta greiðslu fyrir veitta félagsþjónustu eða fella alveg niður. Skal þá tekið tillit til efnahags og annarra aðstæðna. 2409 2521 2661 2851 2100 2200 2300 2400 2500 2600 2700 2800 2900 2013 2014 2015 2016 Fjöldi hafnfirðinga 67 ára og eldri Fjöldi Hafnfirðinga, 67 ára og eldri 2013 - 2016 miðað við 1. janúar. Frá Hraunseli þar sem félagsstarf Félags eldri borgara í Hafnarfirði fer að mestu fram. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Vill vottun sem barnvænt samfélag Hafnarfjarðarbær ætlar að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna inn í allt sitt starf og reglur Akureyrabær stendur í innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna sem tilraunasveitarfélag og Hafnar­ fjarðarbær ætlar að fylgja vinabæ sínum strax á eftir og læra af reynslu þeirra fyrir norðan og verða fyrir­ myndar sveitarfélag þegar kemur að réttindum barna. Fulltrúar Samfylkingarinnar lögðu til að Hafnarfjarðarbær óski eftir, í sam­ starfi við Akureyrabæ og UNICEF, að fá vottun sem barnvænt samfélag með innleiðingu Barnasáttmála Sam einuðu þjóðanna í allt sitt starf, sam þykktir og stefnur. Var tillagan samþykkt á bæjar­ stjórnarfundi 7. desember sl. „Að sveitarfélag innleiði Barna­ sáttmálann þýðir að það samþykki að nota sáttmálann sem viðmið í starfi sínu og að forsendur hans gangi sem rauður þráður í gegnum þjónustu þess. Líkja má innleiðingunni við að starfsmenn og kjörnir fulltrúar sveitarfélagsins setji upp „barnaréttindagleraugu“ og rýni og skoði verk­ og ákvarðanaferla með hlið sjón af sáttmálanum. Barna­ sáttmálinn er þannig nýttur sem gæða­ stjórnunarverkfæri í stefnumótun og þjónustu með tilliti til barna. Ferlið við að gerast barnvænt sveitarfélag krefst pólitískrar skuldbindingar, sem er grundvöllurinn fyrir innleiðingu Barna­ sáttmálans í sveitarfélaginu, ásamt sam­ ræmdum aðgerðum þvert á öll svið sveitarfélagsins.“ Þetta segir á heima­ síðu Akureyrarbæjar um inn leiðingu verk efnisins þar. Nánari upplýsingar má finna á www. barnvaensveitarfelog.is

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.