Fjarðarfréttir - 22.12.2016, Page 20

Fjarðarfréttir - 22.12.2016, Page 20
20 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016 Hvað heita húsin í bænum? Raðaðu saman nöfnum og myndum af gömlum húsum í Hafnarfirði NAFN NAFN NAFN NAFN NAFN NAFN Hafnarfjörður var í landnámi Ásbjarnar Özurarsonar, bróðursonar Ingólfs Arnarsonar ef marka má Landnámu. Þar segir að Ásbjörn hafi numið land milli Hraunholtslækjar [nú í Garðabæ] og Hvassahrauns, allt Álftanes og bjó á Skúlastöðu. Enginn veit hvar sú jörð var en getgátur hafa verið uppi um að það sé þar sem Garðar á Álftanesi eru nú. Lítið er vitað um lífið í Hafnarfirði fram til upphafs 15. aldar er skreið varð eftirsóttasta útflutningsvara Íslands. Þá hófu Englendingar siglingar hingað og verslun og þar á eftir Hansakaupmenn. Í einokunarversluninni 1602­1787 var Hafnarfjörður einn helsti verslunar­ staðurinn á Íslandi. Árið 1736 lagði Hans Becker lögmaður til að stofnaðir yrðu 5 kaupstaðir á landin, í Hafnarfirði, á Grundarfirði, Ísafirði, Akureyri og Reyðarfirði. Hafnarfjörður skyldi verða höfuðstaður landsins. Úr því varð ekki ekki síst vegna mótmæla Skúla Magn­ ús sonar sem valdi Innréttingunum stað í Reykjavík. Fékk Reykjavík kaup­ staðarréttingdi 1786 en Hafnar fjörður ekki. Þrátt fyrir mikla verslun fékk Hafnarfjörður svo ekki verslunarréttindi fyrr en árið 1908. Götur í Hafnarfirði voru lengst af ekkert annað en troðningar í hrauninu og samgöngur milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar voru fram á tuttugustu öldina frekar erfiðar. Húsin í Hafnarfirði voru því sjaldan í beinum línum enda byggt þar sem hægt var að koma fyrir húsi í hrauninu. Húsin voru gjarnan kennd við eigendur sína og mörg nöfnin hafa haldist við húsin alla tíð síðan. Hins vegar hafa allt of mörg hús verið rifin, alveg fram á 21. öldina. RAÐAÐU RÉTT! Raðaðu nöfnunum við rétt mynd: Blöndalshús, Brautarholt, Bungalow, Deild, Gerði, Gestshús, Gúttó, Hábær, Litli Klettur, Melshús, Stefánshús, Sýslumannshúsið, Þórsmörk, Ekkert nafn. Réttar lausnir verða birtar á www. fjardarfrettir.is um áramót. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.