Fjarðarfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 29
www.fjardarfrettir.is 29FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016
Það gerðist aðra útskriftina í röð að
tveir stúdentar voru hnífjafnir á
lokaeinkunn og töldust báðir stúdentar.
Þetta voru þeir Hrannar Björnsson og
Ævar Örn Bergsson.
STOLT AF ÁHERSLUM
SKÓLANS
Í ávarpi sínu lagði nýstúdentinn,
Ingibjörg Þórðardóttir, áherslu á það
hve stolt hún væri af áherslum skólans
í jafnréttismálum, gagnvart fjölbreytni
mannlífsins og stuðningi hans við
nemendur sína. Þá tilkynntu nýstúdentar
að þeir hefðu gefið peninga til
Mæðrastyrksnefndar í nafni skólans.
RÆÐA ÞARF TILGANG
SKÓLASTARFS
Í ræðu sinni vék Magnús Þorkelsson,
skólameistari að meðal annars Pisa
könnuninni nýútkomnu og heilsteyptri
umræðu um skólastarf og hlutverk
þess. Hann sagði m.a.: „Það er ekki
nóg að ræða niðurstöðurnar í nokkra
daga. Við þurfum að ræða skólamál,
tilgang skólastarfs og inntak skólastarfs.
Ræða hlutverk skóla, hlutverk kennara
og hlutverk heimila gagnvart skólunum.
Þá þarf ekki síst að ræða hvaða kröfur
er rétt að gera til kennara og skóla. Ef
við gerum ekkert í málinu þá endur
tökum við umræðuna um Pisa árið
2019.“
Hann sagði einnig í lok ræðu sinnar:
„Ég nefndi það áðan að ég saknaði
umræðu um skólamál. Eiginleg
skólamál. Inntak starfsins og tilgang.
Ekki einungis fjármál og kerfi og Pisa.
Það er oft talað um kostnað af skólastarfi
þegar peningar eru settir í aðra hluti en
steypu. En það er talað um fjárfestingar
t.d. þegar keyptir eru togarar, breiðþotur
eða þegar verslunarhús eru reist. Við
þurfum að ræða um pólítík og tilgang
skólastarfs, hugarfar skólastarfs, náms
skipan, ígrundun, núvitund, heilsu
eflandi framhaldsskóla og hvað á að
kenna, eða frekar hvað á að læra. Við
þurfum t.d. að læra að gera mistök og
læra af því að gera mistök. Við þurfum
að íhuga hvernig við eflum gildi náms
greinanna í þessum ramma sem við
sitjum inni í, hvort við viljum annan
ramma og hvernig við notum náms
greinina ekki einungis til að læra hana
sjálfa heldur einnig til að skynja það
sem er gott og vont, hollt og óhollt, rétt
og rangt í þessum flókna heimi okkar.
Stýrivextir og fjárfestingar í atvinnu
lífi eru góðra gjalda verðar en skólinn
er líka fjárfesting. Við eigum að sjá
skólann sem skapandi afl. Samfélags
lega bætandi afl. Fólk sem er á flótta
undan stríðum og náttúru hamförum er
ávallt að reyna að tryggja börnum
sínum betri aðstæður og þar með
aðgang að skólum.“
LÁTIÐ HJARTAÐ RÁÐA FÖR
Í lokaorðum sínum þakkaði hann
stúdentum fyrir að hafa látið afgang af
fjársöfnun vegna dimmissionar renna
til Mæðrastyrksnefndar. Hann sagði
svo m.a. „ Munið bara að láta hjartað
ráða för. Og munið að það er betra að
vera fyrsta flokks útgáfa af sjálfum sér
en að reyna að uppfylla drauma annarra
án þess að langa það.
Veljið með hliðsjón af væntingum
ykkar, þess sem hjartað segir ykkur og
munið að við verðum aldrei fullnuma
og þess vegna leitum við áfram að því
sem bætir líf okkar, en ekki síður líf
annarra. Það er gaman að breyta
heiminum, krefjandi en gaman.
Fjölmargir aðilar gáfu verðlaun og
styrki við athöfnina en það voru: Há
degisverðarklúbburinn, Íslands banki,
Góa, Embætti landlæknis, Rótarý
klúbbur Hafnarfjarðar, Gámaþjónustan
og Danska sendiráðið.
Hrannar og Ævar hnífjafnir á toppnum
Sextíu og fjórir stúdentar útskrifuðust frá Flensborgarskólanum sl. laugardag.
Útskriftarnemendur Flensborgarskólans í desember 2016 ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara.
Lj
ós
m
.:
R
ag
nh
ild
ur
A
ða
ls
te
in
sd
ót
tir
Sundfélag Hafnarfjarðar • Ásvallalaug • www.sh.is • sh@sh.is
Allar upplýsingar um námskeiðin og innritun eru á heimasíðu SH www.sh.is
Fjölbreytt tilboð
sundnámskeiða
Skráðu þig
og þína núna!
styrkir barna og unglingastarf SH
Sundnámskeið fyrir börn 4-6 ára og 3-4 ára
– Nýir hópar í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug
Sundkennsla og sundæfingar fyrir alla aldurshópa
Framhaldsnámskeið fyrir 3-4 ára og 5-6 ára
– Sundhöllin, Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug
Skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna
– Ný námskeið hefjast 2. febrúar og 7. mars
FRÉTTASKOT
FRÉTTIR
UM JÓL OG
ÁRAMÓT
Sendu fréttaskot á
fjardarfrettir@fjardarfrettir.is
...eða notaðu formið á
www.fjardarfrettir.is
Smelltu á
LIKE