Feykir - 19.02.2020, Page 4
Sagt er frá því á vef Fisk Seafood að tveir starfsmenn í landvinnslu,
þeir Matthías Angantýsson og Tryggvi Berg Jónsson, hafi ákveðið
að leggja stígvélin á hilluna eftir áratuga starf fyrir félagið. Af því
tilefni var boðið upp á köku og kaffi í matsal landvinnslunnar á
Sauðárkróki.
Þar var þeim færður þakklætisvottur fyrir vel unnin störf. Í
fréttinni kemur fram að stjórn og starfsfólk FISK Seafood þakki þeim
fyrir störfin og þeim óskað velfarnaðar í þeim verkefnum sem þeir
taka sér fyrir hendur. /ÓAB
Matthías og Tryggvi
leggja stígvélin á hilluna
Sauðárkrókur
Guðni Ólafsson verkstjóri, Tryggvi, Friðbjörn Ásbjörnsson framkvæmdastjóri,
Matthías og Ívar Örn Marteinsson verkstjóri. MYND: FISK.IS
Vélstjórn, tæknilausnir og viðhald
Dögun leitar að nýjum liðsmanni með góða tækniþekkingu og reynslu.
Félagið starfrækir mjög tæknivædda vinnslu sem krefst þekkingar og
útsjónarsemi við rekstur og umsjón.
Um er að ræða fjölbreytt starf á sviði tækni, iðnstýringa,
vélstjórnunar og viðhalds.
Helstu verkefni:
- Rekstur vélbúnaðar, tækja- og iðnstýrikerfa.
- Umsjón með viðhaldi og viðhaldsverkefnum.
- Frekari þróun og innleiðing á tæknilausnum.
- Samskipti við birgja og þjónustuaðila, innlenda sem erlenda.
- Allskonar reddingar og inngrip þegar þörf er á!
Hæfniskröfur:
- Menntun á sviði vélvirkjunar, vélstjórnar, rafvirkjunar
eða sambærilegu.
- Góð tölvukunnátta. Þekking og reynsla af iðnstýringum og
slíkum lausnum.
- Góð enskukunnátta.
- Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Þjónustulund, jákvæðni og áhugi á framleiðslu eru
æskilegir eiginleikar.
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi.
Upplýsingar gefur Óskar í síma 892-1586 eða Hilmar í síma 898-8370.
Vinsamlegast sendið umsókn á oskar@dogun.is
Dögun sérhæfir sig í veiðum og vinnslu á rækju og starfrækir mjög fullkomna
rækjuvinnslu á Sauðárkróki. Félagið hefur nýlokið við miklar endurbætur á
framleiðslubúnaði með frekari tæknivæðingu, sjálfvirkni og möguleikum á
aukinni vinnslu.
Dögun hefur starfað samfleytt í 35 ár á traustum grunni.
Stefna félagsins er að auka framleiðslu og sölu á
næstu árum og vera áfram leiðandi
Síðari umferð Söngva-
keppninnar 2020 fór fram sl.
laugardagskvöld en þá kepptu
fimm lög um tvö síðustu sætin
á úrslitakvöldið og möguleiki
gefinn á einu aukalagi áfram.
Feykir hefur ekki frétt af
miklum tengingum flytjenda
laganna við Norðurland vestra
að þessu sinni, og þó – Nína
Dagbjört Helgadóttir er
barnabarn Stefáns heitins
Jónssonar sem fæddist á
Neðri-Svertingsstöðum í
Miðfirði í Vestur
Húnavatnssýslu.
Söngkonan Rúna Stefáns
er móðir Nínu og sungu þær
saman lagið Ekkó eftir Þórhall
Halldórsson og Sönnu
Martinez en Þórhallur samdi
íslenska textann ásamt Einari
Bárðarsyni. Rúna var reyndar
í bakraddasveitinni og fékk
hlutverk þar fyrir tilviljun en
ein bakraddasöngkvennanna
verður ekki á landinu þegar
undankeppnin fer fram og
hleypur Rúna því í skarðið.
Fór svo að Daði Freyr og
Gagnamagnið komst áfram
ásamt Ívu og Oculis Videre.
Dómnefndin ákvað svo að
nýta sér Eitt lag enn
möguleikann og sendu Nínu
og Ekkó einnig áfram í
úrslitin sem fram fara 29.
febrúar næstkomandi. /ÓAB
Vestur-húnvetnskur
vinkill á laginu Ekkó
Söngvakeppni Sjónvarpsins
Nína Dagbjört Helgadóttir. MYND AF NETINU
Borun er lokið á fjórðu vinnsluholunni á Reykjum við Húnavelli vegna viðbótarvatnsöflunar fyrir
hitaveitu Blönduóss og Skagastrandar. Verði árangur fullnægjandi mun það auka rekstraröryggi
veitunnar til framtíðar, segir á heimasíðu RARIK.
Að sögn Rósants Guðmundssonar, kynningarstjóra RARIK, gekk borun vel þrátt fyrir erfiðar aðstæður
og misjafnt veðurfar. „Það bera að þakka góðri vinnu þeirra sem að verkefninu koma,“ segir hann en
borverktaki var Ræktunarsamband Flóa og Skeiða.
„Fyrstu vísbendingar gefa tilefni til bjartsýni en nú taka við prófanir á afkastagetu holunnar og mun þá
endanlegur ávinningur koma í ljós,“ segir Rósant. /PF
Vel tókst til með borun
Reykir í Húnavatnshreppi
MYND: RARIK.IS
4 07/2020