Feykir - 19.02.2020, Qupperneq 8
Þegar skoðuð eru viðhorf frá
fyrri tíð, sést að nútíminn er
að miklu leyti kominn í
andstæðuna:
Fyrr á tímum, frægt var það,
fannst það engum miður,
þegar Jökla-Kolbeinn kvað
Kölska í sjóinn niður.
Nú er uppi önnur trú,
öll sem mæld í krónum.
Keppst er við að kveða nú
Kölska upp úr sjónum.
Ekki er alltaf við hreinskiptið
fólk að eiga og sumum
virðist stundum annt um að
koma illu af stað:
Margir gefa svikul svör,
sitthvað hugi slævir.
Flýgur víða eitruð ör,
oft hún markið hæfir.
Oft virðist reynslan sýna að
þeir menn sem eru latir fari
sér hægar við borðhald en
aðrir:
Þannig skal málin meta,
miðuð til gagns og þarfa.
Sá sem er seinn að éta
seinn verður eins til starfa.
Fyrir nokkru fór óþægilegur
verkur að angra mig í hægri
stórutánni. Gekk svo í rúmar
tvær vikur. Að lokum
drattaðist ég til læknis. Var
hann skjótur að finna hvað
var að og dró úr tánni allstóra
járnflís. Ekki veit ég hvaðan
hún kom, en mér þóttu
umskiptin góð og orti á
leiðinni út:
Læknirinn til líknar vís,
líktist engum fálka.
Tók úr mínum fæti flís
en fann þar engan bjálka.
Víst er að menn hafa haft
sínar fylgjur á öllum tímum:
Eiríkur rauði var litblindur lúði
með lyndið af þráa strítt.
Hann greindi það jafnan í
grænasta skrúði
sem greindist af öðrum hvítt.
Orti til eins kunningja míns
sem fór geyst að öllu og
brotlenti með margt fram-
takið fyrir bragðið:
Í þér hneigðir eðlislægar
eru stíft á hraðans för.
Ef þú ferð þér heldur hægar
hlýturðu miklu betri svör.
Stundum verður manni það
á að mislíka svo meðferð
mála að orðbragðið verði
eftir því:
Saman rakkað læðingslið
leiðir skakka mynd um svið.
Í sig hakkar ómetið,
orkupakkahelvítið!
Og svo hrökk eftirfarandi
vísa upp úr mér í haust er
leið:
Flæðir margt um mála svið
með sinn flókna spuna,
meðan Bretar berjast við
Brussel-ófreskjuna.
Oft er tiltölulega stutt
gönguför meiri hressing en
margur myndi ætla:
Geng ég stundum inn að á,
ekkert læt mig villa.
Finn ég strauminn sterka þá
stuðlaósinn fylla.
Löngum er gott að hafa í huga
að hver maður hefur sitt gildi
– þrátt fyrir allt:
Ég er kannski oft um of
eggjar fús að brýna,
en á þó til að yrkja lof
um aðra en vini mína.
Gömul speki kennir okkur að
skoða og reyna á ævigöng-
unni og halda því sem gott er:
Höldum fast um tryggðataug
trúar bestu kennda,
þar til lífs um lengdarbaug
leiðin tekur enda.
Ritað 15. febrúar 2020
Rúnar Kristjánsson
AÐSENT
Lykkjuföll
og lopatog
HSN Sauðárkróki hefur fengið nýtt símanúmer :
432 4200
Lyfjasími :
432 4203
Vaktlæknir utan dagvinnutíma :
1700
Ef um neyðartilfelli er að ræða hringið í :
112
Karlakórinn Heimir heldur
tónleika í Blönduósskirkju
annað kvöld, 20. febrúar kl.
20:30 þar sem boðið verður upp
á fjölbreytta efnisskrá, meðal
annars þætti tileinkaða Stefáni
Íslandi. Í lok næstu viku verða
svo Eyfirðingar heimsóttir.
„Það sem er framundan hjá
okkur eru tónleikar á Blönduósi
á fimmtudagskvöld svo verðum
við í Laugaborg í Eyjafirði 28.
febrúar. Þann 13. mars verðum
við í Langholtskirkju á
föstudagskvöldi og daginn eftir
setjum við stefnuna á Vest-
mannaeyjar, hvort sem það
tekst eða ekki. Almættið verður
að ráða því hvort verði fært eða
ekki. Veðrið setur svip á alla
skipulagningu þessa dagana og
erfitt að plana nokkuð fram í
tímann með færð að gera,“ segir
nýkjörinn formaður kórsins,
Atli Gunnar Arnórsson.
Hann segir það árvisst að
kórinn bregði undir sig betri
fætinum í mars og haldi suður
yfir heiðar og syngi þá yfirleitt í
Reykjavík og svo annað hvort í
Borgarfirði, Suðurnesjum eða á
Suðurlandi. Hefur kórinn
yfirleitt fengið góða aðsókn í
þessum ferðalögum og tekist vel
að sögn Atla.
Hann segir að nú sé rykið
dustað af dagskrá sem kórinn
var með fyrir nokkrum árum
um Stefán Íslandi. „Við ætlum
að rifja hana upp og með okkur
er mikill stórtenór, Þorgeir
Andrésson, sem söng með
okkur á sínum tíma í þessari
dagskrá og lofar góðu.“
Atli segir að um 70 karlar
séu á skrá hjá kórnum og með
fjölmennasta móti. Margir
ungir söngvarar eru þar á meðal
og sumir enn í efstu bekkjum
grunnskóla.
„Það er eitthvað sem við
erum afskaplega ánægðir með,
hvernig til hefur tekist hjá
okkur, að höfða til yngri manna
annars lognast þetta út af með
tímanum.“ /PF
Rykið dustað af Stefáni Íslandi
Karlakórinn Heimir á faraldsfæti
Hafðu
samband!
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is
8 07/2020