Feykir - 19.02.2020, Page 9
Íslenska kokkalandsliðið, með Skagfirðinginn Kristin
Gísla Jónsson innan borðs, hefur gert það gott á
Ólympíuleikum matreiðslumeistara í Stuttgart í
Þýskalandi sem hófust þann 14. febrúar en lýkur í
dag. Liðið vann til tvennra gullverðlauna, annars
vegar fyrir Chef´s table og hins vegar í Hot Kitchen.
Verðlaunaafhendingin fór fram í morgun þar sem
kom í ljós hvaða sæti okkar lið hreppti en þá var
Feykir kominn í prentun.
Í Chef´s table er framreiddur sjö rétta
hátíðarkvöldverður fyrir tíu manna borð, auk
tveggja dómara og samanstendur m.a. af fiskréttafati,
pinnamat, veganrétti, lambakjöti og desert.
Í keppninni um heitu réttina, Hot Kitchen, er
útbúinn þriggja rétta matseðill með forrétti, aðalrétti
og eftirrétti sem eldaðir eru frá grunni á keppnisstað
fyrir 110 gesti. Dómarar, alls staðar að úr heiminum,
með tilheyrandi réttindi dæmdu í keppnunum þar
sem meðal annars var tekið mið af bragði, útliti,
samsetningu, hráefnisvali og fagmennsku við
undirbúning og matargerð.
Kokkalandsliðið hefur æft stíft síðustu átta
mánuði fyrir keppnina og fram kemur á
veitingageirinn.is að hátt í fjögur tonn af búnaði hafi
verið send til Þýskalands en liðið þurfti að setja upp
fullbúið eldhús á keppnisstaðnum. Þá er ótalið það
hráefnið sem flytja þurfti á staðinn en kokkalandsliðið
lagði áherslu á að nota sem mest af hágæða íslensku
hráefni í matargerðina.
Kristinn Gísli segir að mjög vel hafi gengið í
keppniseldhúsinu og mikil gleði í hópnum. „Við
bjuggumst við góðu gengi í Hot Kitchen, en við
vissum ekki alveg hvar við stóðum í Chef´s table
sem er alveg ný keppni fyrir okkur. Það sem kom
mest á óvart var hversu vel okkur gekk í þeirri
keppni,“ sagði Kristinn Gísli kampakátur í samtali
við Feyki í gær. Þá var liðið að pakka niður fraktinni
sem verður send heim til Íslands í dag.
Íslenska kokkalandsliðið hefur síðustu ár skipað
sér meðal þeirra færustu í matreiðslu og segir á
heimasíðu matreiðslumanna að sé nú á meðal sex
bestu kokkalandsliða heims. Auk Kristins Gísla eru í
kokkalandsliðinu þau Sigurjón Bragi Geirsson,
þjálfari liðsins, Björn Bragi Bragason, forseti Klúbbs
matreiðslumeistara, Fanney Dóra Sigurjónsdóttir,
varaforseti Klúbbs matreiðslumeistara, Snorri Victor
Gylfason, Sindri Guðbrandur Sigurðsson, Snædís
Xyza Mae Jónsdóttir, Ísak Darri Þorsteinsson, Jakob
Zarioh Sifjarson Baldvinsson, Ísak Aron Ernuson og
Chidapha Kruasaeng.
Kristinn Gísli hefur verið einkar sigursæll í þeim
keppnum sem hann hefur tekið þátt í en á síðasta ári
sigraði hann, ásamt félaga sínum Hinriki Lárussyni,
í alþjóðlegri matreiðslukeppni sem klúbbur
matreiðslumeistara í Norður Grikklandi stóð fyrir.
Árið 2017 landaði hann, ásamt Ásdísi Björg-
vinsdóttur nema á Bláa lóninu, silfurverðlaunum í
Norrænu nemakeppninni í matreiðlu- og fram-
reiðslu sem fram fór í Hótel og matvælaskóla Finna í
Helsinki. Höfðu þau árið áður staðið uppi sem
sigurvegarar í nemakeppni í matreiðslu og
framreiðslu sem fram fór í Hótel- og
matvælaskólanum.
Fyrir ættfræðiþyrsta þá er Kristinn Gísli sonur Öldu
Kristinsdóttur og Jóns Daníels Jónssonar á
Sauðárkróki. /PF
Kristinn Gísli í gullliðinu
Ólympíuleikar matreiðslumeistara í Stuttgart
Mynd af Ólympíuförunum fræknu. Kristinn Gísli er annar frá vinstri.
MYND: FB KOKKALANDSLIÐIÐ
Halldór Gunnar Pálsson. MYND: ÚR EINKASAFNI
07/2020 9
Nú er það Fjallabróðirinn Halldór Gunnar Pálsson sem tjáir sig
um Tón-lyst sína á síðum Feykis. Hann fæddist á Flateyri við
Önundarfjörð árið 1981 og ólst þar upp, sonur Páls Önundarsonar
og Magneu Guðmundsdóttur. „Móðir mín, Magnea, hefur búið á
Varmalæk í Skagafirði í átján ár og er gift eðal drengnum Birni
Sveinssyni,“ segir Halldór.
Gítar er aðalhljóðfæri kappans en hann leikur á nokkur til viðbótar
en flestir ættu að kannast við Halldór sem stjórnanda Fjallabræðra
og sem gítarleikara einnar alvinsælustu hljómsveitar landsins síðustu
ár, Albatross. Aðspurður um helstu tónlistarafrek segir hann: „Finnst
frekar skrýtið að tala um afrek þar sem erfitt er að keppa í tónlist. Ég
er hins vegar mjög stoltur af þeim afrekum sem Fjallabræður hafa
unnið og ber þar til dæmis að nefna heimboð sem við fengum frá
Karlakórnum Heimi um að syngja með þeim í Miðgarði. Sú stund
markar líka upphaf samstarfs míns við vin minn og Skagfirðing, Sverri
Bergmann.“
Hvaða lag varstu að hlusta á? Ég var að hlusta á nýtt lag sem
Fjallabræður eru að vinna.
Uppáhalds tónlistartímabil? Það er erfitt að segja til um það þar
sem ég hef alla tíð verið duglegur að hlusta á tónlist. En sú tónlist sem
var í gangi á árunum 1960-1980 er sú tónlist sem ég hef hvað mest
hlustað á myndi ég segja. Til að byrja með hlustaði ég eiginlega bara
á Led Zeppelin og fátt annað komast að hjá mér.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Það er
mjög margt. Ég reyni að vera ekki of mikið í bergmálshellinum og
gef öllu séns. Það sem hefur heillað mig mest þessa stundina er
tónlistarkonan Billie Eilish.
Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Það var
náttúrulega bara klassísk íslensk dægurtónlist en Bítlarnir og Abba
ómuðu oft í græjunum.
Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/niðurhalið sem þú
keyptir þér? Mig minnir að fyrsta kassettan hafi verið Welcome to
the Jungle með Guns N´Roses, fyrsta vinylplatan var Paranoid með
Black Sabbath og fyrsti geisladiskurinn hafi verið Nevermind með
Nirvana. Það gæti hinsvegar verið að Bob Dylan hafi laumað sér þarna
einhversstaðar inn á milli.
Hvaða græjur varstu þá með? Það voru sennilega bara einhverjar
Pioneer fermingargræjur.
Hvert var fyrsta lagið sem þú manst eftir að hafa fílað í botn? I Just
Called to say I Love You með Stevie Wonder… svo Stairway to Heaven
með Led Zeppelin.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Það fer nú fátt þannig í
taugarnar á mér… það væri þá helst eitthvað sem ég hef gert sjálfur
og á erfitt með að hlusta á.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum
til að koma öllum í stuð? Creedence Clearwater Revival, það klikkar
ekki.
Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst
heyra? Þá finnst mér gott að hlusta á kassagítarmúsik. Eitthvað svona
Singer/songwriter dót. Dylan td.
Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á
tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með
þér? Ætli ég tæki ekki bara alla fjölskylduna með mér á Rolling Stones
tónleika. Þetta er samt mjög erfið spurning og mikið af listamönnum
sem ég væri til í að sjá með mínu fólki.
Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn
með bílpróf? Nirvana, Led Zeppelin, Bob Dylan, Bob Marley, Pearl
Jam, Trúbrot, Black Sabbath, Red Hot Chili Peppers o.fl.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Mig hefur
nú aðalega dreymt um að vera besta útgáfan af sjálfum mér sem
tónlistarmaður en margir haft mikil áhrif og er ég búinn að telja nokkra
upp hér að ofan. Af íslenskum tónlistarmönnum myndi ég segja að
Magnús Þór Sigmundsson sé búinn að hafa mjög mikil áhrif á mig.
Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út (eða sú
sem skiptir þig mestu máli)? Svarið sem ég gef í dag er ekki sama
svarið og ég gef á morgun. Það eru til svo margar frábærar plötur.
Ég nefni tvær í dag. Grace með Jeff Buckley og OK Computer með
Radiohead.
Sex vinsælustu lögin á Playlistanum þínum? Spotify listinn minn
er mjög skrýtinn þar sem ég á 5 ára dóttur og ég nota Spotify mikið
þegar ég þarf að læra ný lög fyrir hin og þessi verkefni og gefur þar
af leiðandi ekki alveg skýra mynd af hvað ég hlusta á :) En hann er
einhvern veginn svona...
Stórir Hringir - Írafár
Stína ó Stína - Haukur Morthens 113 Vælubílinn - Pollapönk
Kickstart My Heart - Mötley Crüe
Hér koma Skoppa og Skrítla - Skoppa og Skrítla
Allur matur - María Björk Sverrisdóttir
Halldór Gunnar Pálsson / gítarinn
„Billie Eilish heillar mest þessa dagana“
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is