Feykir


Feykir - 19.02.2020, Blaðsíða 9

Feykir - 19.02.2020, Blaðsíða 9
Íslenska kokkalandsliðið, með Skagfirðinginn Kristin Gísla Jónsson innan borðs, hefur gert það gott á Ólympíuleikum matreiðslumeistara í Stuttgart í Þýskalandi sem hófust þann 14. febrúar en lýkur í dag. Liðið vann til tvennra gullverðlauna, annars vegar fyrir Chef´s table og hins vegar í Hot Kitchen. Verðlaunaafhendingin fór fram í morgun þar sem kom í ljós hvaða sæti okkar lið hreppti en þá var Feykir kominn í prentun. Í Chef´s table er framreiddur sjö rétta hátíðarkvöldverður fyrir tíu manna borð, auk tveggja dómara og samanstendur m.a. af fiskréttafati, pinnamat, veganrétti, lambakjöti og desert. Í keppninni um heitu réttina, Hot Kitchen, er útbúinn þriggja rétta matseðill með forrétti, aðalrétti og eftirrétti sem eldaðir eru frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti. Dómarar, alls staðar að úr heiminum, með tilheyrandi réttindi dæmdu í keppnunum þar sem meðal annars var tekið mið af bragði, útliti, samsetningu, hráefnisvali og fagmennsku við undirbúning og matargerð. Kokkalandsliðið hefur æft stíft síðustu átta mánuði fyrir keppnina og fram kemur á veitingageirinn.is að hátt í fjögur tonn af búnaði hafi verið send til Þýskalands en liðið þurfti að setja upp fullbúið eldhús á keppnisstaðnum. Þá er ótalið það hráefnið sem flytja þurfti á staðinn en kokkalandsliðið lagði áherslu á að nota sem mest af hágæða íslensku hráefni í matargerðina. Kristinn Gísli segir að mjög vel hafi gengið í keppniseldhúsinu og mikil gleði í hópnum. „Við bjuggumst við góðu gengi í Hot Kitchen, en við vissum ekki alveg hvar við stóðum í Chef´s table sem er alveg ný keppni fyrir okkur. Það sem kom mest á óvart var hversu vel okkur gekk í þeirri keppni,“ sagði Kristinn Gísli kampakátur í samtali við Feyki í gær. Þá var liðið að pakka niður fraktinni sem verður send heim til Íslands í dag. Íslenska kokkalandsliðið hefur síðustu ár skipað sér meðal þeirra færustu í matreiðslu og segir á heimasíðu matreiðslumanna að sé nú á meðal sex bestu kokkalandsliða heims. Auk Kristins Gísla eru í kokkalandsliðinu þau Sigurjón Bragi Geirsson, þjálfari liðsins, Björn Bragi Bragason, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, varaforseti Klúbbs matreiðslumeistara, Snorri Victor Gylfason, Sindri Guðbrandur Sigurðsson, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, Ísak Darri Þorsteinsson, Jakob Zarioh Sifjarson Baldvinsson, Ísak Aron Ernuson og Chidapha Kruasaeng. Kristinn Gísli hefur verið einkar sigursæll í þeim keppnum sem hann hefur tekið þátt í en á síðasta ári sigraði hann, ásamt félaga sínum Hinriki Lárussyni, í alþjóðlegri matreiðslukeppni sem klúbbur matreiðslumeistara í Norður Grikklandi stóð fyrir. Árið 2017 landaði hann, ásamt Ásdísi Björg- vinsdóttur nema á Bláa lóninu, silfurverðlaunum í Norrænu nemakeppninni í matreiðlu- og fram- reiðslu sem fram fór í Hótel og matvælaskóla Finna í Helsinki. Höfðu þau árið áður staðið uppi sem sigurvegarar í nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu sem fram fór í Hótel- og matvælaskólanum. Fyrir ættfræðiþyrsta þá er Kristinn Gísli sonur Öldu Kristinsdóttur og Jóns Daníels Jónssonar á Sauðárkróki. /PF Kristinn Gísli í gullliðinu Ólympíuleikar matreiðslumeistara í Stuttgart Mynd af Ólympíuförunum fræknu. Kristinn Gísli er annar frá vinstri. MYND: FB KOKKALANDSLIÐIÐ Halldór Gunnar Pálsson. MYND: ÚR EINKASAFNI 07/2020 9 Nú er það Fjallabróðirinn Halldór Gunnar Pálsson sem tjáir sig um Tón-lyst sína á síðum Feykis. Hann fæddist á Flateyri við Önundarfjörð árið 1981 og ólst þar upp, sonur Páls Önundarsonar og Magneu Guðmundsdóttur. „Móðir mín, Magnea, hefur búið á Varmalæk í Skagafirði í átján ár og er gift eðal drengnum Birni Sveinssyni,“ segir Halldór. Gítar er aðalhljóðfæri kappans en hann leikur á nokkur til viðbótar en flestir ættu að kannast við Halldór sem stjórnanda Fjallabræðra og sem gítarleikara einnar alvinsælustu hljómsveitar landsins síðustu ár, Albatross. Aðspurður um helstu tónlistarafrek segir hann: „Finnst frekar skrýtið að tala um afrek þar sem erfitt er að keppa í tónlist. Ég er hins vegar mjög stoltur af þeim afrekum sem Fjallabræður hafa unnið og ber þar til dæmis að nefna heimboð sem við fengum frá Karlakórnum Heimi um að syngja með þeim í Miðgarði. Sú stund markar líka upphaf samstarfs míns við vin minn og Skagfirðing, Sverri Bergmann.“ Hvaða lag varstu að hlusta á? Ég var að hlusta á nýtt lag sem Fjallabræður eru að vinna. Uppáhalds tónlistartímabil? Það er erfitt að segja til um það þar sem ég hef alla tíð verið duglegur að hlusta á tónlist. En sú tónlist sem var í gangi á árunum 1960-1980 er sú tónlist sem ég hef hvað mest hlustað á myndi ég segja. Til að byrja með hlustaði ég eiginlega bara á Led Zeppelin og fátt annað komast að hjá mér. Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Það er mjög margt. Ég reyni að vera ekki of mikið í bergmálshellinum og gef öllu séns. Það sem hefur heillað mig mest þessa stundina er tónlistarkonan Billie Eilish. Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Það var náttúrulega bara klassísk íslensk dægurtónlist en Bítlarnir og Abba ómuðu oft í græjunum. Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Mig minnir að fyrsta kassettan hafi verið Welcome to the Jungle með Guns N´Roses, fyrsta vinylplatan var Paranoid með Black Sabbath og fyrsti geisladiskurinn hafi verið Nevermind með Nirvana. Það gæti hinsvegar verið að Bob Dylan hafi laumað sér þarna einhversstaðar inn á milli. Hvaða græjur varstu þá með? Það voru sennilega bara einhverjar Pioneer fermingargræjur. Hvert var fyrsta lagið sem þú manst eftir að hafa fílað í botn? I Just Called to say I Love You með Stevie Wonder… svo Stairway to Heaven með Led Zeppelin. Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Það fer nú fátt þannig í taugarnar á mér… það væri þá helst eitthvað sem ég hef gert sjálfur og á erfitt með að hlusta á. Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Creedence Clearwater Revival, það klikkar ekki. Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? Þá finnst mér gott að hlusta á kassagítarmúsik. Eitthvað svona Singer/songwriter dót. Dylan td. Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Ætli ég tæki ekki bara alla fjölskylduna með mér á Rolling Stones tónleika. Þetta er samt mjög erfið spurning og mikið af listamönnum sem ég væri til í að sjá með mínu fólki. Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn með bílpróf? Nirvana, Led Zeppelin, Bob Dylan, Bob Marley, Pearl Jam, Trúbrot, Black Sabbath, Red Hot Chili Peppers o.fl. Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Mig hefur nú aðalega dreymt um að vera besta útgáfan af sjálfum mér sem tónlistarmaður en margir haft mikil áhrif og er ég búinn að telja nokkra upp hér að ofan. Af íslenskum tónlistarmönnum myndi ég segja að Magnús Þór Sigmundsson sé búinn að hafa mjög mikil áhrif á mig. Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út (eða sú sem skiptir þig mestu máli)? Svarið sem ég gef í dag er ekki sama svarið og ég gef á morgun. Það eru til svo margar frábærar plötur. Ég nefni tvær í dag. Grace með Jeff Buckley og OK Computer með Radiohead. Sex vinsælustu lögin á Playlistanum þínum? Spotify listinn minn er mjög skrýtinn þar sem ég á 5 ára dóttur og ég nota Spotify mikið þegar ég þarf að læra ný lög fyrir hin og þessi verkefni og gefur þar af leiðandi ekki alveg skýra mynd af hvað ég hlusta á :) En hann er einhvern veginn svona... Stórir Hringir - Írafár Stína ó Stína - Haukur Morthens 113 Vælubílinn - Pollapönk Kickstart My Heart - Mötley Crüe Hér koma Skoppa og Skrítla - Skoppa og Skrítla Allur matur - María Björk Sverrisdóttir Halldór Gunnar Pálsson / gítarinn „Billie Eilish heillar mest þessa dagana“ ( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.