Feykir


Feykir - 19.02.2020, Side 11

Feykir - 19.02.2020, Side 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Ból Sudoku FEYKIFÍN AFÞREYING Krossgáta Feykir spyr Sóldísir Hefur þú fylgst með Söngvakeppni sjónvarpsins 2020 og ef svo er, hvaða lag (flytjandi) finnst þér að ætti að vinna? UMSJÓN : frida@feykir.is „Ég sá seinni þáttinn og finnst Iva og Oculis Videre mjög flott. Sérstakt lag sem sker sig úr og ekki skemmir að flytjandinn er upprunalega frá Hollandi þar sem keppnin fer fram og gæti kannski sótt einhver stig þangað. Dimma og Daði koma svo næst á eftir.“ Guðný Axelsdóttir Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. Ótrúlegt - en kannski satt... Inngrónar táneglur eru nokkuð algengt vandamál þar sem horn eða hlið tánaglar vex inn í mjúka vefinn og veldur bólgu og eymslum. Algengasta ástæðan eru þröngir skór sem þrýsta á táneglurnar og tær. Ótrúlegt, en kannski satt, þá eru inngrónar táneglur arfgengar. Klassísk sunnudagsmáltíð Auður Ingimundardóttir og Rúnar Aðalbjörn Pétursson búa í Hólabæ í Langadal ásamt syni sínum, Pétri Inga. Þar reka þau kúa- og sauðfjárbú ásamt því að Auður sækir vinnu á Blönduós. Íslenska lambakjötið er í uppáhaldi hjá fjölskyldunni og því er vel við hæfi að uppskrift af klassískri sunnudagsmáltíð verði fyrir valinu. Tilvitnun vikunnar AÐALRÉTTUR Sunnudagslæri Lambalæri olía Best á lambið krydd Aðferð: Sett í ofn í steikarpotti við 130° í 3½ - 4 klukkustundir. Gott að láta lærið standa í 20-30 mínútur í pottinum áður en það er borið fram með tilheyrandi meðlæti. Sveppaostasósa: 1 bakki sveppir olía/smjör 1 villisveppaostur 1 piparostur rjómi 2-3 tsk. nautakraftur (eða 1-1½ teningur) Aðferð: Þessi sósa klikkar seint með lambalærinu. Skerið niður sveppi og steikið í potti með smá smjöri/olíu. Rífið ostana út í pottinn og setjið dass af rjóma. Því næst er nautakraftinum bætt við og jafnvel aðeins meiri rjóma eftir smekk. EFTIRRÉTTUR Kókosbolludraumur 1 marengsbotn, mulinn niður 4 kókosbollur ½ lítri rjómi vínber jarðarber bláber súkkulaði, t.d. Daim (má sleppa) Aðferð: Byrjið á því að mylja marengsbotn í eldfast mót. Rjóminn þeyttur og kókosbollunum blandað saman við rjómann og smurt yfir marengsinn. Skreytið með berjum. Okkur finnst best að setja vínber, jarðaber og bláber og svo er mjög gott að setja pínu súkkulaði yfir, t.d. Daim. Verði ykkur að góðu! Við skorum á Huldu Birnu Vignisdóttur til að vera næsta matgæðing Feykis því hún er frábær kokkur! „Já aðeins. Almyrkvi með Dimmu.“ Klara Helgadóttir „Ég hlustaði bæði kvöldin en hef ekki fylgst grannt með þessu. Ég held með Ivu en finnst trúlegt að Dimma fari út.“ Sigurbjörg Guðjónsdóttir „Já það hef ég gert. Ég held með Dimmu með lagið Almyrkva og vona að það vinni.“ Margrét Árnadóttir ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR) frida@feykir.is Auður og Rúnar í Hólabæ matreiða Auður, Rúnar og Pétur Ingi sonur þeirra. MYND: ÚR EINKASAFNI Hægeldað lambalæri er vinsæll sunnudagsmatur hjá landanum. MYND: AÐSEND Strákur er eina efnið sem hægt er að gera mann úr. - Höfundur ókunnur 07/2020 11 Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Víða er ég við kirkju kennt. Komnu á mið í sjóinn hent. Syndugum er svefninn vær. Sauðamjólk var lýðum kær.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.