Feykir - 19.02.2020, Qupperneq 12
Norðurlandsmót í júdó
Vel heppnað mót fór fram á Blönduósi
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455
7176 og netfangið feykir@feykir.is
07
TBL
19. febrúar 2020 40. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Þátttakendur á Norðurlandsmótinu í júdó um síðustu helgi. MYND: TINDASTÓLL.IS
Norðurlandsmót í júdó var haldið á Blönduósi þann 8.
febrúar síðastliðinn en alls mættu 35 keppendur frá
þremur júdófélögum á Norðurlandi: Tindastóli, Pardusi á
Blönduósi og KA á Akureyri. Norðurlandsmót hafa verið
haldin á Blönduósi frá árinu 2015 og er þetta fimmti
veturinn í röð sem það er haldið.
Á heimasíðu Tindastóls segir að mótið sé
samstarfsverkefni júdófélaganna þriggja á Norðurlandi
þó að mest mæði á Blönduósingum sem bjóði upp á
fyrsta flokks aðstöðu og haldi utan um skipulagið. Áður
átti að halda mótið í byrjun nóvember 2019 en því varð
að fresta.
Mótið hófst á sameiginlegri upphitun keppenda og
svo reið yngri hópurinn á vaðið þegar keppnin sjálf hófst
rétt upp úr klukkan 11. Eins og venjulega stóðu Blöndu-
ósingar sig frábærlega sem gestgjafar og eiga mikið hrós
skilið fyrir sitt starf. Nánari frásögn af mótinu og úrslit
má sjá á Tindastóll.is. /ÓAB
www.skagafjordur.is
Auglýsing um Skipulag í
Sveitarfélaginu Skagafirði
Deiliskipulag – Freyjugata 25 íbúðareitur
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar
samþykkti þann 11. febrúar 2020 að auglýsa tillögu
að deiliskipulagi íbúðareits milli Sæmundargötu,
Ránarstígs og Freyjugötu á Sauðárkróki í samræmi
við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan hefur fengið meðferð í samræmi við
4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
Stærð skipulagssvæðisins, sem er lóðin
Freyjugata 25, er 6.760 m².
Fyrirhugað er að breyta gamla skólahúsinu á lóðinni í
fjölbýlishús með 11 íbúðum. Jafnframt að skipta lóðinni
upp í fjóra hluta, þannig að auk lóðar undir fjölbýlishúsið
verði skilgreindar þrjár nýjar lóðir. Tvær lóðir fyrir parhús
við Freyjugötu og ein lóð fyrir parhús við Ránarstíg.
Deiliskipulagssvæðið/reiturinn afmarkast af Freyjugötu
í vestri, Ránarstíg í suðri, Sæmundargötu í austri og af
íbúðarhúsalóðum við Knarrarstíg í norðri.
Tillagan liggur frammi í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Skagafjarðar
frá og með fimmtudegi 20. febrúar 2020 til og með 3. apríl
2020. Þá verður deiliskipulagstillagan aðgengileg á heimasíðu
Sveitarfélagsins Skagafjarðar https://www.skagafjordur.is/
is/thjonusta/umhverfis-og-skipulagsmal/byggingafulltrui/
auglysingar-um-skipulagsmal. Athugasemdir eða ábendingar
við deiliskipulagstillöguna skulu vera skriflegar. Þær skulu
berast í síðasta lagi 3. apríl 2020 til skipulagsfulltrúa í Ráðhúsið
Skagfirðingabraut 17-19 eða á netfangið: jobygg@skagafjordur.is.
Sauðárkróki 13. febrúar 2020
Jón Örn Berndsen, Skipulagsfulltrúi
Jóhannes Kári Bragason hefur verið ráðinn slökkvi-
liðstjóri Brunavarna Húnaþings vestra frá 1. mars nk.
til eins árs vegna leyfis Péturs Arnarssonar slökkvi-
liðsstjóra.
Á heimasíðu sveitarfélagsins kemur fram að
Jóhannes Kári sé húsasmíðameistari og hafi lög-
gildingu sem slökkviliðsmaður og verið starfandi hjá
Brunavörnum Húnaþings vestra frá árinu 2002 til
þessa dags. /PF
Jóhannes Kári ráðinn
slökkviliðsstjóri
Húnaþing vestra
Nýr slökkviliðsstjóri Brunavarna Húnaþings vestra.
MYND: HUNATHING.IS.
Keraldið
Einu sinni smíðaði ég kerald og
lét ausa það við lind áður en
það var gyrt, og lak ekki einum
dropa. Þetta var á laugardags-
kvöld. Á sunnudaginn kom fólk
til kirkju. Þá gengu margir að
keraldinu og undruðust að ekki
lak. Þótti þeim svo mikils um
vert að tveir dóu af undrun.
Byljirnir
Eitt sinn var ég úti staddur þegar slagbyljaveður var hið
mesta sem ég man. Þá voru kýr reknar úr fjósi. En þá
vildi svo til að einn bylinn rak á þegar fyrsta kýrin rak
höfuðið út. Bylurinn tók af höfuðið við fjósstafinn. Í
sama bili kom annar bylur og rak höfuðið aftur á kúna
svo fast að ekki losnaði aftur.
„Góður er sá brúni“
Einhverju sinni var ég á ferð og reið Brún mínum, þá
voru þrumur í lofti og gekk skúrum . Ég sá einn mikinn
skúr nálgast. Þá sló ég Brún, en setti áður mundlaug á
lendina. Brúnn fór sprettinn til kvölds undan skúrnum.
En þegar ég reið heim tröðina skullu fyrstu droparnir í
mundlauginni og þá kölluðu englarnir í loftinu: „Góður
er sá brúni!“
Þjóðsögur Jóns Árnasonar
Halldór biskup segir sögur
Stórlygarar