Feykir - 25.03.2020, Síða 1
12
TBL
25. mars 2020
40. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–7
BLS. 10
Skólastarf á tímum COVID-19
Allir spila úr þeim
spilum sem á
hendi eru
BLS. 4
Spjallað við Króksarann
Arnheiði Hönnu Tómasdóttur
Kjörin forseti
Evrópusamtaka
osteópata
Kvenfélag Rípurhrepps á
tímamótum
Öflugt og kraftmikið
félag fagnar 150 ára
afmæli
Bjóðum alhliða lagnahreinsun á sérútbúnum bíl
Losum stíflur úr salernum, niðurföllum, frárennslislögnum, regnvatns- og skólplögnum.
Hreinsum trjárætur úr lögnum. Myndum lagnir sé þess óskað og og afhendum verkkaupa
á minnislykil. Sjáum um tæmingar á rotþróm. Bíll okkar er einnig útbúinn til hreinsunar
á sandföngum, fitu- og olíugildrum.
Holræsa- og stífluþjónusta
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 • Oddagata 18 • 545 Skagaströnd • terra.is • nordvesturland@terra.is
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Meirapróf - Vinnuvélanámskeið
Ökunám - Endurmenntun
Birgir Örn Hreinsson
Ökukennari
S: 892-1790
bigh@simnet.isHÁEYRI 1 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 455 4400
www.facebook.com/velavalehf
www.facebook.com/velavalehf
& 453 88 88 velaval@velaval.is
Kórónaveiran heldur áfram að gera usla
á landinu en þegar þetta er skrifað, um
miðjan dag á þriðjudegi 24. mars, hafa
alls 10.658 sýni verið tekin og af þeim
verið staðfest 648 smit á Íslandi. Af
þeim sem greinst hafa með Covid-19 á
landinu eru tvö látin.
Á vefsíðunni covid.is er hægt að finna
ýmsar upplýsingar um faraldurinn sem
uppfærðar eru daglega. Auk þeirrar
tölfræði sem að ofan greinir eru 592
Íslendingar í einangrun, ellefu á
sjúkrahúsi en 56 er batnað. Í sóttkví eru
alls 8.205 en 1.594 hafa lokið sóttkví.
Á Höfuðborgarsvæðinu eru 509
staðfest smit, 30 á Suðurnesjum, 74 á
Suðurlandi en aðeins eitt á Austurlandi
sem og á Vestfjörðum. Á Norðurlandi
eystra eru átta smitaðir, fjórir á
Vesturlandi og sjö eru óstaðsett. Á
Norðurland vestra eru 14 smitaðir, allir í
Húnaþingi vestra og 396 eru í sóttkví í
landshlutanum.
Í gær tóku gildi reglur er takmarka
samkomur enn frekar en áður á landinu
vegna hraðari útbreiðslu Covid-19.
Viðburðir þar sem fólk kemur saman
eru takmarkaðir við 20 manns í stað 100
áður. Við öll mannamót þarf auk þess að
tryggja að nánd milli manna verði yfir
tveimur metrum. Takmörkun á
skólahaldi helst óbreytt, a.m.k. um sinn.
Úrvinnslusóttkví í Húnaþingi
Vegna grunsemda um víðtækt smit í
Húnaþingi vestra var gripið til hertra
sóttvarnaraðgerða frá og með
laugardeginum 21. mars þar sem allir
íbúar sveitarfélagsins sæta úr-
vinnslusóttkví. Í henni felst að einungis
einn aðili af hverju heimili getur í hvert
sinn yfirgefið heimilið til að afla aðfanga.
Úrvinnslusóttkvíin gildir ekki um
lífsnauðsynlega starfsemi, s.s.
hjúkrunarheimili, sjúkrahús og dreifingu
og verslun með matvæli og eldsneyti.
Á heimasíðu Húnaþings vestra segir að
25 sýni hafi verið tekin sl. mánudag og
voru níu þeirra jákvæð, flest tengjast
smitum sem komin voru áður en nokkur
er verið að rekja. 19 sýni fóru í
gærmorgun til greiningar og niðurstöður
væntanlegar í dag og má þá búast við að
tölur um smitaða eða þá sem eru í sóttkví
breytist. Áfallateymi hefur verið virkjað
og geðteymi hjá heilsugæslu í
sveitarfélaginu.
Grunur um smit á Skagaströnd
Í gær var greint frá því á heimasíðu
Höfðaskóla á Skagaströnd að upp væri
kominn grunur um Covid-19 smit í
skólanum og því var tekin sú ákvörðun
að færa kennslu alfarið yfir í fjarkennslu
frá og með deginum í dag, 25. mars.
Mun það fyrirkomulag vara á meðan
beðið er eftir niðurstöðum úr sýnatöku.
„Við biðjum ykkur um að sýna stillingu
þar sem enn er ekkert staðfest smit á
Skagaströnd og er um varúðaráðstafanir
að ræða,“ segir í færslu skólans. /PF
Tölur smitaðra hækka en að sama
skapi líka þeirra sem batnar veikin
COVID-19 herðir tökin á Norðurlandi vestra
Miklar varúðarráðstafanir eru hvarvetna í hávegum hafðar á Norðurlandi vestra líkt og annars staðar á
landinu. Margar stofnanir og fyrirtæki hafa lokað eða þjónusta fólk á Netinu ef hægt er að koma því
við. Þær verslanir sem enn eru opnar reyna eftir megni að fara að tilmælum sóttvarnalæknis og hvetja
viðskiptavini sína til að fara varlega líkt og hér sést. MYND: PF
Birkihlíð Kjötvinnsla
býður upp á persónulega þjónustu í ljósi aðstæðna.
Afhendum pantanir upp að dyrum í Skagafirði og á Blönduósi.
Eigum flest af nauti og lambi. Verðlistinn er inni á Facebook
síðunni Birkihlíð Kjötvinnsla. Pantanir í SMS skilaboðum í
síma 690 5528 eða í Facebook skilaboðum.
Þröstur Erlingsson