Feykir


Feykir - 25.03.2020, Blaðsíða 5

Feykir - 25.03.2020, Blaðsíða 5
Nú er búið að slaufa körfuboltavertíðinni og væntanlega hefst baráttan á parketinu ekki á ný fyrr en með haustinu – þegar lífið og tilveran verður væntanlega komin í sitt gamla góða form á ný. Feykir hefur þó ekki enn gefist alveg upp á dripplinu og körfuboltabrasinu þennan veturinn og lagði því nokkrar laufléttar spurningar fyrir Tindastólskappann og landsliðsmanninn Pétur Rúnar Birgisson sem enn og aftur sannaði mikilvægi sitt í liði Tindastóls í vetur. Hvernig leggst þriðja sætið í þig og hvernig fannst þér tímabilið hjá Stólunum? -„Það í rauninni segir voða lítið að lenda í 3. sæti en eins og flestir vita er deildarkeppnin bara keppni til að raða bestu átta liðunum upp fyrir úrslitakeppni og 3. sæti hefði veitt okkur heimavallarrétt í fyrstu umferð. Þannig að ég held að við getum verið nokkuð sáttir við þá stöðu en auðvitað horfandi til baka eru nokkrir leikir í vetur sem hefðu mátt fara betur.“ Áttu Stólarnir möguleika á að taka titilinn í vor? „Já, að sjálfsögðu tel ég það. Úrslita- keppnin er náttúrulega bara nýtt mót og tel ég okkur hafa verið á góðum stað þegar mótið var flautað af. Þrátt fyrir lélegan leik á móti Fjölni vorum við búnir að vinna fimm af síðustu sex leikjum og það var bara tilhlökkun í mönnum að byrja alvöruna og sýna hvað við gætum gert í seríu.“ Hvað varstu ánægður með á tímabilinu og hvað var mest svekkjandi? „Það er auðveldara að tala um hvað var svekkjandi. Það voru svona helst þessi tvö töp á móti Fjölni og Val heima þar sem við náðum bara ekki að sýna neinar sparihliðar. Það sem ég var kannski helst ánægður með er hvernig hópurinn tæklaði þessi töp en eftir bæði töpin fórum við í erfiða útileiki gegn Þór Akureyri og Þór Þórlákshöfn og klárum það. Annars er voða erfitt að finna einhverja toppa á tímabili sem fékk ekki einu sinni að klárast.“ Fyrir utan Síkið, hvar er skemmti- legast að spila? „Ég hef alltaf kunnað vel við að spila í Keflavík.“ Hafa körfuboltamenn eitthvað getað æft að undanförnu og hvernig er útlitið með æfingar? „Það er búið að blása allar liðsæfingar af, enda kannski lítið við þær að gera þegar það eru einhverjir sjö mánuðir í næsta leik. Menn geta allavega ennþá farið í íþróttahusið og bæði skotið og lyft. Þau sem eru að koma þangað eru bara dugleg í því að spritta eftir sig Pétur Rúnar Birgisson körfuboltakappi í Tindastóli „Is this normal!?!“ ( SPORTSPJALLIÐ ) oli@feykir.is Pétur Rúnar. MYND: GG lóð og stangir og passa að gera sitt til að varast að ná í þessa veiru.“ Hver er aðal stuðboltinn hjá Stólunum? „Heyrðu, það er held ég bara einn maður sem kemur upp og held ég að hann myndi vera svarið hjá öllum í liðinu. Það er Hannes Ingi Másson. Mjög gaman að vera í kringum hann og svo er hann náttúrlega maðurinn sem reddar öllum myndum í rútuferðirnar og er plötusnúður – bæði í lyftingaklefanum og um helgar.“ Þú varst valinn í landsliðið á ný á dögunum. Hvað tekur þú með þér úr slíkum verkefnum? „Maður er náttúrulega fyrst og fremst bara gífurlega stoltur að fá tækifæri til að spila fyrir landið sitt og tekur maður því aldrei sem gefnum hlut. Svo reynir maður bara að fá ráð frá mönnum þarna og horfir á þá bæði æfa og spila og reynir kannski að koma einhverju yfir í sinn leik.“ Hefur ekkert skrautlegt gerst á ferðalögum liðsins þennan vonskuvetur? „Þessi vetur hefur nú verið einhver sá versti sem ég hef upplifað og voru margar ferðirnar skrautlegar. Ég held að ferðin sem situr mest í minninu sé bara síðasta ferð okkar til Þorlákshafnar. Þá var sem sagt búið að snjóa svolítið hérna fyrir norðan og nátturulega ekkert mokað eftir kl. 10 á kvöldin. Bjössi [á Borg, stjórnarmaður og rútustjóri] ákveður að skella sér bara Þverárfjallið og drífa sig heim. Við hefðum líklega verið fljótari að fara Vatnsskarðið vegna þess að Fjallið var bara allt morandi í sköflum. Bjössi lét það svo sem ekkert stoppa sig og keyrði duglega í gegnum þá og menn voru svona farnir að færa sig fram í sætin og fylgjast með framgangi mála. Svo allt í einu lítur Jasmin [Perkovic] við og spyr með sinni einstaklega djúpu rödd: „Is this normal!?!” Við svörum náttúrulega bara: „Nei,“ og þá spyr hann: „Then why does he drive so fast?” Hálfsmeykur kallinn. Menn fóru bara að hlægja og sögðu að Bjössi væri alveg með þetta – sem hann var náttúrulega.“ Viðskiptavinir Skagfirðingabúðar athugið! Vegna Covid 19 viljum við benda fólki á að hafa eftirfarandi tilmæli að leiðarljósi þegar versla þarf inn til heimilisins: - Aðeins einn komi frá hverju heimili til að versla. - Vera með tilbúinn innkaupalista til að innkaupin gangi hraðar fyrir sig. - Ekki koma í verslunina að nauðsynjalausu s.s. með því hugarfari að hitta mann og annan. - Virða fjarlægðarreglur milli óskyldra aðila, þ.e. hafa a.m.k. tvo metra í næsta mann. - Versla meira inn í einu svo fækka megi ferðum í búðina. - Nýta afgreiðslutíma eins og hægt er. Skagfirðingabúð og Almannavarnir Norðurlandi vestra Heimsendingar frá Skagfirðingabúð Heimsendingar á matvöru frá Skagfirðingabúð munu framvegis verða á þriðjudögum og fimmtudögum og munu pantanir sem berast á mánudögum og miðvikudögum verða afgreiddar þá daga. Gjaldtaka verður framvegis fyrir hverja heimsendingu, kr. 1.500 þegar verslað er fyrir kr. 0-15.000.- en frítt ef verslað er fyrir kr. 15.000,- eða meira. Viðskiptavinir eru vinsamlega beðnir um að ganga frá greiðslu um leið og pantað er ef það er möguleiki. Þá hefur verið ákveðið að engin þjónusta verði í sérvörudeildum Skagfirðingabúðar þar til annað verður tilkynnt. Viðskiptavinir eru beðnir um að greiða fyrir vörur í versluninni með kortum en ekki peningum ef það er möguleiki. Heimsendingar frá Skagfirðingabúð Heimsendi gar á matvöru f á Skagfirðingabúð munu framvegis verða á þriðjudögum og fimmtudögum og munu pant ir sem berast á m nudögum og miðvikudögum verða afgreiddar þá daga. Gjaldt ka verðu framvegis fyrir hverja heimsendi gu, kr. 1.500 þegar ve slað er fy ir kr. 0-15.000.- en frítt ef v rslað er fy ir kr. 15.000,- eða meira. Viðsk ptavinir eru vinsamlega beðnir um að gan frá g eiðslu um leið og pantað er ef það er möguleiki. Þá hefur ve ið ákveðið að engin þjónusta verði í sérvörudeil um Skagfirðingabúðar þ til ann ð verður tilkynnt. Viðsk ptavinir eru beðnir um að greiða fyrir vö ur í versluninni með kortum en ekki peningum ef það er möguleiki. i i t i i fi i e vi vilj vi e f l i f eftirf r i til li lei rlj si e r versl rf i til ei ilisi s: - ðeins einn ko i frá hverju hei ili til að versla. - era eð tilbúinn innkaupalista til að innkaupin gangi hraðar fyrir sig. - Ekki ko a í verslunina að nauðsynjalausu s.s. eð því hugarfari að hit a ann og annan. - irða fjarl gðarreglur il i óskyldra aðila, þ.e. hafa a. .k. tvo etra í n sta ann. - ersla eira inn í einu svo f kka egi ferðu í búðina. - ýta afgreiðslutí a eins og h gt er. fir i l r ir r rl i str Heimsendingar frá Skagfirðingabúð Heimsendingar á matvöru frá Skagfirðingabúð munu framvegis verða á þriðjudögum og fi tudögum og munu pantanir sem berast á mánudögum og miðvikudögum verð fgrei ar þá daga. Gjaldtaka verður framvegis fyrir hverja heimsendingu, kr. 1.5 þegar verslað er fyrir kr. 0-15. .- en frítt ef verslað er fyrir kr. 15. ,- eða meira. Viðskiptav n r eru vinsamlega beðnir um að ganga frá greiðsl m leið og pantað er ef það er möguleiki. Þá hefur verið ákve i að engin þjónusta verði í sérvörudeildum Skagfirðingabúðar þar til annað verður tilkynnt. Viðskiptav n r eru beðnir um að greiða fyrir vö u í verslu i ni með kortum en ekki pe i gum ef það er möguleiki. Viðskiptavin r Skagfirðingabúðar athugið! Vegna Covid 19 viljum við benda fólki á að hafa eftirfa andi tilmæli að leiðarljósi þegar ve sla þ rf inn til heimil sin : - Aðeins einn komi frá hverju heimil til að versla. - Vera með tilbú nn kaup list til ð innkaupin gan i hraðar fyrir sig. - Ekki oma í verslunina að nauðsynjalausu s. . með því hugarfari ð hitta m nn og ann . - Virða fj rlægðarreglur milli óskyldra aðil , þ.e. hafa .m.k tvo metra í næsta m nn. - Versla meira nn í einu svo fækka megi f rðum í búðina. - Nýta afgreiðslutíma eins og hægt er. Skagfirðingabúð og Almannavarni Norðu landi vestra 12/2020 5

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.