Feykir - 25.03.2020, Page 5
Nú er búið að slaufa
körfuboltavertíðinni og
væntanlega hefst baráttan
á parketinu ekki á ný fyrr en
með haustinu – þegar lífið og
tilveran verður væntanlega
komin í sitt gamla góða
form á ný. Feykir hefur þó
ekki enn gefist alveg upp á
dripplinu og körfuboltabrasinu
þennan veturinn og lagði því
nokkrar laufléttar spurningar
fyrir Tindastólskappann og
landsliðsmanninn Pétur Rúnar
Birgisson sem enn og aftur
sannaði mikilvægi sitt í liði
Tindastóls í vetur.
Hvernig leggst þriðja sætið
í þig og hvernig fannst þér
tímabilið hjá Stólunum? -„Það í
rauninni segir voða lítið að lenda
í 3. sæti en eins og flestir vita er
deildarkeppnin bara keppni til
að raða bestu átta liðunum upp
fyrir úrslitakeppni og 3. sæti hefði
veitt okkur heimavallarrétt í fyrstu
umferð. Þannig að ég held að við
getum verið nokkuð sáttir við þá
stöðu en auðvitað horfandi til baka
eru nokkrir leikir í vetur sem hefðu
mátt fara betur.“
Áttu Stólarnir möguleika á
að taka titilinn í vor? „Já, að
sjálfsögðu tel ég það. Úrslita-
keppnin er náttúrulega bara nýtt
mót og tel ég okkur hafa verið
á góðum stað þegar mótið var
flautað af. Þrátt fyrir lélegan leik á
móti Fjölni vorum við búnir að vinna
fimm af síðustu sex leikjum og það
var bara tilhlökkun í mönnum að
byrja alvöruna og sýna hvað við
gætum gert í seríu.“
Hvað varstu ánægður með á
tímabilinu og hvað var mest
svekkjandi? „Það er auðveldara
að tala um hvað var svekkjandi.
Það voru svona helst þessi tvö
töp á móti Fjölni og Val heima þar
sem við náðum bara ekki að sýna
neinar sparihliðar. Það sem ég var
kannski helst ánægður með er
hvernig hópurinn tæklaði þessi töp
en eftir bæði töpin fórum við í erfiða
útileiki gegn Þór Akureyri og Þór
Þórlákshöfn og klárum það. Annars
er voða erfitt að finna einhverja
toppa á tímabili sem fékk ekki einu
sinni að klárast.“
Fyrir utan Síkið, hvar er skemmti-
legast að spila? „Ég hef alltaf
kunnað vel við að spila í Keflavík.“
Hafa körfuboltamenn eitthvað
getað æft að undanförnu og
hvernig er útlitið með æfingar?
„Það er búið að blása allar
liðsæfingar af, enda kannski lítið
við þær að gera þegar það eru
einhverjir sjö mánuðir í næsta leik.
Menn geta allavega ennþá farið í
íþróttahusið og bæði skotið og lyft.
Þau sem eru að koma þangað eru
bara dugleg í því að spritta eftir sig
Pétur Rúnar Birgisson körfuboltakappi í Tindastóli
„Is this normal!?!“
( SPORTSPJALLIÐ ) oli@feykir.is
Pétur Rúnar. MYND: GG
lóð og stangir og passa að gera sitt
til að varast að ná í þessa veiru.“
Hver er aðal stuðboltinn hjá
Stólunum? „Heyrðu, það er held
ég bara einn maður sem kemur
upp og held ég að hann myndi
vera svarið hjá öllum í liðinu. Það er
Hannes Ingi Másson. Mjög gaman
að vera í kringum hann og svo er
hann náttúrlega maðurinn sem
reddar öllum myndum í rútuferðirnar
og er plötusnúður – bæði í
lyftingaklefanum og um helgar.“
Þú varst valinn í landsliðið á ný
á dögunum. Hvað tekur þú með
þér úr slíkum verkefnum? „Maður
er náttúrulega fyrst og fremst bara
gífurlega stoltur að fá tækifæri til
að spila fyrir landið sitt og tekur
maður því aldrei sem gefnum hlut.
Svo reynir maður bara að fá ráð frá
mönnum þarna og horfir á þá bæði
æfa og spila og reynir kannski að
koma einhverju yfir í sinn leik.“
Hefur ekkert skrautlegt gerst
á ferðalögum liðsins þennan
vonskuvetur? „Þessi vetur hefur nú
verið einhver sá versti sem ég hef
upplifað og voru margar ferðirnar
skrautlegar. Ég held að ferðin sem
situr mest í minninu sé bara síðasta
ferð okkar til Þorlákshafnar. Þá var
sem sagt búið að snjóa svolítið
hérna fyrir norðan og nátturulega
ekkert mokað eftir kl. 10 á kvöldin.
Bjössi [á Borg, stjórnarmaður og
rútustjóri] ákveður að skella sér
bara Þverárfjallið og drífa sig heim.
Við hefðum líklega verið fljótari
að fara Vatnsskarðið vegna þess
að Fjallið var bara allt morandi í
sköflum. Bjössi lét það svo sem
ekkert stoppa sig og keyrði duglega
í gegnum þá og menn voru svona
farnir að færa sig fram í sætin og
fylgjast með framgangi mála. Svo
allt í einu lítur Jasmin [Perkovic] við
og spyr með sinni einstaklega djúpu
rödd: „Is this normal!?!” Við svörum
náttúrulega bara: „Nei,“ og þá spyr
hann: „Then why does he drive so
fast?” Hálfsmeykur kallinn. Menn
fóru bara að hlægja og sögðu að
Bjössi væri alveg með þetta – sem
hann var náttúrulega.“
Viðskiptavinir Skagfirðingabúðar
athugið!
Vegna Covid 19 viljum við benda fólki á að hafa eftirfarandi
tilmæli að leiðarljósi þegar versla þarf inn til heimilisins:
- Aðeins einn komi frá hverju heimili til að versla.
- Vera með tilbúinn innkaupalista til að innkaupin
gangi hraðar fyrir sig.
- Ekki koma í verslunina að nauðsynjalausu s.s. með því
hugarfari að hitta mann og annan.
- Virða fjarlægðarreglur milli óskyldra aðila, þ.e.
hafa a.m.k. tvo metra í næsta mann.
- Versla meira inn í einu svo fækka megi ferðum í búðina.
- Nýta afgreiðslutíma eins og hægt er.
Skagfirðingabúð og
Almannavarnir Norðurlandi vestra
Heimsendingar frá
Skagfirðingabúð
Heimsendingar á matvöru frá Skagfirðingabúð munu
framvegis verða á þriðjudögum og fimmtudögum
og munu pantanir sem berast á mánudögum og
miðvikudögum verða afgreiddar þá daga.
Gjaldtaka verður framvegis fyrir hverja heimsendingu,
kr. 1.500 þegar verslað er fyrir kr. 0-15.000.-
en frítt ef verslað er fyrir kr. 15.000,- eða meira.
Viðskiptavinir eru vinsamlega beðnir um að ganga
frá greiðslu um leið og pantað er ef það er möguleiki.
Þá hefur verið ákveðið að engin þjónusta verði í
sérvörudeildum Skagfirðingabúðar þar til annað verður
tilkynnt. Viðskiptavinir eru beðnir um að greiða fyrir vörur
í versluninni með kortum en ekki peningum ef það er
möguleiki.
Heimsendingar frá
Skagfirðingabúð
Heimsendi gar á matvöru f á Skagfirðingabúð munu
framvegis verða á þriðjudögum og fimmtudögum
og munu pant ir sem berast á m nudögum og
miðvikudögum verða afgreiddar þá daga.
Gjaldt ka verðu framvegis fyrir hverja heimsendi gu,
kr. 1.500 þegar ve slað er fy ir kr. 0-15.000.-
en frítt ef v rslað er fy ir kr. 15.000,- eða meira.
Viðsk ptavinir eru vinsamlega beðnir um að gan
frá g eiðslu um leið og pantað er ef það er möguleiki.
Þá hefur ve ið ákveðið að engin þjónusta verði í
sérvörudeil um Skagfirðingabúðar þ til ann ð verður
tilkynnt. Viðsk ptavinir eru beðnir um að greiða fyrir vö ur
í versluninni með kortum en ekki peningum ef það er
möguleiki.
i i t i i fi i
e vi vilj vi e f l i f eftirf r i
til li lei rlj si e r versl rf i til ei ilisi s:
- ðeins einn ko i frá hverju hei ili til að versla.
- era eð tilbúinn innkaupalista til að innkaupin
gangi hraðar fyrir sig.
- Ekki ko a í verslunina að nauðsynjalausu s.s. eð því
hugarfari að hit a ann og annan.
- irða fjarl gðarreglur il i óskyldra aðila, þ.e.
hafa a. .k. tvo etra í n sta ann.
- ersla eira inn í einu svo f kka egi ferðu í búðina.
- ýta afgreiðslutí a eins og h gt er.
fir i
l r ir r rl i str
Heimsendingar frá
Skagfirðingabúð
Heimsendingar á matvöru frá Skagfirðingabúð munu
framvegis verða á þriðjudögum og fi tudögum
og munu pantanir sem berast á mánudögum og
miðvikudögum verð fgrei ar þá daga.
Gjaldtaka verður framvegis fyrir hverja heimsendingu,
kr. 1.5 þegar verslað er fyrir kr. 0-15. .-
en frítt ef verslað er fyrir kr. 15. ,- eða meira.
Viðskiptav n r eru vinsamlega beðnir um að ganga
frá greiðsl m leið og pantað er ef það er möguleiki.
Þá hefur verið ákve i að engin þjónusta verði í
sérvörudeildum Skagfirðingabúðar þar til annað verður
tilkynnt. Viðskiptav n r eru beðnir um að greiða fyrir vö u
í verslu i ni með kortum en ekki pe i gum ef það er
möguleiki.
Viðskiptavin r Skagfirðingabúðar
athugið!
Vegna Covid 19 viljum við benda fólki á að hafa eftirfa andi
tilmæli að leiðarljósi þegar ve sla þ rf inn til heimil sin :
- Aðeins einn komi frá hverju heimil til að versla.
- Vera með tilbú nn kaup list til ð innkaupin
gan i hraðar fyrir sig.
- Ekki oma í verslunina að nauðsynjalausu s. . með því
hugarfari ð hitta m nn og ann .
- Virða fj rlægðarreglur milli óskyldra aðil , þ.e.
hafa .m.k tvo metra í næsta m nn.
- Versla meira nn í einu svo fækka megi f rðum í búðina.
- Nýta afgreiðslutíma eins og hægt er.
Skagfirðingabúð og
Almannavarni Norðu landi vestra
12/2020 5