Feykir - 25.03.2020, Blaðsíða 4
Dominos-deildin | Tindastóll – ÍR 99–76
ÍR-ingar stóðu ekki
í vegi
Viðbrögð Golfklúbbs Skaga-
fjarðar
við Covid
19 hafa
verið
settar
fram á
heimasíðu
klúbbsins
gss.is en
í stuttu máli falla formlegar
4 12/2020
starfsfólki um alla Evrópu. Það
eru ansi margir tímar sem fara
í þetta starf en það er einnig
gríðarlega gefandi. Ég gegndi
starfi varaforseta samtakanna í
rúmlega ár og tók þá meira og
meira yfir ýmis verkefni, þannig
að ég hafði tíma til að aðlagast
og kynnast starfinu og einnig
þeim framtíðarmöguleikum
sem, að mínu mati, hafa ekki
verið nýttir nógu vel og sem ég
vona að okkur takist að nýta
betur á komandi árum.
Osteópatía sem heilbrigðis-
stétt er tiltölulega lítið þekkt og
við erum mun færri en til dæmis
sjúkraþjálfarar. Sem dæmi
eru rétt um 165 fullmenntaðir
osteópatar í Danmörku en
næstum 20.000 sjúkraþálfarar.
Það er ansi stór munur þar á, sem
einnig speglast í hversu margir
almennt þekkja til sjúkraþjálfara
og hversu fáir til osteópata.
Svona er staðan í flestum
löndum Evrópu og það er því
mikil vinna framundan sem
felst í að kynna okkur betur fyrir
almenningi sem heilbrigðisstétt
og einnig að ná fullri löggildingu
sem viðurkennd og löggilt
heilbrigðisstétt í allri Evrópu.
Hvernig er lífið í Kaupmanna-
höfn á þessum skrítnu tímum
COVID-19? Þetta er mikið reiðar-
Arnheiður er sjúkraþjálfari í
grunninn, lauk námi í osteó-
patíu fyrir 15 árum síðan og
meistaranámi í jákvæðri sál-
fræði 2017. Hún rekur tvær
stofur í Kaupmannahöfn ásamt
vinkonu sinni, þar sem eru átta
osteópatar starfandi. Arnheiður
hefur búið í Danmörku meira
og minna sl. 30 ár.
Osteópatar greina og með-
höndla ýmis vandamál í
stoðkerfi líkamans, vöðvum,
bandvef og liðum, með því
að vega og meta hreyfanleika
og virkni liðamóta, vöðva og
bandvefs. Osteópatar starfa líkt
og hnykkjarar og sjúkraþjálfarar
og nota margs konar aðferðir,
svo sem liðteygjur, vefja- og
vöðvameðferð, æfingar og
hnykkingar svo eitthvað sé
nefnt.
Osteópatafélag Íslands sótti
um aðild að samtökunum sl.
haust og er núna meðlimur að
EFFO (European Federation
& Forum for Osteopathy),
sem og öll osteópatafélögin á
Norðurlöndunum. Feykir hafði
samband við Arnheiði og for-
vitnaðist um hvernig forseta-
starfið legðist í hana og sömu-
leiðis áhrif COVID-19.
Hvernig leggst forsetastarfið í
þig og hvað þýðir það fyrir þig?
Þetta er mjög svo spennandi
en samtímis krefjandi verkefni,
mikil ábyrgð og vinnuálag.
Það eru reglulegir fundir og
ráðstefnur um allan heim,
fyrir utan dagleg símtöl og
rafræna fundi. Opinberlega
eru samtökin staðsett í Brussel,
en við erum með samning við
enska osteópatafélagið um ýmis
verkefni og ritaraþjónustu fyrir
samtökin. Ég verð að nefna
það hér að námið í jákvæðri
VIÐTAL
Óli Arnar Brynjarsson
Það er ekki á hverjum degi sem Króksari er kjörinn forseti í
Evrópusamtökum en sú varð þó raunin nú í byrjun mars.
Þá var Arnheiður Hanna Tómasdóttir, elsta dóttir Öllu og
Tomma í Dögun, kjörin forseti Evrópusamtaka osteópata.
Samtökin eru einu félagasamtök osteópata í Evrópu, með
ríflega 25 þúsund meðlimi undir sínum hatti, og eru
einskonar samvinnu- og hagsmunagrundvöllur fyrir öll
evrópsk osteópatasamtök.
sálfræði kemur einnig sterkt
inn í öllum þessum samskiptum
við samstarfsfólk mitt um allan
heim.
Fyrir mig persónulega þýðir
starfið að ég get haft áhrif á og
stuðlað að aukinni þekkingu
almennings á sjálfu faginu og
gert mitt til að aðstoða meðlimi
okkar, sem eru að vinna að
fullri löggildingu á okkar fagi
(osteópatíu) sem viðurkenndri
heilbrigðisstétt, um alla Evrópu.
En við fengum einmitt fulla
löggildingu á osteópatíu sem
viðurkenndri heilbrigðisstétt
hér í Danmörku í júlí 2018.
Fyrir utan allt þetta praktíska,
sem er mjög spennandi, þá
verð ég líka að nefna að það
er svakaleg samstaða hjá
osteópatafélögunum í sam-
tökunum. Allir vilja hjálpa til,
ef hægt er að miðla reynslu af
verkefnum sem og öðru sem
hægt er að nýta á einhvern hátt.
Það er hátt til lofts og enginn
heldur að sér upplýsingum sem
mögulega gætu nýst öðrum
félögum í daglegu starfi.
Hvers konar samtök eru þetta
og eru meðlimir margir? EFFO
eru semsagt samvinnu- og hags-
munasamtök fyrir öll evrópsk
osteópatasamtök og landssam-
tök osteópata frá Kanada og
Ísrael eru einnig meðlimir hjá
okkur. Við erum eins konar
regnhlífasamtök fyrir öll þessi
landssamtök. Það eru yfir 25
þúsund meðlimir í EFFO, frá 24
löndum.
Í hverju felast störf forseta í
svona umsvifamiklum samtök-
um? Forsetinn er andlit sam-
takanna og stjórnarinnar út
á við og eins og ég kom inn
á hér fyrr þá eru reglulegir
stjórnarfundir og ráðstefnur um
allan heim sem ég þarf að sækja
sem fulltrúi félagsins. Svo eru
dagleg símtöl þar sem ég svara
hinum ýmsu fyrirspurnum
og rafrænir fundir með sam-
Spjallað við Arnheiði Hönnu Tómasdóttur í Danmörku
Króksari kjörinn f rse i
Evrópusamtaka osteópata
Arnheiður í Lissabon eftir að hafa tekið við formennsku á aðalfundi EFFO.
AÐSEND MYND
slag fyrir allt samfélagið hér í
Danmörku. Það er svakalegt
álag á öllu heilbrigðiskerfinu í
heildina og þetta hefur þegar
verið mikið högg fyrir allt
atvinnu- og efnahagslíf og hefur
víðtæk og mikil áhrif á Dani
almennt. Allt heilbrigðiskerfið,
sem og stjórnmálamennirnir
– og konurnar, eru að mínu
mati að standa sig svakalega vel.
Það er verið að ganga frá um-
fangsmikilli fjárhagslegri hjálp
frá hinu opinbera við stærri
sem minni fyrirtæki, sem og
sjálfstæða atvinnurekendur.
Mér finnst alveg ótrúlegt
hversu vel er staðið að þessum
aðgerðum hjá hinu opinbera
og hef fulla trú á að allt sé og
verði reynt og framkvæmt
sem hægt er til að styðja við
bakið á öllum sem þurfa á því
að halda. Ég er mjög þakklát
fyrir alla þessa samstöðu sem
við erum að upplifa, allsstaðar
í samfélaginu. Það eru margir
að vinna sjálfboðavinnu, versla
fyrir nágranna og hjálpa þeim
sem ekki geta bjargað sér sjálfir.
Hverju hefur veirustríðið breytt
hjá þér í daglegu lífi og hvaða
áhrif hefur þetta á störf þín sem
forseta osteópata í Evrópu?
Síminn hringir látlaust, bæði
sjúklingar og meðlimir danska
osteópatafélagins, en ég gegni
einnig stöðu sem formaður
danska osteópatafélagsins, sem
og samstarfsmenn og meðlimir
EFFO. Ég sit föst fyrir framan
tölvuna og er í stöðugum sam-
skiptum við meðlimi, bæði hér
í Danmörku og um alla Evrópu,
og geri hreinlega ekki annað.
Við lokuðum okkar osteópatíu-
stofum, í Frederiksberg og á
Østerbro, sl. fimmtudag. Við
erum átta osteópatar sem
störfum þar og við verðum
allavega með lokað fram til 30.
mars. Eftir þann tíma verðum
við að vega og meta hvort við
getum mögulega réttlætt að
meðhöndla sjúklinga út af
smithættu.
Ég vona að ástandið batni
hratt svo þetta hafi ekki eins
víðtæk áhrif og ég er því miður
hrædd um. Hér er búist við að
ástandið vari vel fram á sumar.
Allir fundir eru því rafrænir og
öllum ferðum náttúrlega aflýst.
Ég átti að vera í London í byrjun
vikunnar á fundum og í næstu
viku í Aþenu en þessu var og er
að sjálfsögðu öllu aflýst. Við rétt
náðum að halda aðalfund EFFO
í Lissabon í Portúgal í byrjun
mars. Svo verðum við bara að
sjá hvert horfir!
Ég vona það besta, fyrir okkur
hér í Danaveldi sem og heima á
Krók, já og á landinu öllu.
Er forseti EFFO kjörinn til eins árs í senn? Sem
stjórnarmeðlimur EFFO er maður kjörinn inn í stjórn í þrjú
ár í senn. Ég var kjörin í stjórn EFFO 2018. Fyrsta rúmlega
hálfa árið sá ég um almannatengsl, svo gengdi ég starfi
varaforseta þangað til núna í byrjun mars. Núna þarf ég að
sýna mig og sanna næsta árið svo að meðlimum EFFO finnist ég verðskulda
kosningu og forsetaembættið aftur að ári.
Hvað heita stofurnar í Köben? Stofan okkar heitir Q klinik og er á Frederiks-
berg og svo erum við med litla stofu í heilsuhúsi Family Zoo á Østerbro. Við
sérhæfum okkur í meðhöndlun á konum, ófrískum konum sem og konum sem
að hafa fætt, og ungabörnum. | Sjá nánar á > www.qklinik.dk
Q