Feykir


Feykir - 25.03.2020, Blaðsíða 2

Feykir - 25.03.2020, Blaðsíða 2
Undanfarna daga hef ég fylgst með fjölmiðlafundum þeirra Viðars, Ölmu og Þórólfs þar sem upplýsingum varðandi kórónuveirufaraldurinn er komið til skila á skýran og hnitmiðaðan hátt. Eins og svo margir aðrir get ég ekki annað en dáðst að þessu þríeyki sem af yfirvegun og stóískri ró flytur okkur staðreyndir og leiðbeinir fólki á þessum tímum sem kannski eru þrátt fyrir allt ekki alveg fordæmalausir en þó þannig að núlifandi fólk man ekki aðra slíka. Mér finnst alveg með ólíkindum hvað þetta fólk er búið að standa sig vel og lætur engan bilbug á sér finna þó verkefnin séu ærin. Hvað eftir annað furða ég mig á því hvað þau bregðast kurteisislega og vel við misgáfulegum spurningum fjölmiðlamanna sem mér þykir, oft á tíðum, spyrja bara til að spyrja, oft að hlutum sem margoft hefur verið spurt um eða hefur jafnvel komið fram í erindum manna rétt áður. Gagnrýni er til góðs, allavega ef hún er sett fram á málefnalegan hátt. Þessi þrjú fyrrnefndu hafa aldeilis fengið sinn skerf af henni, það er óhætt að segja. Ég hafði engan veginn gert mér grein fyrir hvað ég ætti, í hópi Fésbókarvina, marga sóttvarnasérfræðinga, veirufræðinga, smitsjúkdóma- fræðinga, faraldsfræðinga og hvað þetta nú allt saman heitir. Ég ætlaði í fyrstu að slást í þeirra hóp, var að vísu ekki farin að tjá mig opinberlega en hafði ákveðnar skoðanir á „andvaraleysi“ sóttvarnalæknis. Mér hefur hins vegar algjörlega snúist hugur og ég verð að segja að ég er þeirrar skoðunar að við ættum að treysta þeim sem þekkingu hafa á málunum. Ég geri mér reyndar grein fyrir því að það er gjarnan hræðsla sem knýr fólk áfram í gagnrýni sinni. Hræðslan við að viðkvæmir ástvinir gætu tekið sóttina og óöryggið sem hræðslunni fylgir. Þetta eru að sjálfsögðu alveg eðlileg viðbrögð. En við skulum samt hafa það hugfast að í gegnum tíðina hefur fræðsla alltaf skilað jákvæðari og betri árangri en hræðsluáróður. Ég get ekki látið hjá líða hér að hrósa starfsfólki grunn- og leikskóla fyrir þeirra frábæru vinnu við að skipuleggja starf skólanna alveg upp á nýtt eftir að samkomubann tók gildi. Þar liggur svo sannarlega mikil vinna á bak við og ótal mörg horn sem þarf að líta í. Ég hef hins vegar grun um að ekki hafi allir áttað sig á því og stjórnendur hafi í sumum tilfellum þurft að sitja undir óréttmætri gagnrýni. Mér finnst að við ættum að hafa það hugfast að við þurfum öll að hjálpst að við að gera þessa tíma sem léttbærasta. Það gerum við með því að horfa bjartsýn fram á veginn, aðstoða og hughreysta náungann þurfi hann á því að halda og hrósa því sem vel er gert. Svo er líka bráðnauðsynlegt að taka COVID-lausan tíma öðru hvoru eins og Víðir Reynisson hvatti til á dögunum. Fríða Eyjólfsdóttir, blaðamaður LEIÐARI Fræðsla eða hræðsla Lítill afli barst á land í höfnum landshlutans í síðustu viku enda veðurfar ekki upp á marga fiskana og auk þess lönduðu togararnir Málmey og Drangey í Grundarfirði að þessu sinni. Grásleppuveiðar eru nú að hefjast og lönduðu fjórir grásleppubátar á Sauðárkróki rúmum ellefu tonnum. Á Skagaströnd lönduðu tveir bátar tæpum 20 tonnum og á Hvammstanga landaði einn bátur sem var með rúm 400 kíló. Heildarafli vikunnar var aðeins 31.407 kíló. /FE Aflatölur 15.– 21. mars 2020 Lítill afli á land á Norðurlandi vestra SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SAUÐÁRKRÓKUR Fannar SK 11 Grásleppunet 2.484 Hafey SK 10 Grásleppunet 3.532 Kaldi SK 121 Grásleppunet 2.756 Steini G SK 14 Grásleppunet 2.437 Alls á Sauðárkróki 19.784 SKAGASTRÖND Onni HU 36 Dragnót 18.639 Sæfari HU 212 Landbeitt lína 1.145 Alls á Skagaströnd 11.209 HVAMMSTANGI Harpa HU 4 Dragnót 414 Alls á Hvammstanga 414 Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Sameining sveitarfélaga á Norðurlandi vestra Ekki tímabært að ráðast í víðtækari sameiningarviðræður Á síðasta fundi sam- einingarnefndar Austur- Húnavatnssýslu var samþykkt að bjóða öðrum sveitar- félögum á Norðurlandi vestra, þ.e. Akrahreppi, Húnaþingi vestra og Sveitarfélaginu Skagafirði, aðild að sam- einingarviðræðunum og var þeim sent erindi þess efnis. Erindið var tekið fyrir á fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 11. mars sl. Í fundargerð segir að þrátt fyrir að byggðarráð Sveitarfélagsins Skaga- fjarðar sé jákvætt fyrir frekari sam- einingum sveitarfélaga á Norðu- rlandi vestra telji það þó „að eðlileg næstu skref af þess hálfu séu viðræður um sameiningu sveitar- félaganna í Skagafirði.“ Erindið var einnig lagt fram á fundi hreppsnefndar Akrahrepps þann 4. mars sl. og var afgreiðslu þess frestað til næsta fundar. Húnaþing vestra fjallaði um erindið á síðasta fundi sínum sem haldinn var mánudaginn 16. mars sl. Telur byggðarráðið eðlilegt að áður en víðtækar og á margan hátt flóknar sameiningar sveitarfélaga í öllum landshlutanum komi til umræðu verði reynt á sam- einingarvilja þeirra sveitarfélaga í landshlutanum sem eigi að baki áratugalangt og náið samstarf innan afmarkaðra svæða hans. Því má ætla að ekki verði breytingar á fjölda þeirra sveitar- félaga sem að sameiningarvið- ræðum standa, að svo komnu máli. /FE Framkvæmdasjóður ferðamannastaða Vonbrigði með synjun á styrk Fyrr í þessum mánuði úthlutuðu Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fjármunum til uppbyggingar innviða, náttúru- verndar og annarra verkefna á ferðamanna- stöðum árið 2020. Til verkefna á Norðurlandi vestra var úthlutað 33,8 milljónum úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða en aðrir landshlutar fengu umtalsvert meiri fjármuni í sinn hlut. Á fundi Byggðaráðs Blönduósbæjar í síðustu viku var svohljóðandi bókun samþykkt í framhaldi af erindi frá Ferðamálastofu þar sem fram kom synjun um styrk úr Framkvæmdasjóði ferða- mannastaða. „Byggðaráð Blönduósbæjar lýsir yfir miklum vonbrigðum yfir því að umsókn sveitarfélagsins um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða skuli synjað, sérstaklega með tilliti til þess að mikil þörf er á uppbyggingu ferðamannastaða á svæðinu. Þá er bent á það hróplega ósamræmi sem er í úthlutun þessa árs, á milli landshluta, þar sem til Norðurlands vestra kemur aðeins 34 milljónir af heildarfjárhæð sem er rúmlega 500 milljónir.“ Var sveitarstjóra falið að óska eftir rökstuðningi fyrir ákvörð-uninni, samkvæmt þeim leiðbeiningum sem fram koma í erindinu. /FE COVID-19 I Samkomubann Sæluviku Skagfirðinga frestað Vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar og tilmæla Almannavarna ríkisins hefur verið tekin sú ákvörðun að fresta Sæluviku Skagfirðinga sem fara átti fram vikuna 26. apríl – 3. maí 2020. Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar kemur fram að til skoðunar er að halda Sæluviku Skagfirðinga á haustmánuðum eða þá mögulega að færa til næsta árs. Verður ákvörðun tilkynnt síðar. „Sveitarfélagið Skagafjörður biðlar til íbúa að fara að öllu með gát og fylgja fyrirmælum almannavarna. Við erum öll almannavarnir,“ segir á skagafjordur.is. /PF 2 12/2020

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.