Feykir


Feykir - 25.03.2020, Síða 10

Feykir - 25.03.2020, Síða 10
Allir spila úr þeim spilum sem á hendi eru Eins og öllum er kunnugt hefur fjöldi fólks þurft að laga sig að breyttum aðstæðum á tímum þess illskeytta faraldurs sem nú gengur yfir heimsbyggðina. Í kjölfar samkomubanns á Íslandi og viðtækra smitvarna hefur samkomuhald lagst af og félagsstarfsemi almennt. Fyrirtæki skipuleggja starfsemi sína upp á nýtt, víða vinnur helmingur starfsmanna heima meðan hinn helmingurinn mætir á vinnustað, aðrir hafa möguleika á að nýta annað húsnæði fyrir hluta starfs- manna og svo má áfram telja. Víða á landsbyggðinni eru skólarnir með stærstu vinnu- stöðum samfélagsins. Leikskólar og grunnskólar starfa áfram í samkomubanni og hafa flestir þurft að ráðast í umfangsmiklar skipulagsbreytingar til að uppfylla þær reglur sem settar hafa verið. Nemendur þurfa að læra nýjar umgengnisreglur og gefur að skilja að þeir yngstu gætu átt í erfiðleikum með að átta sig á í hverju þær felast. Feykir skoðaði lítillega hvernig starfsemi grunnskólanna hefur verið þessa rúmu viku síðan samgöngubannið skall á. Fróðlegt er að sjá hvernig hver skóli spilar úr þeim spilum sem hann hefur á hendi og er eins misjafnt og skólarnir eru margir hvernig formið er á skipulaginu. Þegar þetta er skrifað hefur greinst smit í einum grunnskóla, Grunnskóla Húnaþings vestra. Þar eru allir nemendur og starfsmenn í sóttkví til og með 30. mars og hefur starfsfólk verið í sambandi við nemendur með hjálp tækninnar og sinnt aðstoð við þá gegnum netið. Grunur um smit í Höfðaskóla Í Höfðaskóla á Skagaströnd kom upp grunur um smit í gær og var strax tekin ákvörðun um að færa kennslu alfarið yfir í fjarkennslu frá og með deginum í dag (miðvikudegi). Mun það fyrirkomulag vara á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr sýnatöku. Þar voru nemendur yngsta stigs heima í síðustu viku og miðstig átti að vera heima í þessari viku. Nemendur elsta stigs tóku sig til í síðustu viku og gengu milli húsa og mokuðu snjó frá dyrum, af göngustígum og frá ruslafötum hjá fólki. Í Árskóla hefur elstu nemendunum, í 7.-10. bekk, verið kennt að mestu í fjarnámi. Aðrir nemendur hafa komið í skólann á mismunandi tíma og þeir ganga inn um mismunandi innganga hússins til að koma í veg fyrir samskipti þeirra á milli. Skólaakstur innanbæjar fellur niður og ekki er boðið upp á morgunverð eða hádegismat í skólanum. Því þurfa nemendur í 1.-6. bekk að koma með nesti að heiman sem þeir snæða í stofunum. Í Blönduskóla er kennt frá 8:00 til 12:00 alla daga og er árgöngum kennt hverjum í sinni stofunni og einnig í íþróttamiðstöð, eins dreift og hægt er. Hver námshópur verður að vera í sinni stofu allan skólatímann fyrir utan útiveru og má ekki blandast öðrum hópum. Í Blönduskóla hefur verið lögð áhersla á útiveru og útikennslu á hverjum degi og nýttu flestir bekkir sér hvalrekann sem varð í síðustu viku og skoðuðu hann. Einnig hefur snjórinn, sem nóg er af, verið nýttur vel til húsbygginga. Í Varmahlíðarskóla hefur nemendum verið skipt upp þannig að ekki mæta allir nemendur í skólann alla daga. Yngsta stig mætir alla daga og miðstig alla daga nema einn. Eldri nemendur eru meira heima en allir fá einhverja skóladaga ásamt því að verið er að þreifa sig áfram með fjarkennslu og hefur gengið vel. Lögð er áhersla á útivist og hreyfingu undir stjórn íþróttakennara. Ekki er boðið upp á morgunmat en hádegisverður er borinn fram í kennslustofunum. Í Húnavallaskóla er kennt frá klukkan 8:30 til 13:00 og er nemendum kennt í þremur námshópum. Þeim er haldið aðskildum og fær hver hópur sinn tíma í morgunmat, hádegismat og útiveru. Í skólabíl eiga nemendur sem koma frá sama bæ að sitja saman og lögð er áhersla á að nemendur hafi þvegið sér vel með sápu og sprittað áður en farið er í bílinn. Hluti nemenda Húnavallaskóla hefur verið í fjarkennslu þessa daga. Í Grunnskólanum austan Vatna á Hofsósi hefur verið hægt að bjóða upp á heila skóladaga þar sem aðstaða í félagsheimilinu spilar stórt hlutverk. Skólahúsnæðinu er skipt upp í tvö aðskilin svæði með sitt hvoru starfsmanna- teyminu og þriðja hópnum er kennt í félagsheimilinu, alveg aðskilinn frá öðrum nemendum. Þá er matsal í félagsheimili skipt í tvö aðskilin svæði fyrir yngsta- og miðstig sem borða á mismunandi tímum en eldra stig borðar í öðrum sal. Í starfsstöð skólans á Hólum hefur verið hægt að halda nær óbreyttu skipulagi utan þess að enginn samgangur er milli leik og grunnskóla. Auk þess er enginn samgangur kennara Hofsóss og Hóla meðan þetta ástand varir. Sem víðar er lögð mikil áhersla á útivist og fær hver hópur eina kennslustund á dag. Eins og sjá má hefur alls staðar verið afar vel að verki staðið og starfsfólk skólanna lagt mikinn metnað í að tryggja nemendum sínum eins lítið rask og unnt er við þessar erfiðu aðstæður. /FE Skólarnir leggja mikla áherslu á útiveru með nemendum sínum meðan íþróttatímar liggja niðri og víða er snjórinn nýttur til skemmtunar. Hér eru nemendur á Hofsósi í útivist með kennara sínum. MYND: KRISTÍN SIGURRÓS EINARSDÓTTIR Skólastarf á tímum COVID-19 Sungið fyrir heimilisfólk HSN COVID-19 | Tónleikar í skugga veiru Heimilisfólk Heilbrigðis- stofnunar Norðurlands á Sauðárkróki hefur verið í afar vernduðu umhverfi síðustu vikurnar en heimsóknarbann var sett á og hefur verið í gildi í nokkurn tíma. Til að brjóta daginn upp hefur fólkinu verið boðið á gluggatónleika þar sem hópur tónlistarfólks mætti sl. laugardag og söng að fyrirmynd annarra lista- manna sem hafa einmitt stillt saman strengi og skemmt fólki sem sæta þarf fyrirmælum almannavarna um að sitja í nokkurs konar sóttkví meðan Covid 19 ógnar heilsu þjóðarinnar og alls heimsins. Þá arkaði 3. bekkur Árskóla upp á Spítalahæðina og söng fyrir fólkið lög úr Kardi- mommubænum en krakk- arnir höfðu æft vel og lengi fyrir árshátíð sína sem vera átti sl. mánudag í Bifröst en ekki orðið af vegna samkomubanns. Á Face- book-síðu skólans segir að veðrið hafi ekki spilað með þeim en það létu krakkarnir ekki á sig fá og sungu af innlifun. /PF Þrátt fyrir að dag sé tekið að lengja getur verið napurt á útitónleikum í mars. MYND: PF 10 12/2020

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.