Feykir - 06.05.2020, Síða 3
Tónlist Ouse sótt
1,4 milljón sinnum á mánuði
Íslenska tónlistarútgáfan Alda Music fékk á
dögunum úthlutað 300 þúsund krónum úr
Hljóðritasjóði til að gefa út EP plötu á
íslensku með hinum skagfirska Ouse, eða
Ásgeiri Braga Ægissyni. Alls bárust 117
umsóknir frá mismunandi greinum tónlistar
og var um metfjölda umsókna að ræða en
sótt var um styrki að upphæð 89.527.974 kr.
Á heimasíðu menntamálaráðuneytisins kemur
fram að samtals hafi verið veitt 18.000.000 kr.
til 67 mismunandi hljóðritunarverkefna. Skipt-
ast styrkveitingar þannig að 39 þeirra fara til
ýmiss konar rokk-, hip-hop- og popp-verkefna,
22 styrkveitingar til samtímatónlistar, raftón-
listar og annarrar tónlistar af ýmsum toga og
sex jazzverkefni voru styrkt.
Vinsældir Ásgeirs Braga á tónlistarrásum
Alnetsins hafa verið með eindæmum en á
Spotify má sjá að tónlist hans er sótt tæplega 1,4
milljón sinnum á mánuði og er hann með
rúmlega 45 þúsund fylgjendur, á þeirri
streymisveitu einni.
„Já, ég er einmitt núna að vinna í enskri
plötu en er búinn svona 90% að klára íslensku
plötuna. Mig vantar bara nokkra íslenska
artista til að vera með mér í þessum lögum.
Lögin eru á íslensku og eru meira eða minna
bara mjög svipuð lögunum mínum á ensku.
Eini munurinn er sá að ég kann mikið flottari
og skemmtilegri orð á íslensku, þannig að ef
eitthvað er þá er textinn bara betri þannig,“
segir Ásgeir Bragi.
Til stóð að Ouse kæmi fram á tónleikum í
Bandaríkjunum í vor en vegna Covid ástands
gat ekki orðið af því. „Já, það voru mörg plön
hjá mér árið 2020. Spila á tónleikum, hitta
artista og fólk frá stórum útgáfufyrirtækjum, en
aðallega til að fara í túr með vini mínum,
Powfu, sem núna er einn vinsælasti tónlistar-
maður í heiminum. Þessi veira hefði ekki getað
komið á verri tíma fyrir mig.“ /PF
Ásgeir Bragi vinsæll á Spotify
Hvammstangi
Dýpka þarf höfnina
Á fundi byggðarráðs
Húnaþings vestra fyrir
skömmu gerði Björn
Bjarnason, rekstrarstjóri
umhverfissvið, grein fyrir
ástandi Hvammstangahafnar
þar sem komið hafði í ljós að
ráðast þurfi í dýpkunarfram-
kvæmdir þar sem áburðar-
skip tók niður í hafnar-
mynninu í apríl.
Í bókun ráðsins kemur fram
að það telji afar mikilvægt að
farið verði í dýpkunarfram-
kvæmdir á árinu þar sem ljóst
þykir að sandur heldur áfram
að safnast í höfnina með þeim
afleiðingum að mögulega verði
hún ófær næsta vor fyrir stærri
skip. Óskað verður eftir því við
Vegagerðina að hún taki þátt í
kostnaði við framkvæmdina
vegna mikilvægis hafnarinnar
fyrir flutninga inn á svæðið.
Bendir byggðarráð á að
reynslan sýni að dýpka þarf
höfnina á tveggja til þriggja ára
fresti og leggur því áherslu á að
dýpkun hafnarinnar komist
inn á samgönguáætlun sem og
eðlilegt viðhald hafnarmann-
virkja á Hvammstanga. /PF
COVID-19 | Blönduósbær
Samstaða allra mikilvæg
Á heimasíðu Blönduósbæjar hvetur Valdimar
O. Hermannsson, sveitarstjóri, íbúa að slaka
ekki á, þó komið sé sumar, því mikilvægt sé
að fylgja í einu og öllu leiðbeiningum
stjórnvalda. Hann segir gott að
finna fyrir þeirri samstöðu sem ríki
í samfélaginu og minnist á að ekki
hafi enn komið upp staðfest smit í
A-Hún.
„Starfið í Leikskólanum Barnabæ,
mun frá og með 4. maí, verða að
mestu eins og áður var en áhersla
verður áfram á aukið hreinlæti og
þrif, og minni umgangi um skólann
og á milli deilda. Blönduskóli mun
áfram verða með breytta starfsemi og
verður það kynnt nánar í þessari
viku. Gefnar verða út tilkynningar og
leiðbeiningar beint frá skólunum þegar allar
breytingar verða.
Skrifstofa sveitarfélagsins er ennþá lokuð fyrir
almennri afgreiðslu, en leitast er við að leiðbeina
og svara öllum erindum í gegnum síma, eða með
tölvupósti. Sjá á www.blonduos.is
Á meðan þetta ástand varir þurfum við öll að
standa saman og sýna samfélagslega ábyrgð í því
hvernig við heftum frekari útbreiðslu
á COVID-19. Við þurfum að huga
sérstaklega að þeim íbúum sem eru
veikir fyrir og leggja okkur fram um
að aðstoða þá sem þess þurfa, bæði
þeim sem eldri eru og búa einir, en
eins þeim íbúum sem eru af erlendum
uppruna.
Ég vil nota þetta tækifæri til þess
að þakka öllum íbúum Blönduós-
bæjar fyrir samheldnina og sérstak-
lega þeim sem eru í framlínunni, hjá
almannavörnum, í heilbrigðis-
þjónustu og öðrum. Við munum fara
í gegnum þetta saman, fylgja
leiðbeiningum og fyrirmælum stjórnvalda og
höfum í huga að þetta er tímabundið ástand þar
sem samstaða okkar allra er mikilvæg,“ skrifar
Valdimar á blonduos.is. /PF
COVID-19 | Nýprent og Feykir breyta
Styttri afgreiðslutími
fyrirtækjanna
Vegna Covid áhrifa og
breyttra aðstæðna í þjóð-
félaginu verða breytingar á
starfsemi Nýprents og Feykis
næstu þrjá mánuðina.
Vegna minnkaðs starfshlut-
falls starfsfólks verður af-
greiðslutími styttur en opið
verður milli klukkan 8 og 12
alla daga.
Lesendur Feykis mega eiga
von á örlítið minna blaði frá og
með næsta útgáfudegi meðan á
þessu stendur. Fólk er hvatt til
þess að senda auglýsingar og
til-búnar fréttatilkynningar á
net-föngin nyprent@nyprent.is
og/eða feykir@feykir.is.
Beðist er velvirðingar á
þeim óþægindum sem þetta
getur valdið. /PF
H Ö N N U N P R E N T U N S K I L T A G E R Ð
Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Valdimar O. Hermannsson,
sveitarstjóri Blönduóss.
Skagfirðingabók 40
Skagfirðingabók ársins 2020 kom
úr prentun í byrjun apríl sl. en
vegna ástandsins í þjóðfélaginu
var ákveðið að dreifa henni ekki
fyrr en í haust, væntanlega í byrjun
september, enda kemur ekki önnur
bók frá félaginu á þessu ári.
Við biðjum áskrifendur og velunnara
bókarinnar að hafa biðlund og afsaka
þessa töf sem til er orðin vegna
óviðráðanlegra orsaka.
18/2020 3
Á Twitter birti Björgvin Ingi Ólafsson þetta athyglisverða graf en á því sést að Ásgeir Bragi, eða Ouse, er sjöundi vinsælasti
íslenski listamaðurinn á Spotify, nær jafnfætis nafna sínum Ásgeiri Trausta. Ouse er á innfelldu myndinni.