Feykir - 01.07.2020, Síða 8
Grafarkirkja
Helgistund í kvöldblíðu
Grafarkirkja á Höfðaströnd er meðal elstu húsa á
Íslandi en vitað er að Gísli Þorláksson Hólabiskup
(1657-1684) mun hafa látið reisa Grafarkirkju eða
a.m.k. gera á henni endurbætur á síðasta fjórðungi
17. aldar.
Á vef Þjóðminjasafnsins segir að kirkjan sé að
byggingarlagi fornfálegust þeirra íslensku torfkirkna
sem varðveist hafa og hafi timburgrind hennar sérstöðu
meðal torfkirkna. Grindin er með stafverki og kirkjan er
í raun eina varðveitta stafkirkja landsins. Helgistund var
í kirkjunni sl. sunnudagskvöld en hefð er fyrir því að
messa þar einu sinni á sumri.
Um 50 manns mættu til kirkju þar sem sr. Halla Rut
Stefánsdóttir þjónaði og faðir hennar, Stefán R. Gísla-
son, lék á harmóniku undir almennan safnaðarsöng.
Að stundinni lokinni var boðið upp á kaffi og nutu
kirkjugestir kvöldsins í veðurblíðunni. /FE
Ert þú
áskrif-
andi?
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455
7176 og netfangið feykir@feykir.is
26
TBL
1. júli 2020 40. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Stórlygarar
Þjóðsögur Jóns Árnasonar
Jón tófusprengur segir sögur
Kútmagarnir
Eitt sinn réri ég undan Eyja-
fjöllum og var á Raufarfelli.
Einn sunnudags-morgun
suðum við kútmaga og voru
yfrið góðir. Ég vissi að konu
minni þóttu heitir kútmagar
mesta sælgæti. Þá datt mér í
hug að færa henni nokkra
upp úr suðunni. Ég tók Rauð
minn, setti logandi kútmaga
í mal minn og reið af stað. Rauður var ólúinn og fór
geyst yfir. Þegar ég kom heim á hlaðið hjá mér í
Eystrihrepp greip ég malinn og hljóp inn. Þá heyrði ég
að enn kurraði suðan í kútmögunum og höfðu ekki
kólnað meira en svo á leiðinni og er þó vegurinn yfir
hálfa aðra þingmannaleið. Góður var sá rauði! /PF
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
18
TBL
6. maí 2020 40. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Steinni n á melnum
Eitt sinn var ég fyrirvinna hjá
ekkju í Borgarfirði, Það var
einn vetur að mikill svell-
gaddur var á jörðu. Þá gerði
di mviðri svo mikið að eng-
u manni var ratandi. Hestar
vor úti og var hjá þeim eitt
trippi sem ég óttaðist að
mundi drepast.
Ég réðst út í veðrið og fann hestana. Brá ég bandi
um háls trippinu og hélt heimleiðis með það, en vissi
ekki hvað ég fór. Eitt sinn kom ég á svellbumbu og
ætlaði þar mundi þó vera undir melur. Mér kom til
hugar ef ég næði til melsins mundi ég þekkja hann;
lagðist ég þá niður og tók að grafa svellið með hendinni.
Ég herti mig og klóraði svellið þangað [til] ég kom
handleggnum niður upp að öxl; þá fann ég þar
hnefastein, tók hann upp og þekkti á hvaða mel hann
átti að liggja. Fyrir þetta náði ég heim og varð það mér
til lífs og trippinu.
Þjóðsögur Jóns Árnasonar
Jón tófusprengur segir sögur
Stórlygarar
Það var blíðan sl. sunnudag á Norðurlandi vestra
og margir notuðu tækifærið og viðruðu sig pínu-
lítið. Blönduósingurinn Róbert Daníel Jónsson
tók sig til og gekk á Tindastól ásamt Ernu konu
sinni og hundinum Hrappi en þau fóru upp að
Einhyrningi syðri sem er í 795 metra hæð og
útsýnið hreint magnað.
Róbert og Erna eru bæði vant útivistarfólk en þau
lögðu af stað að morgni og voru tvo og hálfan tíma í
ferðinni. Leiðin er 6,3 kílómetrar fram og til baka.
Róbert segir að leiðin sé vel stikuð. „Færðin var
nokkuð góð en eins og oft á þessum tíma er ennþá
smá drulla því jarðvegur á smá í land að þorna. Samt
ekki það slæmt,“ tjáði Róbert Feyki.
Hann var að sjálfsögðu með myndavélina með sér
og tók að venju magnaðar myndir á göngunni sem
hann gaf Feyki góðfúslegt leyfi til að birta. /ÓAB
Myndasyrpa frá Róberti Daníel Jónssyni
Tjillað á toppi Tindastóls
Grásleppuveiðar stöðvaðar
Við sjávarsíðuna
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, hefur undirritað reglugerð um stöðvun
veiða á grásleppu á þessu fiskveiðiári. Ástæðan er að
fyrirséð er að veiðarnar muni fljótlega nálgast ráðgjöf
Hafrannsóknastofnunar um að heildarafli á þessu
fiskveiðiári verði ekki meiri en 4.646 tonn. Frá þessu
er greint á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytisins.
Í reglugerðinni kemur fram að grásleppuveiðar verða
bannaðar frá og með miðnætti aðfaranótt sunnudagsins
3. maí sl. Hins vegar verði heimilt að gefa út leyfi til
grásleppuveiða í allt að 15 daga til þeirra sem stunduðu
grásleppuveiðar árin 2018 eða 2019 á Breiðafirði, svæði
2, samkvæmt leyfum sem tóku gildi 20. maí þau ár eða
síðar. Er þetta gert til að koma til móts við grásleppu-
sjómenn sem stunda munu veiðar á þessu svæði en þær
veiðar verða ekki heimilar fyrr en 20. maí nk.
„Hafrannsóknastofnun gaf út 4.646 tonna ráðgjöf
fyrir veiðar á grásleppu á þessu fiskveiðiári. Með þessari
reglugerð er verið að tryggja að veiðarnar verði sem best
í samræmi við vísindalega ráðgjöf og það er mikilvægt
fyrir alla hlutaðeigandi. Ekki síst til að tryggja að þær
vottanir sem fyrir liggja tapist ekki,“ segir Kristján Þór
Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í frétt
á vef ráðuneytisins. /FE
H Ö N N U N P R E N T U N S K I L T A G E R Ð
Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
BREYTTUR AFGREIÐSLUTÍMI!!
Afgreiðsla Nýprents verður opin
frá kl. 8 -12 í sumar.
MYNDIR: RÓBERT DANÍEL JÓNSSON
Við höfnina á Skagaströnd. MYND:FE
www.skagafjordur.is
Laust starf verkefnastjóra
á fjölskyldusviði
Fjölskyldusvið óskar eftir að ráða verkefnastjóra.
Starfið heyrir beint undir sviðsstjóra fjölskyldusviðs en
viðkomandi mun einnig vinna í nánu samstarfi við sviðsstjóra
stjórnsýslu- og fjármálasviðs. Helstu verkefni eru: Umsjón með
gerð fjárhagsáætlunar (ásamt sviðsstjóra), rekstrareftirlit,
fjárhagsgreiningar o.fl. Í starfinu felst einnig umsjón með ýmsum
samskiptum, umsóknum, samningum, útreikningum
og utanumhaldi á verkefnum, sem og önnur verkefni
sem honum eru falin af sviðsstjóra.
Leitað er eftir lausnamiðuðum og metnaðarfullum einstaklingi með
háskólamenntun sem nýtist í starfi. Menntun/reynsla af félagsþjónustu eða
fræðslumálum er kostur. Viðkomandi þarf að hafa mikla færni í helstu forritum,
sérstaklega excel. Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til
að vinna undir álagi og í teymum.
Nánari upplýsingar um starfið sem og menntunar- og hæfniskröfur má finna á heimasíðu
sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Einnig veitir Herdís Á Sæmundardóttir,
sviðsstjóri fjölskyldusviðs, nánari upplýsingar í síma 455 6000 eða has@skagafjordur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 19. júlí 2020. Sótt er um starfið í íbúagátt sem finna má á
heimasíðu sveitarfélagsins. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá, afrit af
prófskírteini ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur
fyrir hæfni viðkoamandi í starfið. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
MYNDIR: VILHJÁLMUR STEINGRÍMSSON MYND: KRISTÍN S. EINARSDÓTTIR