Feykir - 02.12.2020, Page 2
Mannskepnan er undarlegt dýr, svo ekki sé fastar kveðið að
orði. Í gegnum tíðina hafa samfélög mótast af þeim sem
mestu forystuhæfileikana hafa eða alla vega verið með
völdin hverju sinni. Sumt hefur
tekist vel annað miður og jafnvel
margt sem hefur orðið algjört
fíaskó.
Þeir sem stjórna, eða vilja fara
með völdin, beita ýmsum með-
ulum annað hvort þvingunum í
krafti andlegs afls eða annarra
yfirburða s.s. eins og nauðungar
eða hervalds. Þetta sjáum við í
öllum heimildum fyrri tíða og
margar sögur til.
Margir leiðtogar hafa reynt að stjórna, eða kannski
frekar leiðbeina, öðrum með því að reyna að vera sjálfir
fyrirmyndir. Þetta þekkja flestir þar sem foreldrar beita
þessari aðferð á börn sín með ágætum árangri. „Gerðu
eins og ég segi (en ekki eins og ég geri)“, gæti sú aðferð
heitið því flestir, ef ekki allir foreldrar, eru meinbreyskir
og geta sjaldnast haldið eigin hollráð. Hver hefur ekki
heyrt af foreldri sínu gera eitthvað sem það hefur áður
varað viðkomandi við.
Margar sögur fara af prestum fortíðarinnar predika
yfir söfnuði sínum og vara við alls kyns saurlifnaði og
djöfulgangi en voru sjálfir bersyndugir. Leiðtogar öreiga
lifðu í vellystingum kommúnismans meðan lýðurinn
svalt og enn má sjá slíkt í heimi nútímans. Pólitíkusar
setja lög en fara ekki endilega eftir þeim sjálfir og jafnvel
sjálfur páfinn var staðinn að því að læka mynd af
berrassaði konu á samfélagsmiðlunum um daginn.
Nú nú. Hér á Íslandi hafa menn verið ótrúlega duglegir
á samfélagsmiðlum að benda á Hlýði-Víði sem greind-
ist með kórónuveiruna á dögunum. Hann hefur verið
óþreytandi við að kenna okkur réttu tökin á sóttvörnum
og umgengni við annað fólk á fordæmalausum tímum.
Eftir að hafa heyrt hann vara fólk við hinum ýmsu aðstæð-
um varð maður hissa að sjá að hann féll á eigin bragði.
Mér finnst reyndar algjör óþarfi af landsmönnum að
úthúða Víði en þetta sýnir bara hvað við erum ófullkomin.
Ófullkomin við að halda eigin boðskap og hinir að veita
stuðning. Ég er einn af þeim ófullkomnu og hef sjaldan
getað haldið nokkru prinsippi sem ég set mér eða að ég
fari eftir því sem ég ráðlegg öðrum. En ég vil samt biðja
fólk að sýna smá biðlund. Þetta er alveg að koma. Höldum
áfram að hlýða Víði og klárum þennan veirufjanda innan
reglumarka þríeykisins frábæra og útbúum minnisstæð
jól. Í framtíðinni munu þau líklega verða með þeim
minnisstæðustu.
Góðar stundir.
Páll Friðriksson,
ritstjóri
LEIÐARI
Gerðu eins og ég segi
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir klara@nyprent.is
Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
COVID-19 | Tillögur sóttvarnalæknis
Óbreyttar sóttvarnaráð-
stafanir til 9. desember
Heilbrigðisráðherra hefur
ákveðið að framlengja gildandi
reglugerðir um takmarkanir á
samkomum og skólastarfi
óbreyttar til miðvikudagsins
9. desember næstkomandi. Í
tilkynningu frá heilbrigðisráðu-
neytinu segir að þetta sé gert í
samræmi við tillögu sóttvarna-
læknis sem ræður gegn því að
slaka á sóttvörnum núna vegna
þess hvernig faraldurinn hefur
þróast síðustu daga.
Í minnisblaði sóttvarnalækn-
is, frá 29. nóvember, var gert ráð
fyrir því að hægt yrði að ráðast í
varfærnar tilslakanir á gildandi
sóttvarnalögum 2. desember og
kynntar voru ákveðnar hug-
myndir þar að lútandi fyrir ráð-
herra fyrir viku. Í tilkynningu
ráðuneytisins segir að sóttvarna-
læknir hafi þó sett fyrirvara um
að hann áskildi sér rétt til að
endurskoða tillögur sínar um
tilslakanir ef þróun faraldursins
myndi breytast enda kemur
fram hjá sóttvarnalækni að
undanfarið hafi orðið breyt-
ingar á faraldrinum. Upp hafi
komið hópsýkingar og smitum
fjölgað og svo virðist sem fjöldi
þeirra sem greinast utan sótt-
kvíar stefni í línulegan vöxt og
hugsanlegan veldisvöxt, sbr.
minnisblað sóttvarnalæknis.
„Tillaga hans er sú að engar
breytingar verði gerðar á gild-
andi sóttvarnaráðsstöfunum, þ.e.
takmörkunum á samkomum og
skólastarfi næstu eina til tvær
vikur. Við endurskoðun sótt-
varnaráðstafana sem hefjast
þegar í stað, verður meðal annars
horft til þess hvort tilefni sé til að
gera tilslakanir á landsbyggð-
inni umfram höfuðborgarsvæð-
ið í samræmi við hugleiðingar
COVID-19 | Dagatal á aðventu
Jóladagatölin sem fólk notar til
að telja niður dagana fram að
jólum eru af ýmsum toga.
Kirkjan í Skagafirði ákvað að
færa kirkjustarfið til fólksins
með hjálp tækninnar og hafa
útbúið skagfirskt jóladagatal
þar sem „einn gluggi birtist á
tölvuskjá“ á Facebooksíðu
Kirkjunnar í Skagafirði hverjum
degi síðustu vikurnar fyrir jól.
Á heimasíðu Þjóðkirkjunnar
kirkjan.is eru þessu verkefni
gerð góð skil og segir þar að svo
heppilega vilji til að í Skagafirði
séu kirkjurnar 24 talsins og að
Kirkjan kemur til fólksins
sóttvarnalæknis í meðfylgjandi
minnisblaði, dags. 30. nóv.“
Sem fyrr segir felur ákvörðun
ráðherra í sér óbreyttar sótt-
varnaráðstafanir til og með 9.
desember.
Á upplýsingafundi almanna-
varnadeildar ríkislögreglustjóra
sl. mánudagsmorgun kom fram
að nú væri hægt að nálgast ráð-
leggingar um það hvernig
heppilegt væri að haga málum
yfir hátíðarnar á Covid.is. Þar
benti Rögnvaldur Ólafsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn, fólki á
að búa sér til nokkurs konar
jólakúlu og raða í hana því fólki
sem hver og einn ætlar að hitta
yfir hátíðarnar. Miða þurfi samt
við tíu manns sem er sá fjöldi
sem fjöldatakmörkun yfirvalda
notar nú sem meginreglu. Þór-
ólfur Guðnason, sóttvarnalækn-
ir, hvatti fólk til að forðast alla
hópamyndun fyrir jól. Sam-
kvæmt viðmiðunarreglum um
heimboð og veitingar um jól og
áramót ætti fólk m.a. að forðast
söng og hávært tal, sérstaklega
innandyra. /PF
AFLATÖLUR | Dagana 15. – 28. nóvember 2020 á Norðurlandi vestra
Drangey SK 2 aflahæsti togarinn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Elfa HU 191 Handfæri 190
Hafrún HU 12 Dragnót 4.306
Kristinn HU 812 Landbeitt lína 66.718
Ólafur Magnússon HU 54 Þorskfisknet 202
Stakkhamar SH 220 Lína 25.820
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 11.797
Viktoría HU 10 Handfæri 235
Alls á Skagaströnd 169.311
HOFSÓS
Þorgrímur SK 27 Landbeitt lína 1.927
Alls á Hofsósi 1.927 HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 3.632
Sjöfn SH 707 IGPL 13.730
Alls á Hvammstanga 17.362 SAUÐÁRKRÓKUR
Bárður SH 81 Dragnót 17.160
Drangey SK 2 Botnvarpa 321.053
Jóhanna Gísladóttir Lína 185.700
Kaldi SK 121 Þorskfisknet 1.168
Málmey SK 1 Botnvarpa 305.049
Már SK 90 Handfæri 1.299
Onni HU 36 Dragnót 17.953
Skvetta SK 7 Handfæri 224
Viðey RE 50 Botnvarpa 200.111
Alls á Sauðárkróki 1.049.717
SKAGASTRÖND
Addi afi GK 97 Landbeitt lína 29.331
Auður HU 94 Landbeitt lína 6.904
Bergur Sterki HU 17 Lína 16.851
Bragi Magg HU 70 Línutrekt 3.618
Dagrún HU 121 Þorskfisknet 3.339
Síðustu tvær vikurnar var landað tæpum1050 tonnum á Sauðárkróki og voru bæði Drangey
SK 2 og Málmey SK1 með yfir 300 tonn hvor. 170 tonn bárust á Skagaströnd og var Kristinn
SH 812 aflahæstur þeirra báta sem þar lögðu upp með tæp 67 tonn. Tveir bátar lögðu upp á
Hvammstanga, rúm 17 tonn, og einn bátur landaði á Hofsósi 1927 kg. Heildarafli síðustu
tvær vikurnar á Norðurlandi vestra var 1.238.317 kíló. /SG
Barðskirkja í Fljótum. SKJÁSKOT
fólki sé boðið inn fyrir dyr til
að taka þátt í stuttum bæna-
stundum í skagfirskum kirkjum
sem eru fallegar og margar
hverjar gamlar.
Að sögn Sigríðar Gunnars-
dóttur, sóknarprest á Sauðár-
króki, var fyrsti glugginn opn-
aður sl. sunnudag, þann fyrsta í
aðventu, með kveðjum úr
Flugumýrarkirkju með tónum
frá Vorvindum glöðum. Nýr
gluggi opnast á hverjum degi á
Facebook-síðu kirkjunnar í
Skagafirði. /PF
2 46/2020