Feykir


Feykir - 02.12.2020, Blaðsíða 3

Feykir - 02.12.2020, Blaðsíða 3
Blönduósbær óskar eftir að ráða starfsmann í starf launafull- trúa á skrifstofu sveitarfélagsins. Um er að ræða 100% starf, eða eftir nánara samkomulagi, og er vinnutími frá 8:00 – 16:00. Launafulltrúi sér um launavinnslu sveitarfélagsins ásamt öðrum almennum skrifstofustörfum. Helstu verkefni: • Launavinnsla fyrir alla starfsmenn sveitarfélagsins, ásamt tengdum félögum • Utanumhald með fræðslu og starfsþróun starfsmanna sveitarfélagsins • Samskipti við kjarasvið Sambands íslenskra sveitarfélaga • Önnur almenn og sérhæfð skrifstofustörf á skrifstofu Hæfniskröfur: • Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi • Reynsla af störfum launafulltrúa eða af mannauðsmálum æskileg • Jákvæðni, skipulagshæfni og færni í mannlegum samskiptum • Þekking á skjalastýringarkerfum (ONE) eða sambærilegu æskileg Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur af öllum kynjum eru hvattir til þess að sækja um starfið. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Nánari upplýsingar veitir Valdimar O Hermannsson, sveitarstjóri og skal senda skriflega umsókn með kynningarbréfi og ferilskrá (CV) á netfangið: valdimar@blonduos.is fyrir 12. desember nk. Launafulltrúi óskast á skrifstofu Blönduósbæjar N Ý P R EN T eh f. / 1 12 02 0 Hnjúkabyggð 33 I 540 Blönduósi I Sími 455 4700 Blönduósbær www.blonduos . i s Feyki í jólapakkann! Það er frábær hugmynd að gefa áskrift að Feyki í jólagjöf, fullan af vikulegum fréttum, fróðleik og skemmtun af Norðurlandi vestra. Gjöfin sem heldur áfram að gefa Kynntu þér málið og vertu með Feyki – fjörmegin í lífinu! Hafðu samband við Nýprent í síma 455 7171 og kynntu þér málið. BORGARFLÖT 1 | 550 SAUÐÁRKRÓKUR | SÍMI 455 7176 | FEYKIR.IS Appelsínuguli liturinn birtist aftur - til að minna okkur á baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi í heiminum, við erum hluti af honum. Liturinn birtist 25. nóvember, á degi Sameinuðu þjóðanna um útrýmingu ofbeldis gegn konum og logar til 10. desember sem er dagur mannréttinda Sameinuðu þjóðanna og jafnframt alþjóðlegur dagur Soroptimista. Þetta eru 16 dagar 16 dagar sem gefa okkur öllum tækifæri til að rjúfa þögnina varðandi ofbeldi. 16 dagar sem gefur okkur tækifæri til að efla vitundar- vakningu gegn kynbundnu ofbeldi. Ofbeldi gegn konum er aldrei einkamál heldur sam- félagslegt mein sem hefur áhrif á milljónir kvenna um allan heim og á tímum COVID-19 hefur vandamál- ið vaxið – alls staðar - líka hér á litla Íslandi. Notum roðagyllta litinn til þess að minna okkur á að ENGINN hefur leyfi til að beita aðra manneskju ofbeldi. ENGINN hefur leyfi til að meiða aðra mannveru af ásetningi. Það er vakning í gangi að fræða okkur um hvað er ofbeldi, hvernig birtist það – til þess að við getum komið auga á það, oft er það falið en með því að læra að þekkja einkennin getum við brugð- ist við. Soroptimistar hvetja alla til að taka höndum saman um að binda enda á ofbeldi gegn konum, sem eru út- breiddustu, lífsseigustu og mest skemmandi mannrétt- indabrot í heiminum í dag. Ef þú býrð við ofbeldi, hringdu. Ef þú hefur grun um ofbeldi, hringdu í lög- regluna. Þú gætir verið að bjarga lífi. Lögreglan 112 Stöndum saman og pössum upp hvert annað. Stöndum saman gegn ofbeldi. /Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar AÐSENT | Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar Roðagyllum heiminn – átak Soroptimista gegn kynbundnu ofbeldi Maður ársins á Norðurlandi vestra Auglýst eftir tilnefningum Líkt og undanfarin ár leitar Feykir til lesenda með tilnefningar um mann ársins á Norðurlandi vestra. Sigurður Hansen á Kringlumýri var kjörinn maður ársins fyrir árið 2019 en nú er komið að því að finna verðugan aðila til að taka við nafnbótinni Maður ársins á Norðurlandi vestra 2020. Tilnefningum skal koma til Feykis á netfangið feykir@feykir. is í síðasta lagi fyrir miðnætti sunnudagskvöldið 13. desem- ber. Tilgreina skal fullt nafn, gera stutta grein fyrir viðkom- andi einstaklingi og rökstyðja valið á einhvern hátt. /PF Sigurður Hansen var maður ársins 2019 á Norðurlandi vestra. MYND: PF Ráðstafanir vegna mikilla kal- og girðingatjóna Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur tryggt aukið fjármagn til Bjargráðasjóðs vegna óvenju mikilla kal- og girðingatjóna síðasta vetur. Veitt verður 500 milljónum aukalega í sjóðinn á árinu 2020. Fjárhagsaðstoð sjóðsins felst í veitingu styrkja sem stjórn sjóðsins ákveður hverju sinni í samræmi við fjárhag og stöðu sjóðsins. Á vef stjórnarráðsins segir að með aukinni fjárveit- ingu verðir sjóðurinn betur í stakk búinn til að styðja við bændur sem lentu í tjóni vegna óveðursins í desember 2019 og almennrar vetrarhörku síðasta vetur. /PF Bjargráðasjóður fær hálfan milljarð 46/2020 3

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.