Feykir


Feykir - 02.12.2020, Page 5

Feykir - 02.12.2020, Page 5
Það var fyrir tveimur árum að það skaut upp í huga mér að líklegast myndi alvöru mótorhjól henta mér betur en rafskutlan sem ég keypti ári áður. Rafskutlan er ekki gerð fyrir meiri þunga en 120 kg og mældist ég langt þar fyrir ofan og þar sem ég á ekki bíl og hef lítinn áhuga á slíku farartæki bættist þyngd innkaupa við yfirþyngdina sem hjólinu var ætlað að bera. Ég hef allatíð verið maður skjótra ákvarðana og var búinn að kaupa mér Honda Shadow mótorhjól 750 cc áður en mánuður var liðinn frá ákvörðunartöku og það án þess að skoða hjólið, en það hafði ég alltaf gert með þá bíla sem ég hef átt, enda hef ég ekkert vit á slíkum tækjum og því ástæðulaust að skoða þau áður. Nú hafði framtíðin hjá mér breyst, nýr lífstíll og aðeins tvö ár í sjötugt og hafði aldrei áður keyrt eða setið slíkt tæki. Næsta vor var svo hafist handa með hléum og próf tekið í nóvember 2019 með óaðfinnanlegum akstri um öngstræti Sauðárkróks, loksins gat ég farið á hjólið mitt með próf upp á vasann og ný framtíðarplön. Ég tók strax ákvörðun að hliðarvindar íslenskra hola og þvottabretta væri ekki framtíðarplanið mitt á þessum ævintýraferðum mínum svo ég keypti mér ferð með Norrænu aðra leiðina, ákveðinn í því að fagna starfslokum og jafnframt 70 ára afmælinu á ferð um alvöru vegakerfi og öllum afkomendum boðið að fagna með mér í borginni fögru þar sem móðir mín heitin fæddist og ólst upp í hörmungum stríðsins og eymd eftirstríðsáranna uns hún flutti 21 árs til Íslands. Borgin sem hefur allatíð heillað mig og ég hef heimsótt oftar en ég hef tölu á útnefndi Karl IV keisari hana „Glories of the Roman Empire“ einu borgina utan Ítalíu, hinar ÁSKORENDAPENNINN | palli@feykir.is Guðmundur Paul Scheel Jónsson Blönduósi Smá ferðasaga mótorhjólaáhugamanns Guðmundur Paul Scheel. MYND AÐSEND fjórar voru Feneyjar, Róm, Pisa og Flórens, og það ekki að ástæðulausu. Þegar leið að brottfarardegi ákvað ég að fara leiðina á Seyðisfjörð á tveimur dögum en skipti svo um skoðun því mig vantaði æfingu í langakstri og því var ákveðið að fara í einum „rykk“ alla leið á Seyðisfjörð sem var minna mál en ég hélt að það yrði og eftir sex klukkutíma leið var ég kominn á Egilsstaði og gisti þar og fór svo árla morguns á Seyðisfjörð. Um borð var okkur kúrekum þjóðveganna ætlað að festa hjólin okkar við mjög þröngar aðstæður og þá kynntist ég fyrst „bræðralagi“ mótorhjólamanna sem tóku að sér að festa hjólið tryggilega, hafa sjálfsagt vorkennt gamla kallinum sem kunni ekki með slík bönd að fara, og þegar komið var til Hirtshals var búið að gera það klárt. Fyrsti áfangi ferðarinnar var að baki og framundan akstur um vegi þar sem vindurinn var bara í fangið og stefnt á heimsókn til bróður míns sem búsettur er í Danmörku, Covid hafði nú sett mark sitt á ferðina og hafði sendiráðið upplýst mig að ég mætti hvergi stöðva innan ríkismarka Þórhildar drottningar, auðvitað hunsaði ég það og átti svo sem ekki von á eftirköstum, sem ekki kom til. Næsti áfangi var svo sjálft móðurlandið. Ég hafði tekið þá ákvörðun að fara frekar hliðarvegi bæði vegna þess að ég hafði ekki farið um þau svæði á Eystrasaltsströndinni og líka vildi ég ekki vera í langri röð flutningabíla þar sem ég hafði ekki farið hraðar en 120 og hafði reyndar ekki áhuga á hraðakstri. Það átti eftir að koma mér í koll því bæði villtist ég þrátt fyrir GPS og einnig að líklega hefði ég ekki runnið til í beygju á rennblautum og hálum veginum þar sem reynsluleysið mitt varð til þess að ég bremsaði á framhjólinu í beygjunni. En sem betur fer fór ekki illa og með hjálp var hjólinu komið upp aftur og ferðalagið hélt áfram. Eftir sex tíma akstur var ég kominn á hótelið „mitt“ en þar hef ég alltaf gist sl. tíu skipti, og alltaf sama herbergið. Frábært hótel þar sem ég er orðinn einn af fjölskyldunni og ekki skemmir að herbergi með ríflegum morgunverði er á 35 evrur. Í ferðasögunni er aðeins stiklað á stóru, ekki minnst á afmælið sem fór forgörðum vegna ferðatakmarkana, ekki minnst á að heimferðin breyttist með 3ja tíma fyrirvara þar sem ég þurfti að taka lest til Kaupmannahafnar og fljúga þaðan í stað þess að fljúga frá Hamborg. Nú býður mótorhjólið eftir mér í Lübeck að ég komi að vori og þá alkominn ef Guð lofar. - - - - - - Ég skora á Gunnar S. Sigurðsson, smið á Blönduósi, að taka við pennanum. hingad ä land a vorinn þä hann flygur til nordursins og aptur ä haust med ungumm synumm þä hann flýgur i sudrid, ä vorinn er hann hier veiddur med Eggiahylke edur kierfi; þvi vex hann ecki ür triänumm sem sagt hefur verid. Enn þau helsinganef (sokóllud) sem siäst ütkoma ür þeim feitu siöhroktu triám; eru ei annad enn sä triesmiügandi Madkur; sem i þeim verdur ad þvilykri skielpøddu; lýkri hrüdur kalli; og vex älldrei meira; enn hün siest ä trianumm. Tryggvi Gunnarsson ritaði svo árið 1901 í Dýra- vininn: Þegar ég var unglingur í Þingeyjarsýslu, heyrði ég að menn voru að þrátta um það, hvort helsinginn væri steggi grágæsarinnar. Sumir þeirra sögðu að það gæti ekki verið, því að aldrei sæist helsingi hjá gæs, þegar hún lægi á eggjum. En hinir voru miklu fleiri, sem héldu þeirri skoðun fram, að allir helsingjar væru steggjar, því að aldrei fyndust helsingjahreiður hér á landi ... Annað, sem hér mætti nefna til fróðleiks, er, að kona ein, fædd árið 1917, segir, og miðar við Skaga- fjarðarsýslu: Stundum var notaður stór vængur, t.d. af helsingja, til að sópa með. Og karlmaður, fæddur 1919, er með þetta úr Eyja- fjarðar- og Skagafjarðarsýslu: Til vorvinnu fór fólk oftast á fætur um kl. 7–8. Víða fékk það einhvern bita áður en það fór til vinnu, stundum eitthvað heitt, svo sem grasate. Væri farið eitthvað frá bænum til vinnu hafði fólk gjarnan með sér bita. Þessi biti var oftast kallaður „litliskattur“ og var ekki gefinn nema að vorinu og um sláttinn. Í Skagafirði a.m.k. og kannski eitthvað í Eyjafirði var þessi skattur miðaður við ferðir helsingjanna. Venjulega var það vinnufólkið sem uppgötvaði ferðir helsingjanna fyrst að vorinu er þeir voru á leið hér yfir til varpstöðva sinna í heimskautalöndunum. Þá kom það að máli við húsbændur sína og sagði að helsingjarnir hefðu flogið yfir og sungið í sífellu: „Skattinn á, skattinn á.“ Engin húsfreyja sem hafði ráð á dirfðist að fresta því að gefa fólki litlaskattinn eftir að það sannaðist að helsingjarnir höfðu mælt svo fyrir. Á haustin voru það svo húsbændur sem fyrst höfðu orð á því að helsingjar væru komnir því þá var sagt að þeir syngju: „Skattinn af, skattinn af.“ Þá var hætt við að gefa litlaskattinn og þorði enginn að mögla undan því. Það að meira var farið eftir komu helsingjanna í Skagafirði en Eyjafirði mun stafa af því að ferðir þeirra liggja miklu meira um Skagafjörð. Eftir fráfærur var litliskatturinn venjulega sauðaskyr með undanrennu út á og var borðaður um kl. 9. Skatturinn var venjulega borðaður um kl. 10 til hálf ellefu. Hann var gjarnan bygggrjónahræringur eða rúghræringur (hrært saman skyri og rúggraut) með slátri og undanrennu út á. Á stöku bæ var svo gefið hádegiskaffi um kl. 12 þegar leið fram yfir aldamótin. Með þessu kaffi var ekki brauð nema sérstaklega stæði á. Einn bolli var ætlaður hverjum manni og lítill kandísmoli með. Fólki var fært hádegiskaffið til vinnu sinnar, einnig var það gert með skattinn nema fólk væri að vinna rétt við bæinn. Útlönd Um erlenda þjóðtrú vísast í framannefnt, þar sem við á. Annað virðist ekki hafa loðað við helsingj- ann. 46/2020 5

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.