Feykir - 02.12.2020, Qupperneq 10
„Ég er alin upp á Flateyri við
Önundarfjörð og flutti til Skaga-
strandar um vorið 1994 ásamt manni
mínum, Guðmundi Finnbogasyni, og
þremur börnum. Ég starfa við félags-
starfið á Skagaströnd og sinni gæslu
við sundkennslu þegar hún er í gangi.
Ég er mikið fyrir hannyrðir og prjóna
mikið á barnabörnin, þau eru orðin sex
að tölu. Ef ég byrja á einni peysu þá
enda ég með að klára sex peysur,“
segir Ásthildur Gunnlaugsdóttir sem
segir lesendum frá því hvað hún er
með á prjónunum.
Hve lengi hefur þú stund-
að hannyrðir? „Frá því
í barnaskóla, á Flateyri
var mjög góð handa-
vinnukennsla. Þar unnum
við með leður, við lærðum
að vefa á vefstól, kennsla
í að prjóna og sauma út,
hannyrðir hafa fylgt mér
alla ævi.
Hvaða handavinna þykir þér
skemmtilegust? „Mér finnst nú flest
handavinna skemmti-leg, get ekki gert
upp á milli, enda er handavinna mjög
fjöl-breytt og gefandi. Ég
er í Bútasaumsklúbbnum
Bútós sem hefur gefið mér
mikið í gegnum tíðina.“
Hverju ertu að vinna að
um þessar mundir? „Ég er
að prjóna lopapeysu fyrir
eitt barnabarnið og einnig
ungbarnapeysu, ásamt
því að hekla prufur fyrir
félagsstarfið.“
Hvar fékkstu hugmyndina? „Ég skoða
mikið af uppskriftum og geri ýmis
sýnishorn fyrir konurnar í félagstarfinu
Hannyrðir hafa fylgt mér alla ævi
( HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM ) klara@nyprent.is
Ásthildur Gunnlaugsdóttir á Skagaströnd
Jólasokkar fyrir barnabörnin.
„Leðurveski sem ég gerði á Flateyri,“ segir Ásthildur.
Sett sem Ásthildur gerði fyrir yngsta barnabarnið.
Liverpool – peysan.
Bútasaumsrúmteppi.
Jólatrésdúkar fyrir börnin.Lopapeysur á barnabörnin.
í saumi, prjóni og hekli og þá dettur
maður niður á eitthvað áhugavert og
þá er ekki aftur snúið. Til dæmis sá ég
munstur á lopapeysu með Liverpool
merkinu og prjónaði eina í afmælisgjöf,
en það tók tíma.“
Hvaða handverk, sem þú hefur unnið,
ert þú ánægðust með? „Það sem ég er
að gera í hvert sinn, ætli bútasaums-
teppið standi ekki upp úr.“
Eitthvað sem þú vilt bæta við? „Það er
mjög róandi og gott að slaka á þegar ég
er að prjóna eða gera aðra handavinnu,
þá er gott að hlusta á útvarpið eða á
sögur. “
- - - - - -
Ásthildur skorar á Sigríði Bjarka-
dóttur á Blönduósi að taka við.
10 46/2020