Skólaskátinn - 01.12.1939, Síða 7

Skólaskátinn - 01.12.1939, Síða 7
SKÓLASKÁTINN 5 Jól rjúpunnar. ( S a g a ). Frostið var napurt, stormurinn æddi og hríðin hamaðist úti, svo að dýr og fuglar leituðu sér skjóls, hvar sem það var að fá. Litla hvíta rjúpan skreið bak viö steininn, sem ennþá stóð upp úr fönninni og kúrði sig þar niður. Hún var ein og yfirgefin og fcana kenndi svo mikið til í fætinum að hún gat varla kyr verið, og hún var líka ógurlega sVöng. Fyrir nokkrum dögum sátu þau hjónin saman á snjóbreiðunni og kröfs- uðu eftir æti. Þau þurftu að keppast við og ná í sem mest; það var langt síðan þau höfðu verið vel södd. Allt í einu gall við skothvellur. Hún fékk ógurlega verki í fót- inn, flaug samt upp, en maki hennar lá dauður eftir. Hún sá að maðurinn tók hann upp og fór burtu með hanu. Dagarnir liðu hægt og hægt og næturnar lika. Nú hafði þessi hríð haldist í 3 daga og alltaf var að heiða frostið. Hún hafði ekki smakkað mat allan þennan tíma. því að fótur- inn var svo bólginn og sár, að hún gat ekki krafsað snjónum frá, og til mannanna þyddi ekki að fara — þeir voru bara vondir. Til að dreifa huganum fór hún að hugsa um litlu ungana sína. Hvernig skyldi þeim líða núna. Það haíði verið svo gaman þegar þeir voru litlir, þá var alltaf svo hlýtt og gott. Minningarnar komu hver af annari. Hún mundi eftir vorinu, þegar fór að hlýna. Snjórinn bráðnaði og hvítu fjaðrirnar duttu af henni, én aðrar dekkri komu í staðinn. fau hjónin fundu sér hreiðurstæði í lyng- móanum, og þegar hreiðrið var tilbúið verpti hún 10 eggjum í það. Þau voru svo falleg og lík jörðinni, að það var engin hætta á að þau fyndust, og hún fór heldur ekki af þeim svo teljandi væri, hvorki nótt né dag, Eggin máttu ekki kólna, og mað- urinn hennar færði henni mat. Hann hafði alltaf verið góður við hana. Og það kom ungi úr hverju eggi, 10 fallegir ungar. Mest var gaman meðan þurfti að mata þá. — Ungarnir stækkuðu og þegar veturinn kom urðu þeir hvítir eins og hún var núna, og þá voru þeir orðnir vanir að bjarga sér sjálfir. Nú vissi hún ekkert hvað af þeim hafði orðið. Þannig reykaði hugsunin lengi um liðna tímann. En allt í einu tók hún eftir þvf, að hætt var að hríða, og fyrir framan hana hafði mjmdast hár skafl, sem vindurinn hafði feykt saman, Skaflinn var allt í kringum skjólið liennar og aðeins op fyrir ofan hana. Nú var um að gera að komast upp og ná sér í æti. En hún var eitthvað svo mátt- laus og sljó, að hún gat varla hreyft sig. Hún reyndi samt að flögra upp, en holan var þröng og fóturinn ónýtur og sár, svo að hún datt niður aftur. Hún reyndi hvað eftir annað, en allt fór á sömu leið. Hana sveið voðalega i fótinn. Hún hnipraði sig saman og reyndi að sofna, þannig lá hún lengi, hún var svo þreytt. Dagurinn var á enda og myrkrið seig yfir skuggalegt og kalt, í bverju húsi log- uðu mörg kertaljós, og börnin sungu í kring um jólatrén fagnandi jólasöngva. Sigga litla var svo glöð, hún hafði aldrei fengið eins mikið af jólagjöfum og súkku- laði og núna. Hún átti víst bezta pabbann í heiminum. Og pabbi reykti stóran vindil í skrifborðsstólnum sínum og hugsaði með velþóknun um það, hvernig hann hafði var- ið peningunum fyrir skotnu rjúpurnar. Með þeim gladdi hann barnið sitt og naut sjálfur reyksins fyrir þá. Einnig hafði veiðiferðin ver- ið hressandi og skemmtileg. Það væri nauð- synlegt, að lyfta sér upp svona fyrir jólin, þó að lítil væri þénustan af því, Og stuttu eftir að Sigga litla var háttuð um kvöldið og búin að þakka guði fyrir að hafa gefið sér svona góðan pabba, — þá dó litla fót- brotna rjúpan í holunni við steininn, fians Jörgenson,

x

Skólaskátinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólaskátinn
https://timarit.is/publication/1638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.