Skólaskátinn - 01.12.1939, Blaðsíða 8
6
SKÓLASKÁTINN
Ferðin í Vaálaskö
Laugardaginn 7. júní kl. 6,30 e. h. var
lagt at stað í fyrstu hjóla-útilegu okkar
skólaskátanna. Hjólin voru nýsmurð og allt
gekk vel af stað, en við Gróðrastöðina fest-
ist einn í keðjunni og stoppaði þar. Hann
var þvf miður í svo góðum buxum að ekki
mátti snúa áfram, eins og venja er, og því
síður mátti skera á skálmina, heldur varð
að losa á keðjunni og tók það nokkurn
tíma,
Ákveðið hafði verið að fara inn í Garðs-
árdal, en þegar að afleggjaranum kom, sem
liggur inn dalinn, þá íór að hera á ýmsum
röddum, sem töluðu um hve gaman væri að
vera í skóginum í svona góðu veðri. En
fararstjóranum leyst ekki sem bezt á, að
leg£3a á heiðina undir nóttina, þar sem
sumir voru svo stuttir að þeir gátu ekki
setið upp á sætinu á hjólunum. Eftir nokkr-
ar bollaleggingar var þó ákveðið að fara
eitthvað í áttina til skógarins, og tjalda þá,
ef erfitt reyndist að komast yfir. Stuttu eft-
ir að ákvörðunin var tekin, kom vörubíll á
eftir okkur, sem ætlaði á næsta bæ, og við
fengum hann til að fara með okkur upp á
heiðarbrún fyrir lítið gjald.
Fegar upp kom var aftur tekið til hjól-
anna; en er halla tók niður á við fór þungi
bakpokanna aö verka svo á hjólin, að vai-
lega þurfti að fara. í einni beygjunni mætt-
um við bíl, og varð það til þess að einn
okkar þaut út af veginum, en meiddist þó
ekkert.
Fegar f skóginn kom og skógarvörðurinn
fundinn eftir mikla leit, þá fékkst leyfi til
að tjalda innan vissra takmarka, og þar
fundum við tilvalinn tjaldstað í rjóðri einu,
og var skógurinn á tvo vegu en lítill runni
framan við tjöldin. Við girtum sfðan með
hjólunum í skörðin, til varnar útilegumönn-
um og villidýrum þessa frumskógar.
Eftir leiki og störf kvöldsins var gengið
til náða, og þurfti þá um ýmislegt að spjalla,
isvo að klukkan var um 12 á miðnætti er
svefninn fór að verka. Sváfum við nú vært
þar til 2 óvættir komu gangandi á afturfót-
unum, jörmuðu og hristu girðinguna. En
þeir fóru fijótt aftur, og yfirbugaði svefninn
þá brátt hræðslu okkar, og sólin var komin
hátt á loft, er við vöknuðum aftur. Fá var
árbíturinn hitaður, sem var kakó að vanda,
og eftir máltíðina voru ílátinn þvegin og
viðrað úr tjöldunum,
Til hádegis voru svo frjálsar íþróttir, og
voru þá margar fallegar myndir teknar.
Einn vinnugefinn byrjaði einnig á >mublu-
smíði«, en það endaði þannig, að smíðaá-
höldin týndust, og var þeirra lengi Jeitað
árangurslaust.
Eftir miðdegismatinn var farið í eggjaleit-
ir; og alls staðar voru fuglarnir að fljúga
upp, en aðeins eitt hreiður fannst, Annars
var deginum eytt að mestu við allskonar
leiki, og að síðustu var farið í feluleik, sem
þótti mjög skemmtilegur, því að stundum
var gengið yfir suma, en undir aðra, þar
sem menn földu sig uppi í trjánum og niðri
í kjarrinu.
Eftir kvöldmatinn voru tjöldin brotin sam-
an og gengið frá öllu í bak og fyrir, síðan
var lagt af, stað heim á leið.
Erfitt þótti upp heiðina, og voru allir
íegnir er sást ofan á Eyjafjörðinn. í krók-
unum keyrðu tveir saman, en engar skemmd-
ir urðu þó, hvorki á mönnum né málleys-
ingjum. Fyrir neðan krókana var tjaldað,
hitað kakó og nestið borðað, til að hressa
mannskapinn við ettir erfiðið. Síðan lögðu
þeir minni af stað, en 2 þeir stærstu tóku
upp tjaldið og ætluðu sfðan að koma á eftir,
en þá bilaði annað hjólið þeirra, og þrátt
fyrir ýtrekaðar tilraunir okkar vélfróðustu
manna komst það ekki í lag aftur. En það
gat runnið undan brekkunni og notuðum við
okkur það niður að sjónum, Þar fundum
víð kaðal, sem við röktum og útbjuggum
>trossu« til að draga hjólið. Var nú einn
af þeim minni sectur á það, og kl. 1 aðfara-
nótt mánudags komum við til bæjarins meö
einn í slefi.
Sveinn B/arnason.