Skólaskátinn - 01.12.1939, Page 10

Skólaskátinn - 01.12.1939, Page 10
8 SKÓLASKÁTINN hann gert til að gleðja hana? Hann átti tvær krónur í vasanum, því að hann var að safna sér fyrir skátabelti. Flestir strák" arnir í skátafélaginu áttu belti. En það gat vel beðið. Hann fór inn í næstu búð, — keypti hvít kerti og Jitla græna grein og fleira smávegis, sem honum datt í hug að gæti glatt hana. Skrifaði nafnið hennar á pakkann og »gleðiieg jól« og stakk honum svo í baim sinn. Dagurinn mjakaðist áfram, en veðrið batn- aði ekkert. Síðast var klukkan farin að ganga sjö. Hann kom inn í búðina og von- aðist eftir, að nú væru ekki fleiri sendingar eftir, f*á kallaði búðarmaðurinn, að hér væri ein sending, og hún væri til heildsal- ans. Hann svimaði við tilhugsunina og tók við litium pakka. Það voru einhverjir súrir bitar í glasi, sem átti að hafa með steik, Annað vissi Steini ekki, það var aldrei not- að heima hjá honum. En það hlaut að vera eitthvað nauðsynlegt, fyrst frúin lét gera ferð svona langt með það, Hann braust áfram í hríðinni og var hræddur og þreyttur, Loksins var hann kominn. Hann barði á eldhúsdyrnar, og frúin kom sjálf fram, var kuldaleg á svipinn og sagði. íÞið eruð ekki fljótir að koma með þaö, sem maður biður um, frekar en vant er«. Móti Steina barst mikill matar-iJmur og hann sá skál á borðinu fulla af ávrixtum. Hvar var hægt að fá ávexti? — Hann fór án þess að tekið væri undir kveðju hans. Hann var því svo vanur, að hann tók það ekki nærri sér.1* Því sendlar voru nú bara sendlar og það þurfti víst ekki að sýna þeim neina kurteisi. Hann rölti af stað heim og þurfti að hafa sig aJIan við til þess að rata. ]?á mundi hann eftir pakkanum í barminum og ósjálfrátt greikkaði hann sporið. Loksins kom hann að litla húsinu hennar Sigríðar. Hann hafði hjartslátt og læddist. Opnaði hægt útidyrnar og lét böggulinn inn fyrir, Síðan barði hann fast á dyrnar, svo að hún kæmi fram til að finna hann. Nú hljóp hann eins hart og fæturnar gátu borið hann. 'Enginn mátti vita að hann hafði gert þetta. Steini fór snemma að hátta um kvöldið, Hann var svo þreyttur, en honum hafði aldrei liðið svona undur vel áður. Áður en hann háttaði, hafði hann hlaupið heim að litla húsinu. Hann læddist á tánum alveg að glugganum. Á borðinu stóð lítill blómst- urvasi með grænni grein, og það logaði á tveimur hvítum kertum. Sigríður sat við borðið, Hún var í sparifötunum og með opna bók í kjöltu sér. Steini virti hana fyrir sér. Nú sá hann að það var Ijómi vfir andlitinu. Hún horfði í ljósið og brosti. Líklega var hún að rifja upp einhver skemmti- leg löngu liðin jól. Kannske þegar börnin hennar voru lítil eða þá þegar hún átti hvíta kjólinn, sem hún var í á myndinni. Steini bylti sér á hliðina. Hann var alveg að sofna. En það var þetta, sem hún hafði sagt í dag. »Ég er sátt við lífið*. Hann skildi það ekki. Það var víst eitt af því marga, sem maður ekki skildi fyrr en með fullorðinsáruntftu. S. /. A GÖNGU. Djarfir fram með fána í höndum fylktir Iiði saman stöndum. Djarfir fratn og syngjum söngva um sigrandi heit. Ei skal kvika áfram stefnum, aldrei framar hik vér nefnum. Eftir skiljum skátar öngva, er skipa okkar sveit. Áfram æskan djarfa. Áfram til að'starfa. Félagshugsjón okkar eflum, ekkert betur vinnum við til þarfa. Verkin göfga; giftu skapar góður vilji, og aldrei tapar félagseining frjálsrar æsku í framtíðar leit. — Hans Jörgenson. Útgefandi 1. sveit »SkátaféIags Akureyrar*. Ábyrgðarmaður Hans Jörgenson svf. Akureyri 1939. Prentsmiðja Björns Jónssonar.

x

Skólaskátinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólaskátinn
https://timarit.is/publication/1638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.