Alþýðubandalagsblaðið


Alþýðubandalagsblaðið - 20.12.1975, Side 10

Alþýðubandalagsblaðið - 20.12.1975, Side 10
- kveimimaAr Frh. af bls 1. hér á íslandi alþjóðlegri bar- áttu og kvennaári Sameinuðu Þjóðanna. 24. okt. á Akureyri. Hér á Akureyri var lengi vel hljótt um þessar fyrirhuguðu aðgerðir, og leið svo fram í október, að ekki fréttist af neinum undirbúningi. Þá tóku nokkrar konur sig fram um það að kanna, hvort hér væri grundvöllur fyrir einhverjum samtökum um þetta mál. Sett var fréttatilkynning í bæjar- blöð, og þær konur, sem áhuga hefðu hvattar til að koma íil fundar og leggja á ráðin um hvað gera skyldi. Um 70 konur svöruðu þessu kalli, og ekki leyndi sér áhugi né heldur vilji til þess að láta hendur standa fram úr ermum. Kosin var framkvæmdanefnd fimmtán kvenna, sem strax tók til starfa við undirbúning. Sú skoðun átti eindregnu fylgi að fagna, að dagurinn yrði að standa í tákni baráttu, og dagskráin var sett saman í Ijósi þess viðhorfs. Aðsóknin að Sjálfstæðishús- inu, þar sem var ,,opið hús“ allan daginn fór langt fram úr því, sem bjartsýnasta fólk lét sér detta í hug, og undirtektir voru eftir því. Það er tvímælalaust jarð- vegur hér fyrir frekari aðgerð- um, enda kom það fram, að konum fannst skipta öllu máli, að ekki yrði látið staðar numið við þessa einu atlögu. Fram- Icvæmdanefndin hélt áfram að koma saman eftir 24. okt. og boðaði til almenns fundar í byrjun nóvember. Þar var lagt á ráðin um stofnun umræðu- og starfshópa um ýmsa mála- flokka, er snerta jafnréttismál og aðra mikilvæga þætti félags mála. Margar konur skráðu sig til þátttöku í slíkum hópum, og hafa nú sex hópar farið af stað. Þeir táka fyrir þjálfun í almennum félags- og funda- störfum í tveim hópum, dag- vistunarmál, könnun á launa- flokkum og skipan í stöður, konur og neytendaþjóðfélagið, og tekið verður fyrir innlent og erlent lesefni um jafnréttis- mál. Um hvað var sameinast 24. okt? Konurnar voru að leggja á- herslu á mikilvægi vinnufram- lags síns og fylgja eftir þeirri kröfu, að störf þeirra verði metin til jafns við störf karla. Þær vildu vekja athygli á því launamisrétti, sem viðgengst og misjafnri aðstöðu kvenna og karla í atvinnulífinu. Þessi atriði eru vissulega allt nokkuð að sameinast um, þótt fjölmargir mikilvægir þættir, sem snerta orsakir misréttis hafi yfirleitt legið um of í lág- inni. Það mætti spyrja hverra hagsmunum sú innræting þjón ar, sem viðheldur stöðnuðum hugsunarhætti gagnvart þeirri rígskorðuðu verkaskiptingu milli kynja, sem er konunum sérlega óhagstæð. Þessi innræting hefur það m. a. í för með sér, að konur líta alltof oft á þátttöku sína í atvinnulífinu sem millibils- ástand, en mæna á hjónaband og heimili. Það er nefnilega búið að ala þær upp sem verð- andi húsmæður og mæður, en ekki til þess að byggja líf siít á eigin framlagi í námi og starfi. Sú uppeldislega skyssa hefur langvinnari afleiðingar og skaðvænlegri en marga grun ar í fljótu bragði. Af þessu viðhorfi kvenna leiðir, að þær eru næsta ó- virkar um hag sinn á vinnu- markaðinum. Þær láta sig fag- Iega hagsmunabaráttu litlu skipta, að ekki sé minnst á stjórnmál og stéttabaráttu. Ódýrt íhlaupavinnuafl. Konurnar eru bundnar við „hornstein þjóðfélagsins“, því að heimilis- og uppeldisskyld- ur hvíla að langmestu leyti á þeim. Starf þeirra utan heim- ilis þýðir í langflestum tilvik- um, að tvöföld vinna er innt af hendi. Á vinnuafl kvenna er eink- um litið sem hreyfanlegt vara- lið, og konur sætta sig við að vera tilkvaddar, þegar mikil eftirspurn er eftir vinnuafli og efnahagslífið gengur sem glað- ast. Á sama hátt láta þær svo senda sig heim eins og ekkert sé, þegar samdráttar fer að gæta, eða kreppan ríður hús- um, eins og dæmin sanna í auð valdsheiminum um þessar mundir. Það er vitanlega hag- ur atvinnurekenda að hafa slíkt varalið til taks, þegar þeim hentar að kalla út, en hafa að öðru leyti lágmarks- skyldum að gegna við þessa hópa. Þetta hefur verkalýðs- hreyfingin lengi horft upp á án þess að kippa sér upp svo teljandi sé, enda er þar fátt kvenna í forystuliði, og engin kona á sæti í aðalsamninga- nefnd A. S. í. Skortur á félagslegri þjón- ustu ýmiskonur notast svo bein línis sem hagstjórnartæki til þess að binda konurnar enn frekar við heimilin og viðhalda þessari ótryggu atvinnuað- stöðu stórra hópa og láglauna- kvenna. Kveðjur frá þingi og ríkisstjórn. Það er rétt að rifja ögn upp, hvern hug íslenskir ráðamenn hafa sýnt í orði og verki til jafnréttisbaráttu íslenskra kvenna á því herrans ári 1975. Boðaður er niðurskurður á fjárframlögum til ýmissa fé- lagsmála svo sem til dagvistun- arstofnana. Þá lét meiri hluti alþingis- manna sig ekki muna um að kveða niður tillögur um sjálfs- ákvörðunarrétt kvenna varð- andi barneignir, og töldu þær ekki til þess færar að taka mikilvægar ákvarðanir um eig- ið líf og bera á þeim ábyrgð. Þeim fannst vissara að fela „nefnd sérfróðra manna“ að ákveða hvort kona elur barn eftir óvelkomna þungun eða hvort hún allra náðarsamlegast fær fóstureyðinga fram- kvæmda. Þetta mega heita kaldar kveðjur. Þá hefur komið fram, að von sé á frumvarpi um skattamál, og er kennt við sér- sköttun, en rís engan veginn undir því heiti eftir því að dæma, sem fram hefur komið til þessa. Einn megintilgangur- inn virðist vera sá að ná stærri hluta af launatekjum giftra kvenna inn í ríkissjóð, undir yfirskini sérsköttunar. Hagur einstæðra foreldra er eklci svo mikið sem til umræðu í þessu sambandi auk heldur það standi til að rétta hann að neinu leyti. Áformað er að gera launa- tekjur giftra kvenna þungvæg- ari til skatts en verið hefur með því að afnema rétt þeirra til 50% frádráttar. Þetta mun draga stórlega úr vinnu giftra kvenna utan heimilis, einkum þeirra, er ekki eiga kost á sér- lega vellaunaðri vinnu og kon- ur munu síður stefna að því að afla sér menntunar og starfs- þjálfunar. Hér er verið að beina kon- unum inn á við í enn ríkari mæli en verið hefur og félags- lega séð þýðir það stórt spor aftur á bak. Sú staða á greini- lega að haldast, að einungis skuli gert ráð fyrir dreifðu, ó- stöðugu vinnuframlagi kvenna, og meðan svo er verður staða þeirra óörugg hvað svo sem hjalað er störfum þeirra á heim ilunum til vegsömunar. Það er ástæða til að spyrja, hvort íslenskar konur, sem ný- verið blésu til myndarlegrar at lögu, ætla nú að taka því þegj- andi, að hagur þeirra flestra verði færður til stórum lakara horfs, lagalegur réttur þeirra til starfa gerður að marldeysu og sókn þeirra út í atvinnulífið hindruð. Víst er um það, að fjölmörg og aðkallandi verk- efni bíða framfarasinnaðrar kvennahreyfingar á komandi tíð. — Soffía Guðmundsdóttir. Málverka- sýning Frh. af bls. 16. mannaráð leigulaust í einn mánuð; þá má geta þess að helmingur myndanna er til sölu. Lýstu sjúklingar og starfs fólk ánægju sinni yfir þessari tilbreytni, en það mun líka hafa verið markmið starfs- mannaráðs og myndlistar- manna, með þessari sýningu. JÖKULL hf. Raufarhöfn óskar starfsfólki sínu á sjó og landi og öllum Raufarhafnarbúum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs G/eð/'/eg jól! Farsælt komandi ár Alþýðusamband Morðurlands 10 - ALÞÝÐUBANDALAGSBLAÐIÐ

x

Alþýðubandalagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðubandalagsblaðið
https://timarit.is/publication/1640

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.