Morgunblaðið - 04.08.2021, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 4. Á G Ú S T 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 180. tölublað . 109. árgangur .
STÓRBÆTTI
HEIMSMETIÐ Í
GRINDAHLAUPI
ÚTLÁNA-
SÖFNIN FÓRU
EKKI Í HNÚT
BJARNI MÁR
DJASSAR Í
MÚLANUM
VIÐSKIPTAMOGGINN SUÐUPOTTURINN 24KARSTEN WARHOLM 23
Búrhvalstarfur sem liggur í fjörunni við Ytri Tungu á sunn-
anverðu Snæfellsnesi hefur vakið athygli vegfarenda. Róbert
Arnar Stefánsson, forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands,
telur hvalshræið hafa verið á reki þó nokkurn tíma áður en
það rak á land 25. júlí. Hann segir heimamenn hafa orðið var-
ir við hvalinn á reki undan ströndinni laugardaginn 24. júlí og
telur mjög líklegt að um sé að ræða sama hval og sást á reki í
Faxaflóa fyrir rúmum tveimur vikum.
Hvalurinn er 12,6 metrar á lengd og var hann því ekki full-
vaxinn er hann drapst. Að sögn Róberts sjást búrhvalir reglu-
lega við Snæfellsnes og við mynni Breiðafjarðar.
Róbert segir hræið mjög úldið og að af því stafi afar vond
lykt en loftmengun er þó ekki það mikil að hún teljist hættu-
leg. Hræið mun ekki hafa verið útþanið þegar Náttúrustofa
Vesturlands fór á vettvang í síðustu viku.
Samkvæmt verklagsreglum Umhverfisstofnunar er förgun
í höndum stofnunarinnar sem tekur ákvörðun um hvort hræ
séu látin vera eða þeim fargað. gunnhildursif@mbl.is
Rúmlega tólf metra búrhval rak á land á Snæfellsnesi
Morgunblaðið/Þorsteinn
_ Slegið var met í Vínbúðum ÁTVR
í vikunni fyrir verslunarmanna-
helgina, en aldrei hefur jafn mikið
magn af áfengi selst á einni viku í
Vínbúðunum. Vikan umrædda er
vanalega ein stærsta vika ársins hjá
Vínbúðunum en í ár var um 3,6 pró-
senta aukningu að ræða frá fyrra
ári. Sala í júlímánuði sló met er
rúmar þrjár milljónir lítra seldust
en aldrei hefur áður verið selt
meira magn í einum mánuði.
„Skýring á meti júlímánaðar er
að vikudagar júlí á þessu ári raðast
þannig að stærstu söludagar fyrir
verslunarmannahelgi og fyrstu
helgi júlímánaðar eru allir í júlí,“
segir Kristján M. Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri sölu og þjónustu Vín-
búðanna » . 2
Vínbúðin 3,6% aukning var á sölu
Metsala áfengis
fyrir verslunar-
mannahelgi
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Innlagnir í nýjustu bylgju kórónu-
veirunnar hér á landi eru sáralitlar
miðað við það sem gerðist í fyrri
bylgjum, samkvæmt tölfræði, sem
Landspítalinn tók saman að beiðni
Morgunblaðsins og gerð er grein
fyrir með myndrænum hætti í
blaðinu.
Þrjár helstu smitbylgjurnar risu
allar hratt og hátt, en veikindi,
sjúkrahúsinnlagnir og andlát hafa
verið talsvert mismunandi. Af töl-
fræðinni má vel sjá að hópsmit í
heilbrigðiskerfinu hafa reynst lang-
afdrifaríkust í faraldrinum hér á
landi.
Þessi smitbylgja hefur risið hrað-
ar og hærra en hinar fyrri, en
sjúkrahúsinnlagnir ekki í sama
mæli. Það kann að breytast en þær
eru enn hlutfallslega fáar og fara
mun hægar af stað en í fyrri bylgj-
um.
Ný áhersla hjá ráðherra
Sú þróun er mjög í takt við
reynslu annarra tiltölulega bólu-
settra þjóða af bylgju Delta-af-
brigðisins, sem hefur skolað víðar á
land en hér. Það varpar hugsanlega
ljósi á orð Svandísar Svavarsdóttur
heilbrigðismálaráðherra í gær, en
hún sagði að fremur þyrfti að horfa
til fjölda þeirra sem veiktust alvar-
lega af kórónuveirunni, en fjölda
smita, þegar staða faraldursins
væri metin hér á landi. Þar þykir
mörgum kveða við nýjan tón, jafn-
vel svo ræða megi um stefnubreyt-
ingu.
Ráðherra sagði að bólusetning
hefði enn ekki veitt hjarðónæmi,
þótt um 70% landsmanna séu nú
fullbólusett, en hins vegar varið
þjóðina fyrir alvarlegum veikindum.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir var ekki jafnafdráttarlaus
og ráðherra að þessu leyti. Þetta
væri stærsta bylgjan til þessa og
næsta vika skæri úr um hvort sótt-
varnaaðgerðir næðu að hemja smit-
ið. Hann vísaði á stjórnvöld um
framhaldið:
„Það er stjórnvalda að ákveða til
hvaða aðgerða verður gripið á
næstunni,“ sagði Þórólfur á upplýs-
ingafundi í gær. Hann sagði alls
óvíst að hann myndi leggja til frek-
ari aðgerðir, en gaf þó til kynna að
hann teldi þörf á harðari aðgerðum.
Horfa á veikindi
frekar en smit
Svandís
Svavarsdóttir
Þórólfur
Guðnason
MFaraldur »4, 6, 8 og 12
- Tölfræði um innlagnir sýnir ólíkt eðli bylgnanna þriggja
Bankarnir hafa ekki áður lánað ein-
staklingum jafn mikið til bílakaupa
eins og í júní síðastliðnum. Þetta
kemur í ljós þegar rýnt er í hag-
tölur Seðlabankans. Tæpir 2,5
milljarðar voru veittir í nýjum út-
lánum að teknu tilliti til umfram-
og uppgreiðslna og tvöfölduðust
umsvifin á þessum markaði frá
maímánuði. Fulltrúar bankanna
segja talsverðan gang vera á bíla-
markaði og þá ekki síst með notaða
bíla. Hefur Arion banki m.a. veitt
aukið svigrúm til lántöku út á not-
aða bíla en veðhlutföll taka mið af
skráningarári þeirra bifreiða sem
veðsettar eru. »ViðskiptaMogginn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bílar Bankarnir gera fleirum kleift
að kaupa nýja og notaða bíla.
Kaupa bíla
á lánum
- Met slegið í júní
á bílalánamarkaði