Morgunblaðið - 04.08.2021, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2021
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Helgi Bjarnason
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
Oddur Þórðarson
Kórónuveiran hefur náð að breiðast
hratt og mikið út um landið að und-
anförnu, eins og annars staðar. Þór-
ólfur Guðnason sóttvarnalæknir
sagði á upplýsingafundi Almanna-
varna í gær að það væri stjórnvalda
að ákveða hvort og þá til hvaða að-
gerða verði gripið til að stemma
stigu við frekari þróun. Staða mála
var rædd á ríkisstjórnarfundi í gær-
morgun. Svandís Svavarsdóttir heil-
brigðisráðherra sagði að loknum
fundi að horfa þurfi til fjölda þeirra
sem veikjast alvarlega af kórónu-
veirunni, en ekki til fjölda smita,
þegar staða faraldursins væri metin.
Greindust 108 kórónuveirusmit
við rannsóknir á sýnum frá mánu-
degi. Þar af voru 70 hjá fólki sem var
utan sóttkvíar við greiningu. Alls eru
1.304 í einangrun með Covid-19 og
1.937 í sóttkví.
Í tilkynningu frá farsóttanefnd og
viðbragðsstjórn Landspítalans í gær
kom fram að um hádegið voru 16
sjúklingar inniliggjandi á spítalanum
vegna Covid-19, þar af tveir á gjör-
gæslu og var annar þeirra í önd-
unarvél.
Smitast auðveldlega
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir sagði á upplýsingafundi Al-
mannavarna í gær að sú bylgja kór-
ónuveirufaraldursins sem nú gengur
yfir hér sé sú stærsta hingað til. Þór-
ólfur sagði að Delta-afbrigði veir-
unnar hefði nú tekið alveg yfir önnur
afbrigði hér á landi. Fullbólusettir
gætu smitast nokkuð auðveldlega og
ljóst að bólusetningin hefði ekki
skapað það hjarðónæmi sem vonast
var til. Um 70% landsmanna eru nú
fullbólusett.
Kvaðst sóttvarnalæknir vonast til
þess að bólusetning kæmi í veg fyrir
alvarleg veikindi. Tölur sýndu að
hlutfallslega lægra hlutfall smitaðra
hafi veikst alvarlega í þessari bylgju
en þeim fyrri. Aðeins 1% bólusettra
hafi þurft að leggjast inn en 2,3%
óbólusettra. Tók hann fram að ekki
væri vitað hversu vel bólusetning
verndar aldraða fyrir alvarlegum
veikindum sem og þá sem eru með
undirliggjandi sjúkdóma. Verið er að
skoða hvort hægt sé að gefa þessum
hópi örvunarskammt bóluefnis. Þá
hefur verið ákveðið að bjóða þeim
sem fengu eina sprautu með bóluefni
frá Janssen annað bóluefni til örv-
unar og til skoðunar er að bjóða for-
eldrum barna á aldrinum 12 til 15
ára að koma með börn sín til bólu-
setningar.
24 hafa þurft að leggjast inn á
sjúkrahús með veiruna í yfirstand-
andi bylgju kórónuveirufaraldurs-
ins. Helmingur þeirra var full-
bólusettur. Þórólfur gat þess að
veikindi hjá bólusettu fólki væru
öðruvísi en hjá þeim sem ekki hafa
látið bólusetja sig. Nefndi hann að
báðir þeir einstaklingar sem þurft
hafi að fara á gjörgæslu séu óbólu-
settir.
Þórólfur sagði að komandi vika
ætti að skera úr um það hvort þær
aðgerðir sem gripið var til innan-
lands fyrir viku myndu duga til að ná
utan um smitið í samfélaginu. Hann
sagði að það væri stjórnvalda að
ákveða hvort og þá til hvaða aðgerða
verði gripið nú til að stemma stigu
við þróun faraldursins. „Ég held að
það sé fyllsta ástæða til að hafa
áhyggjur af þessari þróun sem við
erum að sjá og sérstaklega því álagi
sem getur skapast á heilbrigðis-
kerfið okkar,“ sagði Þórólfur og
bætti því við að óvíst væri hvort
hann legði til einhverjar ákveðnar
aðgerðir.
Ræða aðgerðir
Svandís Svavarsdóttir sagði eftir
ríkisstjórnarfundinn í gærmorgun
að stjórnvöld séu nú í miðju ferli að
skoða hvað næst skuli taka til bragðs
í baráttunni við faraldurinn. Því geti
hún ekki spáð fyrir um takmarkanir
eða afléttingar sóttvarnaráðstafana
að svo stöddu. Þær takmarkanir sem
nú eru í gildi voru settar á til þess að
koma í veg fyrir smit á stórum
mannamótum.
„Við sjáum að bólusetningar eru
að hafa mjög mikil áhrif á veikindin
sem slík, en því miður ekki að
tryggja eða koma í veg fyrir út-
breiðsluna, þannig að við erum að sjá
aðra stöðu varðandi hjarðónæmi en
við gerðum ráð fyrir. En við erum að
ná umtalsverðum árangri með bólu-
setningum í að verja fólk gegn alvar-
legum veikindum,“ segir Svandís.
Fram kom í máli heilbrigðis-
ráðherra að horfa þurfi til fjölda
þeirra sem veikjast alvarlega af kór-
ónuveirunni, en ekki til fjölda smita,
þegar staða faraldursins er metin
hér á landi. Þörf sé á frekari gögnum
til að byggja ákvarðanir á til lengri
framtíðar.
Stærsta bylgjan ríður yfir
- Sóttvarnalæknir segir að stjórnvöld þurfi að ákveða hvort og þá til hvaða aðgerða gripið verði
- Heilbrigðisráðherra segir að líta verði til hversu margir veikjast alvarlega fremur en fjölda smita
Morgunblaðið/Unnur Karen
Bólusett á ný Starfsfólk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hóf í gærmorgun að bólusetja þá kennara og aðra
starfsmenn skólanna sem fengið höfðu bóluefni frá Janssen með öðru bóluefni, svokölluðum örvunarskammti.
0 1 0 2 5 10 7 13 10 11
38
56
78 82
95 88
71
123 123
129 124
154
86
68
108
Heimild: covid.is kl. 11.00 í gær
Heimild: LSH
108 ný innanlands-
smit greindust
sl. sólarhring
1.158 einstaklingar eru
í skimunarsóttkví
1.937 einstaklingar
eru í sóttkví
Fullbólusettir
Bólusetning hafin
Óbólusettir
9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2.2020 2021
Einstaklingar undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH kl. 12.00 í gær
Væg eða engin einkenni Covid-19 Aukin einkenni Alvarlegri einkenni, s.s. mikil andþyngsli og hár hiti
150
125
100
75
50
25
0
8.233
staðfest smit alls
Fjöldi innanlandssmita frá 28. febúar 2020 Fjöldi innanlandssmita frá 9. júlí
eftir stöðu bólusetningar
106 100
154
1.293 einstaklingar
eru undir eftir-
liti Covid-göngudeildar LSH
30 af þeim sem
eru undir eftir-
liti flokkst sem gulir
1 einstaklingur
flokkast
sem rauður
207 af þeim
sem eru
undir eftirliti eru börn
16 sjúklingar eru
inniliggjandi á
LSHmeð Covid-19
2 einstaklingar
eru á gjörgæslu,
annar í öndunarvél
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI
„Við miðum okkar áætlanir við það
að halda uppi skólastarfi með eins
lítilli röskun og hægt er og alltaf
með tilliti til fyrirmæla sóttvarna-
læknis,“ segir Skúli Helgason, for-
maður skóla- og frístundaráðs
Reykjavíkurborgar, um starf leik-
skóla og grunnskóla á komandi
skólaári.
Leikskólarnir verða opnaðir einn
af öðrum á næstu dögum og vikum
og starf í grunnskólum hefst seinni-
hluta mánaðarins. Skúli segir að
beðið sé eftir fyrirmælum sótt-
varnayfirvalda og reiknar með að
þær birtist fljótlega í nýrri reglu-
gerð.
Ríkisstjórnin ræddi stöðu
kórónuveirufaraldursins á fundi í
gærmorgun. Fram kom hjá ráð-
herrum eftir fundinn að stefnt væri
að skólahaldi án takmarkana. „Okk-
ar markmið er auðvitað fyrst og
fremst það að skólastarf haldist og
raskist ekki þannig að daglegt
amstur skólabarna, alveg sama á
hvaða aldri þau eru, sé sem reglu-
bundnast,“ sagði Svandís Svavars-
dóttir heilbrigðisráðherra við
mbl.is. Hún hvatti nemendur og
kennara til að búa sig undir eðlilegt
skólaár.
Þeim kennurum sem fengu bólu-
efni frá Janssen hefur verið boðið
að fá aðra bólusetningu til örvunar.
Þeir fyrstu létu sprauta sig í gær.
Svandís segir að í framhaldinu
komi til skoðunar hvænær foreldr-
um barna á aldrinum 12 til 15 ára
verði boðið að koma með börn sín í
bólusetningu.
Skúli segir varasamt í ljósi sög-
unnar að vera með miklar yfirlýs-
ingar. Menn þurfi að vera viðbúnir
öllu. Segir hann menn hokna af
reynslu eftir viðureignina við veir-
una og munu halda áfram að gera
það besta úr hlutunum. Hann segir
að gripið verði til ýmissa varúðar-
ráðstafana í skólunum, eins og áður
hefur verið gert. helgi@mbl.is
Skólahald verði óskert
- Ríkisstjórn og sveitarfélög ræða skólastarfið í haust
Skúli
Helgason
Svandís
Svavarsdóttir