Morgunblaðið - 04.08.2021, Side 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2021
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Enn sem komið eru innlagnir í þess-
ari 5. bylgju kórónuveirunnar hér á
landi sáralitlar miðað við það sem
gerðist í fyrri bylgjum. Það er aug-
ljós ályktun, sem draga má af mynd-
ritinu að ofan, sem gert er sam-
kvæmt tölfræði, sem tekin var
saman af Landspítalanum og Land-
læknisembættinu að beiðni Morgun-
blaðsins.
Líkt og sjá má er þessi fimmta og
nýjasta bylgja kórónuveirufarald-
ursins, sú sem hæst rís þegar litið er
til fjölda smita, enda er Delta-af-
brigðið svonefnda mun meira smit-
andi en hin fyrri og jafnað við
hlaupabólu að því leyti. Sömuleiðis
getur það smitað bólusett fólk og
endursmitað þá, sem fengið hafa Co-
vid-19 áður. Bólusetning gerir slíkt
smit þó mun ólíklegra, en fái menn
einkenni eru þau mun vægari en fólk
hefur kynnst í fyrri bylgjum. Þá
virðist bólusetning nær alveg koma í
veg fyrir andlát af völdum veirunnar.
Þrjár bylgjur
Þó talað hafi verið um fimm bylgj-
ur, blasir við að nær væri að tala um
þrjár bylgjur. Eftir á að hyggja voru
2. og 4. bylgjan varla nema gárur.
Hins vegar eru þessar þrjár bylgjur
um margt mjög ólíkar.
Allar risu bylgjurnar hratt, en
sjúkrahúsinnlagnir, gjörgæsla og
andlát hafa verið mjög mismunandi.
Þá blasir við að innlagnir hefjast
talsvert eftir að bylgjurnar rísa, en í
því tilliti er e.t.v. full snemmt að
fagna því hve bærileg þessi síðasta
bylgja hefur verið.
Fyrsta bylgjan hneig nokkuð ört
og sjúkrahúsinnlagnir ekki ákaflega
margar, en hins vegar voru hlutfalls-
lega margir lagðir á gjörgæsludeild
og allnokkur dauðsföll.
Það er hins vegar seinni stóra
bylgjan (nefnd 3. bylgjan), sem
reyndist afdrifaríkust. Hún virtist
reyndar ætla að verða skammær og
var tekin að hníga, þegar hópsmit í
heilbrigðiskerfinu – fyrst og fremst á
Landakoti – fjölguðu dauðsföllum
ákaflega á skömmum tíma, mikið var
um innlagnir að viðbættri einangrun
langlegusjúklinga með virk smit.
Fyrir vikið var sú bylgja líka lengi að
hníga.
Aftur á móti er þessi þriðja stóra
bylgja (nefnd 5. bylgjan) langhæst í
smitum, en innlagnir eru enn fáar og
fara mun hægar af stað en áður.
Heimildir: LSH, Landlæknir, covid.is
*Ný smit greind á dag, óháð uppruna. **Innlagðir sjúklingar á hádegi hvers dags. ‡Langlegusjúklingar á LSHmeð virk smit í þriðju bylgju eru aðgreindir frá öðrum innlögðum. †26 hafa látist af Covid-19 á Landspítala en fjórir á öðrum umönnunarstofnunum, alls 30 manns frá upphafi faraldurs.
Smit og fjöldi innlagna á Landspítalann (LSH)
frá upphafi faraldurs til loka júlí 2021
0
20
40
60
80
100
120
140
160
0
20
40
60
80
100
120
140
160
JJMAMFJDNOSÁJJMAM
manns
20212021
Fyrsta smit
greinist
28. 2. 2020
Fyrsta sjúkra-
húsinnlögn
14.mars 2020
Fyrsta dauðsfall
af völdum Covid-19.
23.mars 2020
FYRSTA BYLGJAN
í mars til maí
árið 2020
ÞRIÐJA BYLGJAN
í september 2020
til febrúar 2021
FJÓRÐA BYLGJAN
í apríl til maí 2021
FIMMTA BYLGJAN
hófst í júní 2021
Delta-afbrigði smitast
hratt og víða, en veldur
litlum veikindum
ÖNNUR BYLGJAN
í ágúst 2020
Langlegusjúklingar
með virkt smit í
einangrun á LSH.
Flestir innlagðir
sjúklingar á LSH
í faraldrinum:
75
10 innlagðir,
þar af tveir
á gjörgæslu
31. júlí 2021.
Flest smit
á einum degi
20. júlí 2021
154
HÓPSMIT Á LANDAKOTI;
Um 150 smitast og
17 andlát eru rakin
til þess, þar og á öðrum
heilbrigðisstofnunum.
Öll smit* Innlagðir á LSH** Langlegusjúklingar á LSH
með virkt smit í einangrun‡
Andlát á LSH
vegna Covid-19†Þar af á gjörgæslu
Frá upphafi faraldurs hafa greinst 8.233 staðfest smit í landinu.
6.899 hafa lokið einangrun, en 51.391 lokið sóttkví. Nú eru 1.304 í einangrun og 1.937 í sóttkví.
370 hafa verið lagðir á sjúkrahús vegna Covid-19, þar af 57 innlagnir á gjörgæslu.
Bólusetning hófst í upphafi árs, en gekk hægt þar til í byrjun apríl.
Segja má að ummiðjan júní hafi kúfnum verið náð. Nú hafa 254.443
verið fullbólusettir en 14.652 til viðbótar hafa fengið fyrri skammt.
232.162
fullbólusettir
7. júlí 2021
Innlagnir sáralitlar í 5. bylgju
- Tölfræði frá Landspítala leiðir ólíkt eðli bylgnanna í ljós - Hópsmit í heilbrigðiskerfi afdrifaríkust