Morgunblaðið - 04.08.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 04.08.2021, Síða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2021 Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is Verbena hinn fullkomni sumarilmur Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur verið ráðinn rit- stjóri Frétta- blaðsins og jafn- framt aðalritstjóri út- gáfufélagsins Torgs ehf. Þetta tilkynnti útgáfu- félagið í gær. Hann tekur við af Jóni Þórissyni, sem ritstýrt hefur blaðinu frá hausti 2019. Sigmundur Ernir hóf blaða- mennsku á síðdegisblaðinu Vísi fyrir réttum 40 árum. Hann hefur einnig starfað á Helgarpóstinum, Ríkis- sjónvarpinu, Stöð 2, DV og sjón- varpsöðinni Hringbraut. Sigmundur var alþingismaður Samfylkingarinnar í Norðaustur- kjördæmi frá 2009 til 2013. Sig- mundur er einnig kunnur af ritverk- um sínum, en eftir hann liggur á þriðja tug bóka. Jón Þórisson hyggst snúa sér að öðrum verkefnum, en hann er lög- fræðingur frá HÍ. sisi@mbl.is Nýr ritstjóri Fréttablaðsins Sigmundur Ernir Rúnarsson Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór í alls 113 sjúkraflutningaverk- efni á einum sólarhring í byrjun vikunnar. Þetta kemur fram á Facebook-síðu slökkviliðsins. Þar af voru 20 forgangsflutningar og 35 vegna kórónuveirunnar. Dælubílar fóru hins vegar ein- ungis í eitt útkall á þessum tíma. Fram kemur að um minni háttar at- vik var að ræða. Fram kemur í færslu slökkviliðs- ins að þótt seinasta helgi hafi verið mjög annasöm hafi umferðin á svæði Slökkviliðsins á höfuðborgar- svæðinu gengið algjörlega slysa- laust fyrir sig. 113 sjúkraflutningar Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Hinsegin dagar voru formlega settir í hádeg- inu í gær þegar málaður var regnbogi á Ing- ólfsstræti, milli Hverfisgötu og Laugavegs. Til stóð að halda hátíðina með hefðbundnu sniði í ár en vegna heimsfaraldursins var það ekki hægt. Fjölbreytt dagskrá verður þó í boði á hátíðinni, sem stendur til 8. ágúst, þrátt fyrir samkomutakmarkanir, að sögn Ásgeirs Magnússonar, formanns hátíð- arinnar. „Það er ýmislegt hægt þó við búum við tak- markanir. Við getum komið saman og verið sýnileg á öruggan og ábyrgan hátt. Ég er ánægður með hve marga viðburði teyminu tókst að skipuleggja þrátt fyrir allt. Hér er- um við fljót að sníða okkur pallíettustakk eft- ir vexti,“ segir Ásgeir. Skipuleggjendur hátíðarinnar vilja bæta aðgengi að hátíðinni og því verða nokkrir viðburðir hennar í beinu streymi á Facebook- síðu Hinsegin daga. „Við erum að taka okkur á í aðgengismálum. Við skrifuðum undir sam- starfssamning við Evrópusambandið á dög- unum og það er að styrkja okkur sérstaklega til að bæta aðgengismál á hátíðinni, hvort sem það er með römpum fyrir bætt hjóla- stólaaðgengi eða með því að hafa táknmáls- túlka á viðburðum hátíðarinnar. Í ár verður streymt frá opnunarhátíðinni og öllum fræðsluviðburðunum og við verðum líka með táknmálstúlk í öllu streymi.“ Gera hinseg- in daga að- gengilegri Morgunblaðið/Unnur Karen Hátíð Það var líf og fjör þegar byrjað var að mála Ingólfsstræti í litum regnbogans í gær í tilefni Hinsegin daga. 12-15 ára börn Á forsíðu og bls. 2 í blaðinu í gær var ranglega farið með aldur barna sem geta átt möguleika á að fá bólu- efni hér á landi. Um 12-15 ára börn yrði að ræða, ekki 12-18 ára. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.