Morgunblaðið - 04.08.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2021
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Passamyndir
Tímapantanir
í síma 568 0150
eða á rut@rut.is
Tryggjum
tveggja metra fjarlægð
og gætum ítrustu
ráðstafana
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Undanfarna mánuði hafa talibanar
sótt í sig veðrið í Afganistan á sama
tíma og herlið Bandaríkjanna og
annarra ríkja Atlantshafsbandalags-
ins undirbúa brottför frá landinu eft-
ir nærri 20 ára hersetu.
Íbúar borgarinnar Lashkar Gah
í Helmand-héraði í suðurhluta Afg-
anistan búa nú við umsátur talibana,
en þeir ráða nú meirihluta borgar-
innar. Að minnsta kosti 40 óbreyttir
borgarar hafa látist í kjölfar stríðs-
átaka og eru íbúar því hvattir af yf-
irvöldum til að forða sér og rýma
borgina.
Í yfirlýsingu segir Gen Sadat
hershöfðingi, sem leiðir baráttuna
gegn talibönum, að ekki einn einasti
talibani yrði skilinn eftir á lífi í borg-
inni. „Ég veit að það er mjög erfitt
fyrir ykkur að yfirgefa heimili ykkar,
það er erfitt fyrir okkur líka, en ef þú
ert á flótta í nokkra daga skaltu fyr-
irgefa okkur,“ segir Sadat í yfirlýs-
ingunni. Ef borgin myndi falla í
hendur talibana yrði það í fyrsta sinn
síðan árið 2016 sem héraðshöfuð-
borg yrði undir stjórn þeirra. Því
yrði það þungt högg fyrir ríkis-
stjórnina.
Engin miskunn
Íbúar Lashkar Gah búa við
mikla skelfingu. „Hvorki talibanarn-
ir né stjórnvöld sýna okkur neina
miskunn með því að stöðva sprengju-
tilræðin. Það eru lík á vegunum. Við
vitum ekki hvort það eru óbreyttir
borgarar eða talibanar,“ segir íbúi í
samtali við fréttastofu BBC. Haft er
eftir öðrum íbúa að þeir séu ráða-
lausir um hvert þeir eigi að fara, það
séu átök í öllum hornum borgarinn-
ar. Bardagar standa einnig yfir í
borginni Herat í vestri og Kandahar
í suðri en eldflaugaárás talibana á
sunnudag olli miklu tjóni á flugvelli
Kandahar, sem er önnur stærsta
borg Afganistan. Forseti landsins,
Ashraf Ghani, gagnrýnir bandarísk
stjórnvöld fyrir skyndilega brottför
bandarísks herliðs og telur hana
vera ástæðu átakanna. Bandaríkja-
stjórn kveðst reiðubúin til að fjölga í
hópi þeirra Afgana sem fái hæli í
Bandaríkjunum.
AFP
Barist Miklir bardagar geisa nú
í borgum í Afganistan.
Hörð barátta um
borgir í Afganistan
- 40 óbreyttir borgarar Lashkar Gah-borgar látnir í kjölfar
stríðsátaka - Ætla sér að útrýma öllum talibönum í borginni
Hvítrússneski aðgerðasinninn Vitaly
Shishov fannst látinn í almennings-
garði í Kænugarði í Úkraínu í gær.
Shishov, sem var 26 ára gamall, var
formaður félagasamtaka sem að-
stoða hvítrússneska borgara við að
flýja Hvíta-Rússland. Hann fannst
hengdur í garðinum og er morðrann-
sókn hafin á málinu. Shisov fór út að
skokka í fyrradag en skilaði sér ekki
til baka. Vinir hans segja að Shishov
hafi verið veitt eftirför á síðustu
misserum. Í tilkynningu frá lögreglu
segir að allir möguleikar verði skoð-
aðir í rannsókn málsins, meðal ann-
ars að ætlunin hafi verið að dulbúa
morð sem sjálfsvíg.
Saka Lukashenko um morð
Margir Hvít-Rússar hafa flúið
land, oft til Úkraínu, Póllands eða
Litháen, í kjölfar fjöldamótmæla
sem brutust út í fyrra í kjölfar for-
setakosninga í landinu. Meðal þeirra
sem flúðu var Shishov. Í kosning-
unum var Alexander Lukashenko
kosinn til sjötta kjörtímabils síns
sem forseti. Kjörinu var víða mót-
mælt sem yfirvöld hafa svarað með
mikilli hörku. Félagasamtökin sem
Shishov var í formennsku fyrir segja
að þeim hafi ítrekað borist hótanir
frá yfirvöldum og saka samtökin
stjórn Lukashenko um morðið á Shi-
sov. Sameinuðu þjóðirnar segja
dauða hans auka áhyggjur þeirra af
ástandinu í Hvíta-Rússlandi og kalla
eftir rannsókn á málinu. Mikið hefur
borið á fréttum um aðgerðir yfir-
valda í Hvíta-Rússlandi gegn
stjórnarandstæðingum undanfarið. Í
fyrradag var sagt frá því að hvítrúss-
neska frjálsíþróttakonan Krystsina
Tsimanovskaya hafi fengið landvist-
arleyfi í Póllandi eftir að hún sagðist
óttast um öryggi sitt í heimalandinu.
Þá vakti það heimsathygli þegar
blaðamaðurinn Roman Protasevich
var handtekinn í maí eftir að flugvél
sem hann ferðaðist með var neydd til
lendingar í Minsk, höfuðborg Hvíta-
Rússlands. urdur@mbl.is
Fannst látinn í lystigarði
- Hvítrússneski aðgerðasinninn Vitaly Shishov fannst
hengdur í garði - Var veitt eftirför á síðustu misserum
AFP
Aðgerðasinni Shishov var 26 ára.
Pandabjörninn Huan Huan eignaðist tvíbura í franska
dýragarðinum Beauval í fyrradag. „Þeir eru mjög líf-
legir, bleikir og bústnir,“ segir í tilkynningu frá dýra-
garðinum. Forsetafrú Kína mun nefna nýju tvíburana.
Æxlun pandabjarna gengur oft erfiðlega en einungis
um 1.800 birnir finnast villtir. Tvíburarnir eru þó ekki
fyrstu afkvæmi Huan Huan því árið 2017 eignaðist hún
Yuan Meng sem á nú að senda til Kína frá Frakklandi.
AFP
Huan Huan eignaðist tvíbura
Yfirvöld í kínversku borginni
Wuhan tilkynntu í gær að allir íbú-
ar borgarinnar, ellefu milljónir,
yrðu skimaðir fyrir Covid-19.
Fyrstu tilfelli veirunnar hafa nú
greinst í borginni í meira en ár
eftir að sjö farandverkamenn
greindust smitaðir. Fyrstu tilfelli
kórónuveirunnar í heiminum
greindust í Wuhan í desember árið
2019.
Smitum fer fjölgandi í Kína í
kjölfar Delta-afbrigðis veirunnar
en um 300 manns hafa greinst
smitaðir í 15 héruðum landsins á
tíu dögum. Uppruna smitanna má
rekja til hópsýkingar sem kom upp
á meðal hreingerningastarfsfólks á
flugvellinum í Nanjing-borg í Ji-
angsu-héraði. Í kjölfarið hafa allir
íbúar borgarinnar, 9,2 milljónir,
verið skimaðir að minnsta kosti
þrisvar sinnum. Íbúum heilu borg-
anna í Kína er nú gert að halda
sig heima, samgöngur hafa verið
lágmarkaðar og fjöldaskimanir
hafa verið settar á laggirnar.
KÍNA
Kórónuveiran snýr aftur til Wuhan-borgar
AFP
Skimun Allir íbúar Wuhan, ellefu milljónir,
verða skimaðir vegna fjölgunar smita.
Andrew Cuomo, ríkisstjóri New
York-ríkis í Bandaríkjunum,
áreitti að minnsta kosti ellefu kon-
ur kynferðislega að því er fram
kemur í niðurstöðum skýrslu
vegna óháðrar rannsóknar á ásök-
unum í garð ríkisstjórans. Letitia
James, dómsmálaráðherra ríkisins,
tilkynnti um niðurstöðurnar á
blaðamannafundi í gær.
Í skýrslunni, sem telur 163 blað-
síður, er fjallað um atferli sem
sagt er vera brot á lögum alrík-
isins og New York-ríkis og hefur
héraðsaksóknari í Albany, höfuð-
borg ríkisins, hafið sakamála-
rannsókn, að því er fram kemur í
umfjöllun New York Times. Ríkis-
stjórinn er sagður hafa áreitt kon-
ur á vinnustað sínum með óum-
beðinni snertingu og óviðeigandi
ummælum.
Cuomo neitar sök.
BANDARÍKIN
Sætir sakamálarannsókn vegna áreitis
AFP
Neitar Ríkisstjórinn Andrew Cuomo er
sagður hafa áreitt ellefu konur.