Morgunblaðið - 04.08.2021, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2021
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Það styttist í
að Banda-
ríkin minn-
ist þess að 20 ár
séu frá árásunum á
tvíburaturnana í
NY og á Pentagon-bygginguna.
Byggingin sú er táknræn mjög.
Kunn um veröldina sem risa-
vaxin yfirlýsing, um hernaðar-
mátt Bandaríkjanna. Tugir þús-
unda mæta þar til vinnu og hafa
talið vinnustaðinn þann örugg-
asta í heimi. Einni sprengju
enn, í gervi farþegaþotu, var
sennilega ætlað að lenda á
sjálfu Hvíta húsinu.
Bandaríkin höfðu, seinþreytt
til þeirra vandræða, tekið þátt í
tveimur heimsstyrjöldum. Þau
höfðu stöðvað útþenslu komm-
únista í Kóreu, en her þeirra fór
þá undir merkjum S.þ. Yfir-
burðir þeirra sýndu þá ósigr-
andi. Sú yfirskrift breyttist
með Víetnam. Og nú á næstu
vikum verða átökin um Afgan-
istan færð til bókar með enn
lakari útkomu, þótt mannfall
hafi verið þolanlegra.
Bandaríkin náðu vissulega
markmiðum sínum í Afganistan
eftir að talibanar voru hraktir á
flótta, þótt þeir væru ekki farn-
ir. Fjórum mánuðum áður en 10
ár voru frá „11. september“ var
Osama bin Laden veginn af
vígasveit Bandaríkjanna. Og
miklu fyrr varð svipaður árang-
ur í Írak þar sem styrjöldin fór
mun seinna af stað en í Afgan-
istan. Þá hengdu írösk yfirvöld
Saddam Hussein, gamlan ógn-
vald þjóðar sinnar. Hussein
tókst að telja Bandaríkjunum
trú um að herstyrkur hans væri
mun meiri en á daginn kom.
„Skriðdýrin frá Washington
munu kremjast í frumeindir í
móður allra styrjalda,“ sagði
karlinn.
Bandaríkin hafa haft trölla-
trú á að byggja hernaðar-
atlögur á yfirþyrmandi afli
(overwhelming Shock and Awe)
sem lami vilja óvinarins til allr-
ar mótspyrnu. Aðgerðin í Írak
heppnaðist fullkomlega að
þessu leyti.Frægast varð þegar
að þessi Goebbels Saddams var
í mynd á blaðamannafundi í
Bagdad og sagði Bandaríkja-
menn hafa lent í miklum og
óvæntum ógöngum í herferð
sinni í Írak. Þá sáust banda-
rísku skriðdrekarnir í bak-
grunni í Bagdad án nokkurrar
sjáanlegrar andspyrnu! Innrás-
arhernum var vel tekið, enda
einræðisherrann illa séður. En
fögnuðurinn stóð stutt. Og það
var einmitt „the overwhelming
power“ sem kom í bakið á sigur-
vegaranum. Helstu brýr, vega-
kerfi og flugvellir og aðrir inn-
viðir höfðu verið sprengdir í loft
upp. Rafmagnsver, vatnsveitur
og annað þess háttar sömuleið-
is. Rétt mat á hernaðargetu
Saddams hefði sýnt slíka eyði-
leggingu óþarfa.
En hún tryggði að
vonir um betri til-
veru með falli harð-
stjórans féllu í
grýtta jörð.
Saddam hafði nær alfarið
stutt sig við kynþátt sinn
súnníta, sem voru í minnihluta í
Írak gagnvar sjítum. Hug-
mynda- og lýðræðisfræðingar
Bandaríkjahers sáu í hendi sér
að það gæti ekki gengið. Súnn-
ítum var því sópað út úr stjórn-
kerfinu en sjítum inn, klerk-
unum í Teheran til óvæntrar
gleði. Íraksstríðið hafði notið
almenns stuðnings í Bandaríkj-
unum og góð samstaða um inn-
rásina á þingi. Joe Biden var
þannig ákafur stuðningsmaður
hennar, þótt hann hafi síðar
reynt að færa stuðning sinn í
veikari búning.
Persónugervingur innrásar-
innar í Afganistan var Osama
bin Laden. Þótt mætti ættfæra
hann til Sádi-Arabíu var hann í
augum heimsins maðurinn með
vélbyssuna í Tora Bora-
hellunum. Bandarískir stjórn-
málamenn hefðu ekki lifað það
af pólitískt ef ekki yrði sótt með
öllu afli að morðingjanum, tor-
tímanda þúsunda á meginlandi
mesta ríkis samtímans sem
hafði snúið á öflugustu leyni-
þjónustur veraldrar. Niðurlæg-
ingunni, sem sveið undan, var
komið í stundarskjól í skugga
stríðs í Afganistan og svo í
Írak, þótt það síðarnefnda hefði
ekki bein tengsl við „11. sept.“
Hefndarstríðin sem Bush
forseti kynnti og nutu alls-
herjar stuðnings í þinginu
gengu vel framan af, þótt það
skyggði á að bin Laden kæmist
undan úr Tora Bora-hellunum
og það á hestbaki! Spurðist svo
lítt af honum uns bandarísk sér-
sveit réð hann af dögum 1. maí
2011. Obama stefndi í framhaldi
þess að því að draga hersveitir
að mestu burt úr Afganistan á
tíu ára tímamóti 11. september.
Hann neyddist þó til að auka
hernaðarlegan viðbúnað á ný.
Trump, eftirmaður hans, vildi
koma hernum burt úr Afganist-
an en lenti í svipuðum aftur-
kippum og Obama hafði gert.
Biden kynnti svo að banda-
rískur her skyldi farinn frá Afg-
anistan 11. september 2021, á
20 ára „afmæli“ árásanna á
turnana 2 og Pentagon. Ýmsir
finna að því að þessir afmælis-
dagar árásanna séu í tvígang
kynntir sem lokastund endan-
legrar uppgjafar Bandaríkj-
anna gagnvart talibönum.
En bandarískir stjórnmála-
menn eru meðvitaðir um að
kjósendur vilja fæstir hafa her-
lið lengur í Afganistan eða í
Írak, enda muni lengra stríði
ekki ljúka með sigri andstæð-
inga talibana og lýðræðis í ein-
hverri mynd.
Stríðið í Afganistan
er tapað og það
hefur gerst áður}
Töpuðum stríðum
fjölgar
Í
vor lést Poul Schlüter, sem lengst allra
var forsætisráðherra í Danmörku eftir
stríð. Þegar hann lést voru fréttaskýr-
endur í Danmörku sammála um að
ákvörðunin um að festa dönsku krón-
una við þýska markið myndi halda nafni hans
lengst á lofti. Hann fórnaði sjálfstæðum gjald-
miðli fyrir stöðugleika. Árið 1990 voru kosn-
ingar í Danmörku og Íhaldsmenn notuðu plak-
öt með mynd af Schlüter með yfirskriftinni:
Hvem ellers? eða Hver annar?
Þetta gerðist ekki í einu vetfangi. Fastgeng-
isstefnan var tekin upp árið 1982, en fyrstu árin
þurfti ítrekað að fella gengi dönsku krónunnar
gagnvart markinu. Ástæðan var að verðbólga
var á þessum árum meiri í Danmörku en í
Þýskalandi. Árið 1986, eftir fjögra ára aðlögun,
var gengið svo fest, fyrst við markið og svo evr-
una frá 1999. Formlega er markmiðið að halda sveiflum
innan +/-2,25% frá gengi evrunnar, en í raun eru frávikin
smá titringur fremur en sveiflur.
Fáir draga í efa að stöðugleikann í dönsku efnahagslífi
undanfarna áratugi megi þakka því að gengi gjaldmiðils-
ins er fast. Fólk getur treyst því að virði peninganna verði
það sama eftir ár og það var í gær. Danir hafa reyndar
hafnað því að taka upp evruna sem gjaldmiðil, þó að þeir
noti hana í raun (með mynd af drottningunni). Þessi sér-
viska er ekki ókeypis. Í kreppunni árið 2008 þurftu Danir
að hækka stýrivexti talsvert umfram evrulöndin sem olli
dönskum fyrirtækjum nokkrum aukakostnaði. Markmiðið
um stöðuga krónu hélst þó í Danmörku meðan
sú norska og sænska veiktust og ræfillinn á Ís-
landi varð nánast verðlaus og ekki nýtilegur í
viðskiptum milli landa.
Á sama tíma og danska krónan haggaðist
ekki gagnvart evru má segja að krónan hafi
hrunið. Í byrjun september 2008 var skráð
gengi evrunnar um 120 krónur. Mánuði seinna
ákváðu bankastjórar Seðlabankans að lána
Kaupþingi gjaldeyrisvarasjóð landsmanna,
degi áður er bankinn varð gjaldþrota. Í kjölfar-
ið hrundi gengi krónunnar. Opinberlega fór
evran í 190 krónur í höftum, en á frjálsum afla-
ndsmarkaði í 300 krónur. Krónan missti 60% af
verðgildi sínu, nánast á einni nóttu. En það þarf
ekki að fara svona langt aftur í tímann til þess
að sjá afrek krónunnar. Á sjö mánuðum í fyrra
rýrnaði hún um tæplega 20% gagnvart evru.
Gengisbreytingar eru tilfærsla á verðmætum. Þeir ríku
geta varið sig, ólíkt hinum. Hagfræðingar þegja flestir
þunnu hljóði yfir þessari gengisóstjórn. Sjálfstæð skoðun
gæti komið þeim í ónáð hjá þröngsýnum stjórnvöldum.
Það er einfaldast að halda kjafti og vera sætir.
Íslendingar reyndu fastgengisstefnu fyrir aldarfjórð-
ungi með góðum árangri. Verðbólga lækkaði og efnahags-
lífið var í jafnvægi í nokkur ár. En svo sprungu menn á
limminu og gáfust upp á stöðugleikanum. Við áttum engan
Schlüter. Og eigum ekki enn.
Benedikt
Jóhannesson
Pistill
Okkur vantar alvöruleiðtoga
Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Í
skoðun er að gefa viðkvæm-
um hópum þriðja skammtinn
af bóluefni gegn alvarlegum
veikindum vegna Covid-19,
enda sé ekki vitað hve vel bólusetn-
ingin verndar þá. Rúmur helmingur
þeirra sem hafa lagst inn á Landspít-
alann vegna Covid-19 er bólusettur.
Ísraelar byrjuðu að gefa
fullbólusettu fólki yfir sextugt
örvunarskammta, síðasta föstudag.
Þjóðverjar munu gera slíkt hið sama
1. september.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir hefur ítrekað minnt á að far-
aldrinum sé hvergi lokið fyrr en hon-
um lýkur alls staðar. Bólusetningar-
staða í heiminum er ýkja ójöfn í dag.
Samkvæmt gögnum sem New York
Times styðst við, hafa 84 prósent
skammta verið gefin í hinum efna-
meiri ríkjum, en aðeins 0,3 prósent í
fátækari löndum. Á Íslandi teljast í
dag 86 prósent þeirra sem eru 16 ára
og eldri, til fullbólusettra, en í mörg-
um löndum nær hlutfall bólusettra
ekki tíu prósentum.
Björn Rúnar Lúðvíksson, yfir-
læknir á ónæmisdeild, bendir á að
það sé meiri vörn fyrir íslenskt sam-
félag að heimsbyggðin verði bólusett
til að hefta útbreiðslu og stökkbreyt-
ingu veirunnar. Meðan svo stór hluti
hafi ekki aðgang að bóluefni sé það
tímaspursmál hvenær enn skæðara
afbrigði kemur fram. Að hans mati
væri gott að gefa þeim sem eru með
ónæmisvanda þriðja skammtinn, en
ekki þeim sem hafa enga undirliggj-
andi áhættuþætti.
Már Kristjánsson, yfirlæknir á
smitsjúkdómadeild Landspítalans,
metur það svo að fræðilega væri hið
besta mál að hefja bólusetningar
með þriðja skammtinum. Ef litið er
hnattrænt á stöðuna sé, aftur á móti,
mikilvægast fyrir alþjóðasamfélagið,
að bólusetja sem flesta.
„Það þarf örvunarskammt eftir
Janssen og ekki ólíklegt að það þurfi
örvunarskammt eftir Pfizer og Mod-
erna líka, því það leið svo stuttur
tími milli fyrstu og annarrar
sprautu,“ segir Már. Ef marka má
niðurstöður rannsóknar Pfizer, gæti
vörnin verið farin að dvína hjá þeim
sem voru bólusettir fyrst, heilbrigð-
isstarfsfólki og eldri borgurum. Már
segist ekki sjá ummerki um það enn
þá en telur þó að það væri mikilvægt
að geta gefið þessum hópum örv-
unarskammt.
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, telur sjálf-
sagt mál að gefa viðkvæmum hópum
þriðja skammtinn en fyrst þurfi að
ljúka við að gefa Janssen-þegum
fyrsta örvunarskammtinn. „Ég skil
ekki hvernig stendur á því að ekki er
ráðist í bólusetningarherferð núna,“
segir Kári, en honum hefði þótt eðli-
legast að bólusetja alla þá 50.000 sem
fengu Janssen, í þessari viku. „Það
er ekki hægt að sætta sig við mán-
aðar sumarfrí frá bólusetningum í
miðjum faraldri.“
Bólusetningar virðast ekki virka
vel sem smitvarnir en þær hafa
reynst góð vörn gegn alvarlegum
veikindum smitaðra. Kári segir
viðbúið að hver bylgjan á fætur ann-
arri berist til landsins uns 75 til 80
prósent þjóðarinnar hefur smitast.
„Við þurfum bara að tryggja að hver
bylgja sé ekki svo stór að hún bugi
heilbrigðiskerfið og bugi atvinnuvegi
þjóðarinnar.“
Aðspurður hvort hann telji þörf
á að bólusetja alla þjóðina með þriðja
skammti Pfizer segir Kári það fara
eftir skilgreiningu á hugtakinu þörf.
Það auki varnir að bólusetja með
þriðju sprautu og eftir því sem varnir
séu betri, þeim mun minni hætta sé á
að fólk veikist. „Það er ekki ólíklegt
að smitvarnir aukist líka með þriðju
sprautu en aðalávinningurinn er að
koma í veg fyrir að menn verði lasn-
ir.“
Bólusetning barna hefur verið í
umræðunni og útlit er fyrir að það sé
næsta verkefni á eftir seinni bólu-
setningu Janssen-þega. Í ljósi þess
að Ísland virðist eiga nægilegt magn
af bóluefni, sér Kári enga ástæðu til
annars en að gera hvort tveggja á
sama tíma, bólusetja börn og við-
kvæma hópa. Hann lofar frammi-
stöðu heilsugæslunnar í síðustu
bólusetningarherferð, fara þurfi í
aðra slíka herferð.
Þrjár sprautur fyrir
viðkvæma eða alla
Morgunblaðið/Eggert
Herferð Kári hefði viljað sjá alla Janssen-þega endurbólusetta í vikunni.
Pfizer hefur birt niðurstöður úr rannsókn sem sýnir fram á að mótefni
fólks, á aldrinum 18 til 55 ára, fimmfaldist gegn Delta-afbrigði Covid-19
með þriðju sprautu af bóluefninu. Ekki er vitað hvort það hafi endilega í för
með sér betri vörn. Niðurstöðurnar bentu til þess að vörn bóluefnisins eftir
tvo skammta, skryppi töluvert saman að sex mánuðum liðnum. Lyfja- og
matvælaeftirlit Bandaríkjanna lýsti því yfir að þriðji skammturinn sé ekki
nauðsynlegur og að það sé ekki undir fyrirtækjum, eins og Pfizer, komið að
leggja mat á það hvort þörf sé á slíku. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, gefur ekki mikið fyrir þessa rannsókn lyfjarisans á eigin
bóluefni og telur að það væri mikilvægt að fá niðurstöður frá óháðum aðila
þó að lyfjafyrirtækin hafi sýnt af sér gott siðferði til þessa.
Vísbending um að vörn versni
NIÐURSTÖÐUR ÚR RANNSÓKN PFIZER Á EIGIN BÓLUEFNI