Morgunblaðið - 04.08.2021, Side 17

Morgunblaðið - 04.08.2021, Side 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2021 ✝ Steinunn Jóns- dóttir fæddist 11. nóvember 1933 í Hafnarfirði og ólst þar upp í for- eldrahúsum á Öldu- götu 12. Hún lést 19. júlí 2021 á hjúkrunarheimili Hrafnistu á Laug- arási. Foreldrar henn- ar voru hjónin Björney Jakobína Hallgrímsdóttir, kennari og húsmóðir, f. 28.4. 1904 í Bald- ursheimi í Mývatnssveit, d. 22.4. 1995, og Jón Jónsson fram- kvæmdastjóri, f. 25.9. 1908 á Langekru í Oddahverfi á Rang- árvöllum, d. 19.3. 2002. Bróðir Steinunnar var Þór- hallur Þrastar, f. 7.2. 1931, d. 29.4. 2018. Kona hans var Elín Ósk Guðjónsdóttir, f. 11.8. 1928, d. 20.2. 2012. Systir Steinunnar er Hallbera Kolbrún, f. 14.5. 1944. Maður hennar var Pétur Gylfi Axelsson, f. 11.10. 1938, d. 11.8. 1999. Hinn 25.9. 1955 giftist Stein- unn Þorvaldi S. Þorvaldssyni, arkitekt og Hafnfirðingi, f. 21.3. 1933. Börn þeirra eru: 1) Jón Þór arkitekt Teiknistofunni Úti og inni, f. 2.12. 1956, maki Guð- rún Anna Ingólfsdóttir, hús- móðir og sér um bókhald Úti og inni, f. 17.11. 1956. Börn þeirra eyrar. Börn þeirra eru a) Herdís Hlíf, listakona og nemi í Listaháskóla Íslands, f. 26.4. 1999, sambýlismaður Broddi Gautason húsasmíðanemi, f. 28.8. 1999, og b) Lúkas Hákon námsmaður, f. 29.4. 2004. Eftir nám og störf í Dan- mörku fluttu þau Steinunn og Þorvaldur S. heim til Íslands 1963 og bjuggu á Dunhaga 19 þar til þau fluttu 1970 í hús sem þau byggðu og Þorvaldur S. hannaði í Hábæ 39 í Árbæ. Árið 2017 fluttu þau í íbúð í Mörkinni við Suðurlandsbraut. Síðustu mánuði hefur Steinunn dvalið í Hrafnistu á Laugarási. Þau hjón gengu saman í Flensborg í Hafnarfirði 1947 til 1950 og síð- an saman í MR 1950 til 1954. Þau giftu sig í Danmörku 1955 og tvö fyrstu börnin fæddust þar. Steinunn starfaði Danmerkurárin hjá Flugfélagi Íslands í Kaupmannahöfn. Þor- valdur Bjarni bættist í hópinn á Dunhaga og Steinunn sá um heimili og börn. Hún starfaði síðar í Byggingarþjónustu Arki- tektafélags Íslands og sá um bókhald Teiknistofu Manfreðs og Þorvaldar S. um skeið. Hún var um tíma í stjórn nemenda- sambands MR og Dansk- íslenska félagsins. Útförin fer fram frá Árbæjar- kirkju í dag, 4. ágúst 2021, klukkan 13. eru a) Steinunn arkitekt, f. 20.6. 1980, gift Þresti Erlingssyni, eftir- litsmanni flug- rekstrardeildar, f. 19.6. 1975. Sameig- inleg börn þeirra eru Anna María, Hrafnkell, Heiðdís, Kristófer Þór og Þröstur Erling. Þannig er Steinunn fimmföld langamma. b) Elina María, cand. med., f. 19.8. 1996, sambýlis- kona Ásdís Margrét Ólafsdóttir f. 17.11. 1994, stundar listnám í Danmörku. 2) Herdís Sif, land- fræðingur og flugfreyja, f. 22.2. 1962, fyrrverandi eiginmaður Finnur Orri Thorlacius, f. 25.12. 1963. Börn þeirra eru a) Sindri Snær, tónlistarmaður og versl- unarmaður, f. 24.6. 1990, sam- býliskona Sólrún Dís Kolbeins- dóttir, nemi á lokastigi í dýralækningum, f. 23.2. 1991, og b) Snædís Sunna fornleifa- fræðingur, f. 23.2. 1997, sam- býlismaður Arthur Knut Farest- veit fornleifafræðingur, f. 6.10. 1995. 3) Þorvaldur Bjarni, tón- skáld, tónlistarstjóri Menning- arfélags Akureyrar og fram- kvæmdastjóri Sinfonia Nord, f. 3.3. 1966, maki Þórunn Geirs- dóttir, sýningar- og skipulags- stjóri Menningarfélags Akur- Hlýja, vernd, heimili, hjálpsemi, skarpskyggni, húmor, ást, traust, hógværð. Þessi orð koma upp í hugann þegar ég hugsa til mömmu. Hún var alltaf til í að hjálpa, vernda og leiðbeina, en passaði alltaf að ofvernda ekki því hún vissi að það væri okkur fyrir bestu að geta staðið á eigin fótum. Ég man enn þá (ótrúlegt) þegar hún hvatti mig til að labba sjálfur síð- asta spölinn að gæsluvellinum við Dunhagann þar sem við bjuggum og svo síðar að labba sjálfur heim (um 100 metra). Ég var alveg dauðskelkaður en síðan ótrúlega stoltur þegar mér loksins tókst að gera það einn. Fyrsta skrefið til sjálfstæðis. Seinna kom í ljós að hún fylgdist auðvitað með í leyni. Þetta var skapalónið að því hvern- ig við fórum í gegnum lífið saman. Hún var aldrei krefjandi en alltaf leiðbeinandi. Mamma var með fallega áru yf- ir sér og afar falleg kona. Hún hafði sinn stíl sem oft vakti að- dáun. Einu sinni þegar ég var ung- ur að vinna í miðasölu Háskólabíós sat ég þar með tveimur vinkonum mínum á táningsaldri. Sé ég ekki hvar mamma kemur allt í einu gangandi í átt að Landsbankanum sem var þarna við hliðina. Heyrist ekki í annarri stúlkunni: „Nauj nauj sjáiði pæjuna þarna!“ Þá var mamma á sextugsaldri! Ég býst við að maður hafi lært ýmislegt af henni varðandi stíl því þegar 80tís byrjaði var hún farin að lána manni úr fataskápnum sínum. Alltaf til í að aðstoða. Mamma var frábær kokkur og þótti meðal vina minna elda afar elegant rétti og stundum jafnvel framandi. Hún kveikti með okkur vinunum í Árbæ matarást sem mun vara út lífið. Italiensk forår- skylling, milljonböf, grilluð rif, svínasteik með pöru og kjöt í karríi eru réttir sem hoppa upp í hugann og svo fjöldi tilraunarétta með lambalifur. Lostæti! Hún hafði mikinn skilning á unglingaveikinni hjá okkur börn- um hennar. Í stað þess að stjórna með boðum og bönnum kom leið- beinandinn fram enn á ný. Hún vissi alveg að við krakkarnir vær- um að reyna að kaupa landa, sumir að sniffa og aðrir að stela brenni- víni úr vínskápum foreldra sinna. Hún þóttist ekki taka eftir slíku en í staðinn bauð hún manni að kynn- ast bragðinu af góðu léttvíni, bjór og einstaka kokteil. Þá hurfu þessi gambramál alveg eins og dögg fyr- ir sólu. Sömu aðferð var beitt í ásta- málum okkar unglinganna; engin boð eða bönn en kannski smá hint að því hvað væri viðeigandi þannig að maður lærði að bera ábyrgð í þeim málum líka. Og maður gat séð í augum mömmu þegar maður hafði loksins valið rétt, skarp- skyggnin. Steinunn Jónsdóttir, ég er for- sjóninni afar þakklátur að hafa fengið að eiga þig fyrir mömmu, ég einfaldlega hefði ekki getað verið heppnari. Þú áttir langt og farsælt líf með honum elsku pabba alveg frá því að þið voruð sex ára, sem er alveg einstakt. Nú er víst kominn tími til að kveðjast í bili. Ég veit að þú ert á góða staðnum og ég vona að ég fái að sjá þig þar þegar minn tími kemur. Bless á meðan mamma mín. F.h. barnanna í Hábæ 39, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Elsku fallega tengdamamma. Mikið á ég erfitt með að setjast nið- ur og skrifa minningarorð um þig. Á svo mikið af fallegum minningum enda kynntist ég syni þínum, Jónsa, 1973. Ein af þessum góðu er þegar við Jónsi og Elina María fór- um með ykkur tengdapabba til Danmerkur í tengslum við 60 ára brúðkaupsafmæli ykkar. Heim- sóttum alla staðina sem þið bjugg- uð á, ásamt því að skoða kirkjuna sem þið giftuð ykkur í. Fórum svo í bæjarrölt og þið tengdapabbi hoppuðuð á trampólíni niðri við höfn, yndisleg ferð. Þú varst mikil blómakona og ræktaðir öll ykkar sumarblóm frá fræi. Við nutum góðs af þessu og fengum alltaf nokkur þeirra sem voru gróðursett í okkar garði og heitir beðið Hábæjarbeðið! Síðustu dagana á meðal okkar varstu pínulítil eins og þú sagðir sjálf og vildir helst lúra en kíktir öðru hvoru með öðru auganu á okk- ur. Einn daginn komum við með langömmustrákana þína Þröst Er- ling sex og Kristófer Þór tíu ára. Þegar þú heyrðir í þeim glaðvakn- aðir þú, brostir þínu fallega brosi og spjallaðir við okkur og þeir fengu að knúsa þig. Á leiðinni út frá þér sneri Kristófer Þór sér að þér og sagði: „Ég elska þig.“ Amma brosti til hans og sendi honum loft- koss í kveðjuskyni og veifaði okkur. Elsku tengdamamma, hvíldu í friði. Þín tengdadóttir, Guðrún Anna. Yndislega fallega og góða amma mín er farin á vit ævintýr- anna. Er alveg viss um að hún sé á fallegum stað og að þegar minn tími kemur þá muni hún taka á móti mér með opinn faðm, bros á vör og nývaralituð með rauðum Chanel-varalit. Hún var svo mikil dama, heldur því pottþétt áfram á næsta stað. Minningarnar hellast yfir mig í sorginni en í senn verma hjartað. Ég sit með bros á vör og hugsa um tímann með nöfnu minni. Við tvær að horfa á Der- rick-þátt og afi að færa okkur eitt- hvað gott að drekka og hnetur, morgunmatur á bakka í rúmið, sundferðir þar sem ég vildi sund- hettu alveg eins og amma, skart- gripaskoðun, því þú áttir svo fal- lega gripi sem ég fékk að máta, ég fékk oft að taka til í förðunarskúff- unni, mikið þótti mér það gaman og prófa nokkra varaliti í leiðinni. Hef alltaf hugsað: Ég ætla að verða alveg eins og amma Stein- unn, hún er svo mikil dama. Hún ilmaði líka alltaf eins og blómarós, ekki fá skiptin sem ég læddist inn í skápinn og sprautaði á mig ömmuilmi. Amma kenndi mér líka að strauja, pressa föt, halda nöglunum fallegum, leggja á borð og elska blóm og gróður. Þetta er brot af fallegum minn- ingum. Þetta er einmitt það sem skiptir máli; að skapa minningar með fólkinu sínu á meðan við get- um. Það er það sem kallast ríki- dæmi. Elsku amma mín, við sjáumst aftur. Ég vinka litla putta upp til himna og ég veit að þú munt vinka á móti. Elska þig. Fyrir hönd barnabarnanna, Steinunn Jónsdóttir. Kveðja frá MR ’54 Örlögin raða fólki oft skemmti- lega saman í lífinu. Haustið 1950 settust ríflega hundrað unglingar á skólabekk í gamla Lærða skól- anum við Lækjargötu. Þó að við kæmum víða að, sum þekktust fyrir og önnur ekki, myndaðist brátt vinátta sem varir enn og hef- ur þessi árgangur fengið orð á sig fyrir einstaka samheldni. Í þessum góða hópi var hún Steinunn okkar, sem við kveðjum í dag, og kom úr Hafnarfirði, fríð og ljúf og flestum kvenlegum dyggð- um búin. Ekki laust við að ýmsir litu hana hýru auga. En við það var ekki komandi; úr Hafnarfirði kom líka strákur og hún leit ekki við öðrum. Þetta var Þorvaldur S. Þorvaldsson sem nokkrum árum síðar var orðinn inspector okkar og síðar virtur arkitekt. Þau biðu ekki boðanna og gengu í hjónaband sama ár og við lukum stúdentsprófi; þá komin til Kaupmannahafnar, hún til starfa fyrir Flugfélag Íslands, hann til að nema húsagerðarlistina. Svo komu börnin og eru þrjú og eiga öll velgengni að fagna. En að lok- inni Kaupmannahafnardvölinni bjó Steinunn þeim öllum vistlegt heimili og rómað fyrir gestrisni þeirra, ekki síst eftir að bóndinn reisti þeim hús í Árbænum þar sem gott dæmi um fallegan arki- tektúr og náttúrulegt umhverfi fallast í faðma. Samheldni árgangsins hefur fremur færst í aukana en hitt með árunum og höfum við flakkað víða saman og glaðst oft. Þar hafa þau Þorvaldur og Steinunn ávallt verið í fararbroddi. Hér er því skarð fyrir skildi. Við eigum eftir að sakna hlýja skilningsríka brossins hennar Steinunnar og hennar elskulega viðmóts, eiginleika sem aldrei er nóg af í veröldinni. Um leið og við þökkum samfylgdina vottum við Þorvaldi og fjölskyld- unni samúð okkar. Árni Kristinsson, Sveinn Einarsson. Steinunn Jónsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GERÐUR ÞÓRKATLA JÓNASDÓTTIR, áður Auðkúlu við Hellu, lést fimmtudaginn 22. júlí á hjúkrunarheimilinu Dyngju, Egilsstöðum. Útförin fer fram frá Oddakirkju föstudaginn 6. ágúst klukkan 14. Sævar Jónsson Þorgils Torfi Jónsson Þórhalla Sigmundsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR JÓNSSON húsasmíðameistari, andaðist á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Sléttuvegi, laugardaginn 24. júlí. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 5. ágúst klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni, hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat. Guðrún S. Óskarsdóttir Sólveig Óskarsdóttir Hilmar Baldursson Gunnar Óskarsson Dagný Brynjólfsdóttir Fanney Óskarsdóttir Guðjón Erling Friðriksson og fjölskyldur Ástkær faðir okkar, sonur, bróðir, mágur og frændi, AÐALSTEINN SMÁRASON, lést á krabbameinsdeild Landspítalans v/Hringbraut mánudaginn 19. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Benedikt Emil Aðalsteinsson Tanya Ruth Aðalsteinsdóttir Sigrún Þorbjörnsdóttir Ásta Bára Smáradóttir Magnús Helgason Sigríður Reykjalín Hreggviðsdóttir og frændsystkini Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SÓLEY GUÐMUNDA VILHJÁLMSDÓTTIR, Króksfjarðarnesi, lést á HVE Akranesi mánudaginn 26. júlí Útförin fer fram frá Hólmavíkurkirkju föstudaginn 6. ágúst klukkan 14. Vegna samkomutakmarkana verða eingöngu ættingjar og vinir viðstaddir útförina en athöfninni verður streymt á facebooksíðunni Sóley Guðmunda útför. Arnór Grímsson Jónína Margrét Arnórsdóttir Grímur Arnórsson Erla Arnórsdóttir Vilhjálmur Arnórsson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, tengdadóttir og amma, SIGURLÍNA JÓNSDÓTTIR, Lína, Húsavík, lést á sjúkrahúsinu á Húsavík fimmtudaginn 29. júlí. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 7. ágúst klukkan 14. Streymt verður frá athöfninni á facebooksíðu kirkjunnar. Þeim sem vilja minnast Línu er bent á styrktarfélag HSN Húsavík. Fjölskyldan þakkar auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls Línu. Þórarinn Höskuldsson Jón Hafþór Þórisson Sukanda Kaewya Tinna Þórarinsdóttir Ómar Þorgeirsson Rakel Þórarinsdóttir Gestur Einarsson Höskuldur Sigurjónsson Einar Ari, Jónas Þór, Bryndís Lína, Ingibjörg Halla og Hafdís Hanna Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN EMIL BJÖRNSSON, áður til heimilis í Þykkvabæ 15, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum 28. júlí. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju mánudaginn 9. ágúst klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni. Virkan hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat. Dóróthea Jóhannsdóttir Hörður Helgason Sigrún Jóhannsdóttir Skúli Guðbjarnarson Ragnar Jóhannsson Anna Friðriksdóttir barnabörn og barnabarnabörn Faðir okkar, KRISTMUNDUR ELÍ JÓNSSON verslunarmaður, áður til heimilis á Einimel 17 í Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn 31. júlí. Utför verður auglýst síðar. Dætur hins látna og fjölskyldur þeirra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.