Morgunblaðið - 04.08.2021, Side 25

Morgunblaðið - 04.08.2021, Side 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Bandaríski blústónlistarmaðurinn Chuck E. Weiss er látinn 76 ára að aldri. Weiss þótti um langt skeið meðal litríkari tónlistarmanna Los Angeles-borgar en hann vakti fyrst athygli á seinni hluta áttunda ára- tugarins sem náinn vinur og fylgdarmaður tónlistarfólksins Toms Waits og Rickie Lee Jones sem voru þá par. Jones samdi eitt þekktasta lag sitt, „Chuck E’s in Love“, um Weiss. Chuck E. Weiss lék á trommur, samdi tónlist og söng, og á seinni árum var hann einnig næturklúbbs- eigandi. Á níunda áratugnum lék hann oft ásamt hljómsveit sinni, The Goddamn Liars, á klúbbi sem hét Central. Seinna fékk hann vin sinn, leikarann Johnny Depp, til að kaupa klúbbinn með sér og fleirum. Nefndu þeir staðinn þá Viper Room og varð hann einn vinsælasti nætur- klúbburinn í Los Angeles. Weiss hóf tónlistarferilinn í heimaborginni Denver sem tromm- ari með blúsurum og lék til að mynda með Lightnin’ Hopkins og John Lee Hooker. Hann var byrj- aður að hljóðrita eigin tónlist um 1973 og þá kynntust þeir Tom Waits sem hafði komið til Denver til að halda tónleika og voru þeir nán- ast óaðskiljanlegir um nokkurra ára skeið. Fyrsta plata Weiss, The Other Side of Town, kom út árið 1981. Waits var seinna upptöku- stjóri þekktustu plötu Weiss, Extremely Cool (1999). Waits kem- ur einnig fram á plötunni ásamt vini sínum. Tónlistarmaðurinn Chuck E. Weiss allur Óvenjulegur Weiss fetaði eigin slóð og starfaði með þekktum listamönnum. Hrafnhildur Gísladóttir hefur opn- að sýningu á málverkum í Energia- kaffihúsi í Smáralind. Mun sýningin standa út mánuðinn, til 31. ágúst og er hún opin á afgreiðslutímum kaffihússins. Á sýningunni eru 15 verk, mest náttúrumyndir og lands- lag en einnig fantasíur. Þetta er 12. einkasýning Hrafn- hildar, sem kallar sig Hröfnu, og þá hefur hún átt verk á einum 15 sam- sýningum. Í tilkynningu kemur fram að hún hafi unnið að málverk- inu síðastliðin 11 ár. Hrafnhildur stundaði nám í myndlist í Mynd- lista- og hand- íðaskólanum í eitt ár og sótti einnig námskeið í Myndlistaskól- anum í Reykja- vík. Þá hefur hún sótt námskeið hjá listamönnum á borð við Þuríði Sigurðardóttur og Soffíu Sæ- mundsdóttur. Hrafnhildur sýnir málverk í Smáralind Hrafnhildur Gísladóttir Hart hefur verið tekið á óviður- kvæmilegum og ruddalegum um- mælum sem bandaríski rapparinn sem kallar sig DaBaby lét falla á sviði í Flórída í liðinni viku um sam- kynhneigða karla og AIDS- sjúkdóminn. Stjórnendur Lollapa- looza-tónlistarhátíðarinnar aflýstu til að mynda fyrirhugaðri þátttöku rapparans á tónleikum í Chicago því hátíðin væri „byggð á fjöl- breytileika, virðingu og ást“. Þá hafa listamenn á borð við Elton John, Demi Lo- vato, Madonnu og Dua Lipa, sem hefur unnið með DaBaby, for- dæmt ummæli hans. John sagði óverjandi og hat- ursfull ummælin kynda undir mis- rétti og for- dómum gagnvart samkynhneigðum og AIDS-sjúkdómnum. DaBaby gagnrýndur fyrir ummæli Rapparinn DaBaby Samhliða Feneyjatvíæringnum í myndlist á næsta ári verður sett upp í safninu Gallerie dell’Acca- demia þar í borg sýning á nýjum verkum eftir hinn heimskunna bresk-indverska skúlptúrista Anish Kapoor. Hluti verkanna verður lit- aður með „Vanta-Black“, sem mun vera dekksti svartur sem til er. Verk Kapoors verða samtímis gerð aðgengileg í Feneyjum með varanlegum hætti því stofnun lista- mannsins, sem heldur utan um verk hans, hefur nú fengið öll tilskilin leyfi frá borgaryfirvöldum og er að koma sér fyrir í höll frá 18. öld, Pal- azzo Priuli Manfrin, sem stendur við Cannaregio-síkið. Þar verða höfðustöðvar Anish Kapoor Found- ation. Á neðstu hæðinni verða salir fyrir sýningar á samtímalist og bókaverslun með útsýni yfir síkið. Á efri hæðum byggingarinnar verða vinnustofur Kapoors og gagnasafn um listamanninn og verk hans. Þar verður líka aðstaða fyrir fræðimenn, ráðstefnur og fundi og þá verða lykilverk eftir Kapoor varðveitt þar og sýnd. Verkum Anish Kapoors komið fyrir í stofnun hans í Feneyjum Ljósmynd/Wolfgang Moroder Merkisbygging Stofnun Anish Kapoors verður í Palazzo Priuli Manfrin í Feneyjum. Vonir stjórnenda Disney-fyrir- tækisins um að áhugafólk um kvik- myndir væri orðið reiðubúið að fara í kvikmyndahús þrátt fyrir veirufar- aldur til að láta skemmta sér virðast ekki hafa gengið eftir. Disney hefur beðið um hríð með frumsýningu gamansömu ævintýramyndarinnar Jungle Cruise en fleyinu var loks hleypt af stokkunum nú fyrir helgi. Afraksturinn var, samkvæmt The New York Times, langt frá því sem aðstandendur vonuðust til í kjölfar afar dýrrar markaðsherferðar. Í Jungle Cruise leikur Emily Blunt eins konar breska útgáfu af Indiana Jones og Dwayne Johnson, sem er nú tekjuhæsti kvikmynda- leikari vestanhafs, fer með hlutverk skipstjóra fljótabáts. Gerð kvik- myndarinnar mun hafa kostað yfir 200 milljónir dala og markaðs- herferðin aðrar 100 milljónir, sam- tals hátt í 40 milljarða króna. Mynd- in var fyrir og um helgina sýnd í um 4.300 sölum vestanhafs og seldust miðar fyrir 34 milljónir dala, sem var langt undir væntingum. Þá seldust miðar í öðrum löndum fyrir um 28 milljónir dala. Ákveðið var að bjóða áhorfendum heima fyrir líka upp á að kaupa áhorf að myndinni á Disn- ey+-streymisveitunni og kusu margir þá leið en út um heimsbyggð- ina voru greiddar um 30 milljónir dala fyrir streymið. Stjórnendur Disney ákváðu að fara sömu leið með Marvel- ofurhetjumyndina Black Widow, að setja hana samtímis í sýningu í kvik- myndahúsum og á Disney+, en fyrstu þrjá dagana greiddu áhorf- endur um 60 milljónir dala fyrir streymið á henni. Aðalleikonan Scarlett Johansson var ekki ánægð með þá ákvörðun að bjóða samtímis upp á myndina í streymi og hefur höfðað mál gegn Disney þar sem hún segir að ákvörðunin dragi mögulega úr tekjum hennar af myndinni um sem nemur milljónum dala. Stjórnendur Disney hafa sagt ásökunina án innistæðu. Tekjulítil frumskógarsigling - Gestir virðast enn hika við að flykkjast í bíó AFP Stjörnur Emily Blunt og Dwayne Johnson við heimsfrumsýningu Jungle Cruise í Disneyland á dögunum. Aðsókn á myndina veldur vonbrigðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.