Morgunblaðið - 06.08.2021, Síða 15

Morgunblaðið - 06.08.2021, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2021 Fjallabak Skálar á hálendinu hafa verið vel nýttir í sumar. Hér slær hópur ferðamanna frá Ísrael upp tjaldbúðum í blíðviðri við skálann Strút að Fjallabaki. Kristinn Magnússon Undir lok maí 2021 skilaði fjölmennur stýrihópur sem for- sætisráðherra skipaði í júní 2020 176 bls. lokaskýrslu sinni um heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir. Hópnum var ætlað að ræða leiðir til að nýtingu lands og réttindum sem tengjast landi yrði hagað í samræmi við landkosti með hagsmuni sam- félagsins og komandi kynslóða að leiðarljósi, að teknu tilliti til efna- hagslegra, félagslegra og menning- arlegra sjónarmiða. Þarna er um grundvallarmál að ræða sem snertir marga sam- félagsþætti. Hér skal drepið á tvo: jarðasöfnun og fjárfestingarýni. Jarðasöfnun Í skjali frá Hagfræðistofnun Há- skóla Íslands er rætt um áhrif jarðasöfnunar á byggð. Með sam- þykkt jarðalaga árið 2004 var fólki sem ekki stundaði búskap auðveld- að að eignast jarðir. Jarðaverð hækkaði enda tóku „fjáraflamenn“ að kaupa jarðir í fjárfestingar- skyni. Fyrirtækið Lífsval átti til dæmis um tíma meirihluta í 45 jörðum áður en það hafnaði í hönd- um lánardrottna og segir hagfræði- stofnun ekki „ljóst hvort fjárfest- arnir horfðu til skamms tíma, en eftir á [sé] ljóst að bæði þeir og bankinn fóru óvarlega“. Erfitt sé að koma í veg fyrir glannalegar fjárfestingar jarðasafnara. Varla verði spornað við spákaupmennsku með jarðir nema með því að setja um leið hömlur á alla jarðasöfnun. Með lagabreytingunni árið 2004 varð auðveldara fyrir erlenda ríkisborgara að kaupa land hér en víða í EES-löndum. Reglur EES- samstarfsins heimila því að setja landa- kaupum útlendinga þrengri skorður. Telur hagfræðistofnun hins vegar að kaup þeirra hér hafi „sennilega aldrei verið svo mikil að þau hafi haft veru- leg áhrif á jarðaverð almennt“. Öðru máli kunni að gegna um staðbundin áhrif sem gætu hafa verið töluverð, bæði á verð jarða og mannlíf í sveitum. „Tekjur manna eru skattlagðar þar sem þeir eiga heima og ef þeir flytja úr sveitinni flytjast skatt- tekjurnar með. Viðmælandi varp- aði fram þeirri hugmynd að tekjur af hlunnindum yrðu skattlagðar heima í héraði,“ segir hagfræði- stofnun. Að baki þessari skoðun liggur ótti við landauðn vegna jarðasöfnunar sé ekkert eftir af hlunnindatekjum í viðkomandi byggðarlagi. Í fyrra samþykkti Alþingi lög sem heimila ráðherra að hindra jarðakaup ef kaupandinn á fyrir til- tekinn fjölda jarða hér á landi eða jarðirnar fara yfir tiltekna stærð. Í nýju skýrslunni er lagabreyting- unni frá í fyrra fylgt eftir með drögum að ítarlegu frumvarpi. Fjárfestingarýni Íslensk lög um fjárfestingarýni (e. investmenn screening) standast ekki nútímakröfur. Fjárfestinga- rýni er stjórnsýsluferli til að skima ákveðna fjárfestingu t.d. í fyrirtæki sem stendur að samfélagslegu grunnvirki. Í samhengi starfs stýrihóps for- sætisráðherra hefur rýniferlið að laganemi hefði í nýrri meistara- prófsritgerð skoðað regluverk um skimun (fjárfestingarýni). Hvatti hann íslensk stjórnvöld til að taka upp skipulegar skimanir á erlendri fjárfestingu. Í mörgu tilliti er þar ekki um val að ræða heldur skyldu. Samstarf vinveittra ríkja er reist á því að þau meti og skilyrði fjárfestingar með vísan til þjóðaröryggis. Albert Guðmundsson sagði mik- ilvægt að lagareglur um skimunina væru skýrar og fyrirsjáanlegar og fælu ekki í sér dulda mismunun: „Skimanir nágrannalanda taka iðulega til fjárfestinga innan ákveðinna geira eða þvert á geira og miða þá yfirleitt við ákveðinn þröskuld. Til dæmis ef fjárfest- ingar ná ákveðnum þröskuldi, segjum 10 til 25 prósenta eignar- hlut, þá fer skimunarkerfið í gang.“ Albert Guðmundsson sagði að líta yrði til margra þátta við mat á hvenær fjárfesting ógnaði þjóðar- öryggi. Í fyrsta lagi yrði að greina og samþykkja að öryggismunur væri á innlendum og erlendum fjárfestingum. Í öðru lagi yrðu ís- lensk stjórnvöld að lögfesta fjár- festingarýni. Í þriðja lagi yrðu lög- in að taka mið af því að það „er alltaf á ábyrgð ríkja að tryggja sitt eigið þjóðaröryggi. Það er enginn annar að fara að passa upp á þjóð- aröryggi okkar“. Kosningamál Hafi einhver efast um gildi skimana í þágu þjóðaröryggis ætti reynslan af baráttunni við kórónu- veiruna að þurrka út allan vafa. Skimun og mat á sýnum er lykil- þáttur að baki ákvörðunum yfir- valda um sóttvarnaaðgerðir til að tryggja öryggi og heilbrigði þjóð- arinnar. Mælanlegur árangur í baráttu við veiruna ræður því hvernig ríki eru flokkuð til ferðalaga. Hallað hefur á ógæfuhlið hér undanfarið vegna slíkra mælinga. Mælanlegur árangur við upp- ljóstrun peningaþvættis ræður miklu í samskiptum ríkja. Í októ- ber 2019 var Ísland sett á gráan lista FATF, alþjóðlegs starfshóps um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Við vorum skráð af listanum í október 2020 eftir átak af hálfu stjórnvalda. Sé til grár listi til upplýsinga um skort á fjárfestingarýni er líklegt að Ísland lendi á honum verði ekki lögfestar nútímalegar heimildir til að skima fjárfestingar og tryggja virk stjórnsýsluúrræði á þessu sviði. Þegar innan við tveir mánuðir eru til alþingiskosninga er rétti tíminn til að vekja athygli á þess- um álitaefnum. Eignarhald á landi og hugmyndir um að útlendingar séu að sölsa undir sig óhóflega mikið land eru mikið hitamál. Um- ræðurnar eru þó oftast á tímum þegar almenningur hefur mun minni áhrif á niðurstöðuna en þeg- ar tækifæri gefst til að knýja á um svör frambjóðenda í tengslum við kosningar. Við stöndum nágrannaþjóðum að baki við rýni fjárfestinga og hér eru ekki fyrir hendi samræmd korta- og myndgögn af landi til að framfylgja ákvörðunum stjórn- valda á markvissan hátt. Vegna skorts á nútímalegum lögum, stjórnsýslureglum og miðlægum loftmyndagrunni um landamerki verða þessi mál áfram í lausu lofti þar til alþingi tekur af skarið. Hér á löggjafinn og fjárveiting- arvaldið mikið verk óunnið. Þetta er brýnt kosningamál. Verðmæti lands eykst og eftirspurnin vex. Eftir Björn Bjarnason » Þegar innan við tveir mánuðir eru til al- þingiskosninga er rétti tíminn til að vekja athygli á þessum álitaefnum. Björn Bjarnason Höfundur er fyrrv. ráðherra. Kosningamál: jarðasöfnun og fjárfestingarýni markmiði að greina fjárfestingu í landi, auðlindum og mikilvægum grunnvirkjum með tilliti til þess hvort hún ógni öryggi, allsherjar- reglu, varnarhagsmunum eða ann- ars konar þjóðaröryggishags- munum. Víða um lönd gilda reglur um fjárfestingarýni vegna þjóðarhags- muna þar sem samþætt eru annars vegar sjónarmið um mikilvægi fjár- festingar fyrir efnahagslífið og hins vegar nauðsyn þess að tryggja að fjárfestingin sé samrýmanleg þjóð- aröryggishagsmunum. Reglurnar banna ekki fjárfestingu heldur tryggja stjórnvöldum tæki til að skima tilteknar tegundir fjárfest- inga á sviði hervarna, orku, flutn- inga, vatns- og hitaveitu, heilbrigð- isstarfsemi og fjarskipta. Hér er engin heildstæð löggjöf um fjárfestingarýni í þágu þjóðar- öryggis. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri er þó að finna svonefnt öryggisákvæði þar sem ráðherra er veitt heimild til að stöðva erlenda fjárfestingu í atvinnurekstri teljist hún ógna öryggi landsins eða ganga gegn allsherjarreglu, almannaöryggi eða almannaheilbrigði, að nánari skil- yrðum uppfylltum. Þetta ákvæði stenst ekki saman- burð við nýjar reglur nágranna- og samstarfsríkja og veikir traust þessara ríkja í garð aðila hér á landi. Ekki val heldur skylda Fyrr í sumar sagði í Frétta- blaðinu að Albert Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.