Morgunblaðið - 28.08.2021, Page 4
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
N
ýtt fiskveiðiár hefst um
komandi mánaðamót og
fengu útgerðirnar bæði
slæmar og góðar fréttir
þegar tilkynnt var um breytingar á
aflaheimildum. Stefán Friðriksson
framkvæmdastjóri Ísfélags Vest-
mannaeyja segir þær breytingar
sem verða á milli ára ekki koma eins
illa við reksturinn hjá Ísfélaginu og
mörgum öðrum fyrirtækjum og að
fyrirsjáanlegt hafi verið að þorsk-
kvótinn yrði minnkaður.
Ísfélagið stundar veiðar á bæði
uppsjávar- og bolfiski en uppsjáv-
artegundirnar mynda um það bil
þrjá fjórðu af tekjum félagsins.
„Uppsjávarfiskurinn hefur verið
mjög sveiflukenndur og loðnan –
sem skiptir okur mestu máli – verið
í niðursveiflu undanfarin ár. Núna
hefur sú þróun snúist við, útlit fyrir
góða loðnuvertíð og bjartar horfur
fram undan. Eins líta veiðar á mak-
ríl og norsk-íslenskri síld ágætlega
út, og þá hafa stjórnvöld tvöfaldað
kvótann úr íslenska síldarstofn-
inum.“
Undanfarin ár hafa verið nokkuð
erfið fyrir útgerðir sem reiða sig á
loðnuveiðar og segir Stefán að það
hafi komið sér vel fyrir félagið að
hafa bolfiskveiðar og -vinnslu einnig
sem stoð í rekstrinum. Fyrir vikið
hafi gengið ágætlega að skapa bæði
störf og verðmæti. „En bæði fyrir
fyrirtækið og fyrir starfsfólkið er
það loðnan sem er langmikilvægust.
Blessunarlega var ágætis gangur í
makríl- og síldveiðum þau ár sem
voru loðnulaus.“
Spurður hvort miklar sveiflur hjá
uppsjávartegundunum kalli á lang-
tímabreytingar á rekstrinum segir
Stefán að Ísfélagið hafi í smáum
skrefum styrkt sig í vinnslu og veið-
um á bolfiski, bæði með kaupum á
aflaheimildum og með bættum bún-
aði í landi. Hins vegar sé það ekki
endilega nauðsynlegt fyrir sjávar-
útvegsfyrirtæki að geta jöfnum
höndum veitt bolfisk- og uppsjáv-
artegundir. „Finna má fyrirtæki í
greininni sem stóla nær eingöngu á
uppsjávarveiðar og reiðir ágætlega
af. Þau þurfa einfaldlega að hafa
borð fyrir báru svo þau geti tekist á
við sveiflurnar.“
Þarf að setja meiri
kraft í rannsóknir
Algengt er að stjórnendur útgerð-
arfélaga séu ósammála ráðlegg-
ingum Hafrannsóknastofnunar og
telji stærð og ástand fiskstofnanna
betra en ráða má af mælingum.
Stefán er samt að stórum hluta
sammála þeim breytingum sem
gerðar eru á aflaheimildum í þetta
skiptið. „Ég held að íslenski síld-
arstofninn sé sterkari en fiskifræð-
ingarnir hafa talið, en skil hins veg-
ar vel að stjórnvöld vilji fara varlega
enda hefur sýking haft töluverð
áhrif á vöxt og viðgang þessa stofns
að undanförnu.“
Segir Stefán að það væri til þess
fallið að stórbæta ákvarðantöku um
fiskveiðar og um leið auka svigrúm
til veiða ef meira fjármagni væri
varið í hafrannsóknir. Segir hann
vísindamennina hafa úr mjög tak-
mörkuðu magni gagna að moða og
öll óvissa sé túlkuð á þá vegu að
minnka veiðar frekar en hitt:
„Íslendingar eyða allt of litlu í
rannsóknir á lífríkinu í hafinu um-
hverfis landið og ég er þess fullviss
að með auknum framlögum til rann-
sókna, og bættri þekkingu á þeim
fiskstofnum sem við nýtum, myndu
vísindamenn Hafrannsóknastofn-
unar treysta sér til að mæla með
aukningu veiðiheimilda sem síðan
myndi skila sér í viðbótartekjum
fyrir þjóðarbúið sem væru langt
umfram kostnaðinn við rannsókn-
irnar,“ útskýrir Stefán. „Það má
líkja þessu við bónda sem hugar lít-
ið að kynbótum á bústofninum og
fylgist ekki með því hvaða fóður fær
skepnurnar til að þrífast best. Þann-
ig bóndi mun alltaf uppskera minna
en hinir sem þekkja bústofninn sinn
betur og sinna honum rétt.“
Ekki viðunandi að
missa MSC-vottun
Í ljósi aflaheimilda og ástandsins á
helstu mörkuðum ættu næstu miss-
eri í rekstri Ísfélagsins að ganga vel
fyrir sig. Stefán segir það þó spilla
fyrir að kolmunnaveiðar, makríl-
veiðar og veiðar úr norsk-íslenska
síldarstofninum hafi misst MSC-
vottun. Í tilviki síldarinnar voru
verðáhrifin takmörkuð en hins veg-
ar skaðaði vottunarmissirinn verðið
á kolmunnanum og fæst núna lak-
ara verð fyrir kolmunnamjöl. Segir
Stefán ekki viðunandi að þær þjóðir
sem deila þessum stofnun skuli ekki
geta náð samkomulagi um réttláta
skiptingu.
Mikið af þeim uppsjávarfiski sem
Ísfélagið veiðir fer í fóðurfram-
leiðslu fyrir laxeldi og kann ör vöxt-
ur í þeirri grein að skýra að hráefn-
isverð hefur leitað upp á við. „Verð
á makríl og síld til manneldis hefur
líka verið ágætt og hugsanleg skýr-
ing að í faraldrinum hafi fólk leitað
meira í hefðbundið niðursoðið eða
niðurlagt sjávarfang.“
Á komandi fiskveiðiári skerðist
þorskkvótinn um 13% og segir Stef-
án það vissulega valda greininni
tekjutapi enda þorskurinn algjör
lykiltegund, og beri höfuð og herðar
yfir aðrar fisktegundir bæði hvað
varðar það verð sem kaupendur eru
tilbúnir að greiða og eins hve auð-
velt er að veiða þorskinn. „Þetta er
sú tegund sem skilar yfirleitt mestri
afkomu,“ segir hann. „En þetta er
líka sá stofn sem við þekkjum best
og höfum rannsakað hvað lengst, og
því erfiðara að deila um þær vís-
indalegu forsendur sem eru fyrir
ákvörðuninni. Ætti skerðing kvót-
ans ekki að koma útgerðunum á
óvart enda hefur mátt greina bæði
minnkandi veiði og að smærri fiskur
veiddist.“
Skerðing þorskkvótans var fyrirsjáanleg
Útlit er fyrir gott loðnuár
hjá Ísfélaginu. Stefán Frið-
riksson framkvæmda-
stjóri myndi vilja sjá haf-
rannsóknir efldar til að
bæta ákvarðanatöku um
nýtingu stofna.
Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
Heimaey VE 1 og Sigurður VE 15 að veiðum. Sveiflur hafa verið í kvóta uppsjávartegunda en tekist að aðlaga rekstur Ísfélagsins síbreytilegum skilyrðum.
Vísindamennirnir hafa úr
mjög takmörkuðu magni
gagna að moða og öll
óvissa túlkuð á þá vegu að
minnka veiðar frekar en hitt
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Árið 2015 hófu rússnesk stjórnvöld
að beita Ísland viðskiptaþvingunum,
sem svar við þeim þvingunum sem
Vesturlönd höfðu þá skömmu áður
beitt Rússland vegna hernaðar-
aðgerða á Krímskaga. Þar með
misstu íslensk sjávarútvegsfyrirtæki
aðgang að dýrmætum markaði og
var höggið hvað þyngst fyrir útflytj-
endur uppsjávartegunda. Segir Stef-
án að Rússlandsmarkaður hafi bæði
keypt mikið magn og greitt gott
verð, og hafi þær vörur sem áður
fóru til Rússlands í staðinn leitað
inn á markaði m.a. í Afríku þar sem
ómögulegt er að fá jafn hátt verð.
Hefur ekki tekist að aflétta þving-
ununum og bendir Stefán á að nú
sé svo komið að
jafnvel ef Rúss-
landsmarkaður
opnaðist á ný
væri líklega ekki
eins mikið þang-
að að sækja og
áður fyrir ís-
lenska seljendur
sjávarafurða: „Á
þessum sex ár-
um hefur rúss-
neskur sjávarútvegur styrkst tölu-
vert og ég hugsa að það sé enginn
sérstakur áhugi þar fyrir því að fá
núna innfluttan íslenskan fisk í
samkeppni við innlenda fram-
leiðslu.“
Spurning hvort Rússarnir hafi
lengur áhuga á íslenskum fiski
Vladimír Pútín
„Ég er þess fullviss að með auknum framlögum til rannsókna, og bættri þekkingu á þeim fiskstofnum sem við nýtum, myndu
vísindamenn Hafrannsóknastofnunar treysta sér til að mæla með aukningu veiðheimilda,“ segir Stefán Friðriksson.