Morgunblaðið - 28.08.2021, Side 6
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
A
lls hafa 84 brottkastsmál
verið skráð hjá Fiskistofu
frá 1. september 2020 til 13.
ágúst 2021. Þar af eru 83
mál sem uppgötvuðust með notkun
dróna. „Megnið af brottkastsmálum
sem komist var upp um með dróna
fóru í leiðbeiningaferli – bara á
meðan við höfum verið með þetta
eftirlit. Þetta er nýtt eftirlit og þeg-
ar er um að ræða fyrsta brot höfum
við verið að leiðbeina, en á nýju
fiskveiðiári munum við fara að taka
harðar á þessum brotum,“ segir
Elín B. Ragnarsdóttir, sviðsstjóri
veiðieftirlits hjá Fiskistofu.
Málin kunna jafnvel að verða
fleiri þegar fiskveiðiárið er gert
upp. „Það er þarna nokkur fjöldi
mála sem eru enn í vinnslu og fisk-
veiðiárið ekki búið og þetta er stað-
an 13. ágúst. Líka eru nokkur
brotamál sem eru ekki komin inn á
borð hjá okkur og eru enn í rann-
sókn, þau eru ekki talin upp.“
Hún segir ákvörðun hafa verið
tekna um að styðjast við leiðbein-
ingabréf að sinni þar sem um er að
ræða nýtt eftirlit. Þá hafi með
þessu verið hægt að vekja athygli á
drónaeftirlitinu áður en gripið verð-
ur til annarra úrræða.
Algjör bylting
Elín segir engan vafa vera um að
drónaeftirlitið sé komið til að vera.
„Þetta er algjör bylting í því að
koma auga á brottkast. Við sjáum
það á tímabilinu frá fyrsta sept-
ember [í fyrra] og fram í miðjan
janúar [á þessu ári] þá er þetta eitt
brottkastsmál, en frá miðjum jan-
úar og til 13. ágúst eru 83 brott-
kastsmál með dróna. Þannig að við
erum að sjá brottkastið miklu betur
með dróna.“
Mun notkun drónanna breytast
eða aukast á næsta fiskveiðiári?
„Það sem verður breytingin í
notkun á drónunum er að við mun-
um beita þeim fjær landi. Við vor-
um þangað til í vor fyrst og fremst
að fljúga frá landi, en í sumar byrj-
uðum við að fljúga frá bátum og
skipum. Þannig getur eftirlitsmaður
sem er í einu skipi einnig haft eft-
irlit allt í kring. Svo höfum við einn-
ig farið með Landhelgisgæslunni og
nýtt dróna og þannig haft eftirlit
með þessum stærri skipum og tog-
urum sem eru fjær landi. Við mun-
um auka það eftirlit eins og við get-
um.“
Greining auki skilvirkni
Þeir sem fljúga drónunum hafa
hlotið þar til gerða þjálfun en spurð
hvort þurfi að fjölga mannskap
stofnunarinnar til að efla eftirlitið
enn frekar segir Elín svo ekki endi-
lega vera. „Við erum svolítið að
breyta fyrirkomulagi eftirlitsins og
gera það áhættumiðaðra og við er-
um að innleiða áhættugreining-
arstaðal og munum nota greiningar
og gögn meira í eftirlitsskyni. Við
erum að styrkja tölvukerfin okkar
og taka í gagnið alls konar grein-
ingartól. Það er breytingin á eft-
irlitinu sem við sjáum koma í gagn-
ið á næsta ári.“
Þá sé hugsunin að aukin greining
geri stofnuninni kleift að beina eft-
irliti á þær hafnir og þá báta sem
skora hærra í áhættumati. „Þeir
sem brjóta ítrekað af sér skora því
hærra en í tilfelli þeirra sem eru
alltaf í lagi í okkar eftirliti munum
við ekki beina eftirliti okkar í sama
mæli að þeim.“
Einnig er stefnt að því að tryggja
gagnsæi í eftirliti Fiskistofu, að
sögn Elínar. „Við munum einnig
birta enn frekar gögn um umgengn-
ina á vef Fiskistofu með reglulegum
birtingum eða jafnvel birtingum í
rauntíma og þetta er til viðbótar
birtingum úr eftirlitinu. Til dæmis
niðurstöðu drónaflugs síðasta mán-
aðar; hvað var flogið yfir marga
báta, hversu margir stunduðu
brottkast og þetta jafnvel eftir veið-
arfærum og fleira. Við munum birta
umfangsmeiri gögn.“
Hún viðurkennir að drónaeft-
irlitið hefur verið gagnrýnt af ýms-
um aðilum. „Það eru auðvitað ekki
allir sáttir, en menn sem eru í þess-
ari atvinnugrein hljóta að gera sér
grein fyrir því að þeir eru með sér-
stakt leyfi til að sækja í þessa sam-
eiginlegu takmörkuðu auðlind og
gangast undir það að sæta eftirliti.“
Covid-áhrif í brotatölum
„Mér sýnist fljótt á litið að það sé
svipaður fjöldi brotamála og verið
hefur,“ svarar Elín spurð um þróun
brota. „Vissulega spilar Covid svo-
lítið inn í þar sem er lítil fækkun
ákveðinna brota þar sem það var
minna eftirlit [á fiskveiðiárinu] af
því menn voru ekki að fara um borð
í togara og skip, menn voru að fara
minna inn í vinnslur og þess háttar.
Við vorum meira við sýnilegt
bryggjueftirlit. Þannig að Covid
hefur sett smá strik í reikninginn
en eins og sést hefur orðið spreng-
ing í brottkastsmálum og það skrif-
ast eingöngu á betri búnað og tækni
við eftirlit.“
Unnið er að því að efla sjálfvirkt
eftirlit með hugbúnaði sem ber
saman gögn. „Til dæmis afla-
dagbækur á móti löndunum á móti
útflutningi. Þá virkjast sjálfvirk
flöggun ef menn fara út fyrir mörk
og þá hægt að beina eftirlitinu á þá
staði sem verða einhver frávik.
Draumur okkar er að geta „moni-
torað“ allan afla upp úr sjó og út úr
landi í tölvukerfum.“
Samstarf við stærri félög
Mörg útgerðarfyrirtæki hafa lagt
áherslu á að auka sjálfvirkni í veið-
um og vinnslu auk þess að auka
rekjanleika afurðanna. Spurð hvort
standi til að vinna með útgerðum til
að styðjast við þessi gögn svarar
Elín: „Það er samtal sem þarf að
eiga sér stað og þyrfti einhverjar
lagabreytingar til að við myndum
hafa aðgengi að þeim gögnum, en
við höfum orðað það við einstaka
stærri fyrirtæki að prufukeyra slíkt
samstarf og sjá hvernig það gæti
nýst í framtíðinni. Við getum vissu-
lega farið í vinnslurnar og kallað
eftir ákveðnum gögnum, en við er-
um ekki komin á þann stað að geta
haft aðgengi að gögnum í raun-
tíma.“
Þá telur Elín liggja fyrir að
tækniframfarir séu til þess fallnar
að auka forsendur eftirlits með nýt-
ingu sjávarauðlindarinnar.
Hyggjast taka harðar á brottkasti
Gríðarlegur fjöldi brott-
kastsmála hefur verið
skráður hjá Fiskistofu
það sem af er fisk-
veiðiárinu. Langflest
hafa uppgötvast með
notkun dróna og hafa
þessi brot gegn fisk-
veiðilöggjöfinni, sem
hafa hlotið úrvinnslu,
verið afgreidd með leið-
beiningabréfi. Fiskistofa
boðar mun harðari við-
brögð á komandi fisk-
veiðiári.
Málslok brotamála
Fiskveiðiárið
2020/2021*
Málslok Fjöldi
Leiðbeiningabréf 115
Í vinnslu 62
Fellt niður 23
Leiðrétting í GAFLI 6
Áminning 9
Svipting veiðileyfis 6
Leiðbeint á vettvangi 2
Vísað til lögreglu 8
Fjöldi alls 231
*Ekki endanlegur
fjöldi þar sem enn
er verið að rann-
saka einhver mál
sem gætu orðið að
brotamáli
Heimild: Fiskistofa
Fjöldi brotamála fiskveiðiárið 2020/2021*
Málslok
Brotamálaflokkar Fjöldi
Leiðbein-
ingabréf
Leiðbeint
á vettvangi Leiðrétt Áminning
Svipting
veiðleyfis
Vísað til
lögreglu
Fellt
niður Í vinnslu
Afladagbók 3 2 1
Aflaskráning 29 11 2 1 5 10
Annað 8 1 1 1 1 4
Brottkast 1 1
Brottkast – dróni 83 66 1 16
Lax- og silungsveiði 27 5 7 6 9
Strandveiði – tími á sjó yfir 14 klst. 25 22 3
Strandveiði – annað 7 1 1 5
Undirmál, flokkun ófullnægjandi 13 4 1 4 2 2
Veiðar án veiðileyfis 7 2 1 3 1
Veiðarfæri 4 2 2
Vigtarbrot 20 1 1 3 2 4 9
Vigtarbrot – landað framhjá vigt 4 2 2
Fjöldi alls 231 115 2 6 9 6 8 23 62
*Ekki endanlegur fjöldi þar sem enn er verið að rannsaka
einhver mál sem gætu orðið að brotamáli
Heimild: Fiskistofa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Elín B Ragnasdóttir, sviðsstjóri hjá veiðieftirliti Fiskistofu, segir tekið verði mun harðar á brottkasti á komandi fiskveiðiári. Drónar eru bylting í eftirliti stofnunarinnar.
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021
F é l a g v é l s t j ó r a o g m á l m t æ k n i m a n n a
L a n d s f é l a g í v é l - o g m á l m t æ k n i
VM-Fé l a g vé l s t j ó ra og má lmtækn imanna e r meða l s tæ rs tu fag - og
s t é t ta r f é l a g a l a nd s i n s . Vé l s t j ó ra r og má lm i ðnaða rmenn e i g a ma rg t
s ame i g i n l e g t bæð i í n ám i og á v i n numa r kað i .
K y n n t u þ é r m á l i ð á w w w . v m . i s
Fagmenn ti l
s jós og lands