Morgunblaðið - 28.08.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 28.08.2021, Qupperneq 6
Morgunblaðið/Árni Sæberg Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is A lls hafa 84 brottkastsmál verið skráð hjá Fiskistofu frá 1. september 2020 til 13. ágúst 2021. Þar af eru 83 mál sem uppgötvuðust með notkun dróna. „Megnið af brottkastsmálum sem komist var upp um með dróna fóru í leiðbeiningaferli – bara á meðan við höfum verið með þetta eftirlit. Þetta er nýtt eftirlit og þeg- ar er um að ræða fyrsta brot höfum við verið að leiðbeina, en á nýju fiskveiðiári munum við fara að taka harðar á þessum brotum,“ segir Elín B. Ragnarsdóttir, sviðsstjóri veiðieftirlits hjá Fiskistofu. Málin kunna jafnvel að verða fleiri þegar fiskveiðiárið er gert upp. „Það er þarna nokkur fjöldi mála sem eru enn í vinnslu og fisk- veiðiárið ekki búið og þetta er stað- an 13. ágúst. Líka eru nokkur brotamál sem eru ekki komin inn á borð hjá okkur og eru enn í rann- sókn, þau eru ekki talin upp.“ Hún segir ákvörðun hafa verið tekna um að styðjast við leiðbein- ingabréf að sinni þar sem um er að ræða nýtt eftirlit. Þá hafi með þessu verið hægt að vekja athygli á drónaeftirlitinu áður en gripið verð- ur til annarra úrræða. Algjör bylting Elín segir engan vafa vera um að drónaeftirlitið sé komið til að vera. „Þetta er algjör bylting í því að koma auga á brottkast. Við sjáum það á tímabilinu frá fyrsta sept- ember [í fyrra] og fram í miðjan janúar [á þessu ári] þá er þetta eitt brottkastsmál, en frá miðjum jan- úar og til 13. ágúst eru 83 brott- kastsmál með dróna. Þannig að við erum að sjá brottkastið miklu betur með dróna.“ Mun notkun drónanna breytast eða aukast á næsta fiskveiðiári? „Það sem verður breytingin í notkun á drónunum er að við mun- um beita þeim fjær landi. Við vor- um þangað til í vor fyrst og fremst að fljúga frá landi, en í sumar byrj- uðum við að fljúga frá bátum og skipum. Þannig getur eftirlitsmaður sem er í einu skipi einnig haft eft- irlit allt í kring. Svo höfum við einn- ig farið með Landhelgisgæslunni og nýtt dróna og þannig haft eftirlit með þessum stærri skipum og tog- urum sem eru fjær landi. Við mun- um auka það eftirlit eins og við get- um.“ Greining auki skilvirkni Þeir sem fljúga drónunum hafa hlotið þar til gerða þjálfun en spurð hvort þurfi að fjölga mannskap stofnunarinnar til að efla eftirlitið enn frekar segir Elín svo ekki endi- lega vera. „Við erum svolítið að breyta fyrirkomulagi eftirlitsins og gera það áhættumiðaðra og við er- um að innleiða áhættugreining- arstaðal og munum nota greiningar og gögn meira í eftirlitsskyni. Við erum að styrkja tölvukerfin okkar og taka í gagnið alls konar grein- ingartól. Það er breytingin á eft- irlitinu sem við sjáum koma í gagn- ið á næsta ári.“ Þá sé hugsunin að aukin greining geri stofnuninni kleift að beina eft- irliti á þær hafnir og þá báta sem skora hærra í áhættumati. „Þeir sem brjóta ítrekað af sér skora því hærra en í tilfelli þeirra sem eru alltaf í lagi í okkar eftirliti munum við ekki beina eftirliti okkar í sama mæli að þeim.“ Einnig er stefnt að því að tryggja gagnsæi í eftirliti Fiskistofu, að sögn Elínar. „Við munum einnig birta enn frekar gögn um umgengn- ina á vef Fiskistofu með reglulegum birtingum eða jafnvel birtingum í rauntíma og þetta er til viðbótar birtingum úr eftirlitinu. Til dæmis niðurstöðu drónaflugs síðasta mán- aðar; hvað var flogið yfir marga báta, hversu margir stunduðu brottkast og þetta jafnvel eftir veið- arfærum og fleira. Við munum birta umfangsmeiri gögn.“ Hún viðurkennir að drónaeft- irlitið hefur verið gagnrýnt af ýms- um aðilum. „Það eru auðvitað ekki allir sáttir, en menn sem eru í þess- ari atvinnugrein hljóta að gera sér grein fyrir því að þeir eru með sér- stakt leyfi til að sækja í þessa sam- eiginlegu takmörkuðu auðlind og gangast undir það að sæta eftirliti.“ Covid-áhrif í brotatölum „Mér sýnist fljótt á litið að það sé svipaður fjöldi brotamála og verið hefur,“ svarar Elín spurð um þróun brota. „Vissulega spilar Covid svo- lítið inn í þar sem er lítil fækkun ákveðinna brota þar sem það var minna eftirlit [á fiskveiðiárinu] af því menn voru ekki að fara um borð í togara og skip, menn voru að fara minna inn í vinnslur og þess háttar. Við vorum meira við sýnilegt bryggjueftirlit. Þannig að Covid hefur sett smá strik í reikninginn en eins og sést hefur orðið spreng- ing í brottkastsmálum og það skrif- ast eingöngu á betri búnað og tækni við eftirlit.“ Unnið er að því að efla sjálfvirkt eftirlit með hugbúnaði sem ber saman gögn. „Til dæmis afla- dagbækur á móti löndunum á móti útflutningi. Þá virkjast sjálfvirk flöggun ef menn fara út fyrir mörk og þá hægt að beina eftirlitinu á þá staði sem verða einhver frávik. Draumur okkar er að geta „moni- torað“ allan afla upp úr sjó og út úr landi í tölvukerfum.“ Samstarf við stærri félög Mörg útgerðarfyrirtæki hafa lagt áherslu á að auka sjálfvirkni í veið- um og vinnslu auk þess að auka rekjanleika afurðanna. Spurð hvort standi til að vinna með útgerðum til að styðjast við þessi gögn svarar Elín: „Það er samtal sem þarf að eiga sér stað og þyrfti einhverjar lagabreytingar til að við myndum hafa aðgengi að þeim gögnum, en við höfum orðað það við einstaka stærri fyrirtæki að prufukeyra slíkt samstarf og sjá hvernig það gæti nýst í framtíðinni. Við getum vissu- lega farið í vinnslurnar og kallað eftir ákveðnum gögnum, en við er- um ekki komin á þann stað að geta haft aðgengi að gögnum í raun- tíma.“ Þá telur Elín liggja fyrir að tækniframfarir séu til þess fallnar að auka forsendur eftirlits með nýt- ingu sjávarauðlindarinnar. Hyggjast taka harðar á brottkasti Gríðarlegur fjöldi brott- kastsmála hefur verið skráður hjá Fiskistofu það sem af er fisk- veiðiárinu. Langflest hafa uppgötvast með notkun dróna og hafa þessi brot gegn fisk- veiðilöggjöfinni, sem hafa hlotið úrvinnslu, verið afgreidd með leið- beiningabréfi. Fiskistofa boðar mun harðari við- brögð á komandi fisk- veiðiári. Málslok brotamála Fiskveiðiárið 2020/2021* Málslok Fjöldi Leiðbeiningabréf 115 Í vinnslu 62 Fellt niður 23 Leiðrétting í GAFLI 6 Áminning 9 Svipting veiðileyfis 6 Leiðbeint á vettvangi 2 Vísað til lögreglu 8 Fjöldi alls 231 *Ekki endanlegur fjöldi þar sem enn er verið að rann- saka einhver mál sem gætu orðið að brotamáli Heimild: Fiskistofa Fjöldi brotamála fiskveiðiárið 2020/2021* Málslok Brotamálaflokkar Fjöldi Leiðbein- ingabréf Leiðbeint á vettvangi Leiðrétt Áminning Svipting veiðleyfis Vísað til lögreglu Fellt niður Í vinnslu Afladagbók 3 2 1 Aflaskráning 29 11 2 1 5 10 Annað 8 1 1 1 1 4 Brottkast 1 1 Brottkast – dróni 83 66 1 16 Lax- og silungsveiði 27 5 7 6 9 Strandveiði – tími á sjó yfir 14 klst. 25 22 3 Strandveiði – annað 7 1 1 5 Undirmál, flokkun ófullnægjandi 13 4 1 4 2 2 Veiðar án veiðileyfis 7 2 1 3 1 Veiðarfæri 4 2 2 Vigtarbrot 20 1 1 3 2 4 9 Vigtarbrot – landað framhjá vigt 4 2 2 Fjöldi alls 231 115 2 6 9 6 8 23 62 *Ekki endanlegur fjöldi þar sem enn er verið að rannsaka einhver mál sem gætu orðið að brotamáli Heimild: Fiskistofa Morgunblaðið/Árni Sæberg Elín B Ragnasdóttir, sviðsstjóri hjá veiðieftirliti Fiskistofu, segir tekið verði mun harðar á brottkasti á komandi fiskveiðiári. Drónar eru bylting í eftirliti stofnunarinnar. 6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021 F é l a g v é l s t j ó r a o g m á l m t æ k n i m a n n a L a n d s f é l a g í v é l - o g m á l m t æ k n i VM-Fé l a g vé l s t j ó ra og má lmtækn imanna e r meða l s tæ rs tu fag - og s t é t ta r f é l a g a l a nd s i n s . Vé l s t j ó ra r og má lm i ðnaða rmenn e i g a ma rg t s ame i g i n l e g t bæð i í n ám i og á v i n numa r kað i . K y n n t u þ é r m á l i ð á w w w . v m . i s Fagmenn ti l s jós og lands

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.