Morgunblaðið - 28.08.2021, Síða 16
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
V
ið erum að fara að leggja
fyrsta kjölinn með þeim í
byrjun nóvember og er af-
hendingin í júní á næsta
ári,“ svarar Örn Smárason, verk-
efnastjóri sjóbjörgunar hjá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg, er hann
er spurður um framvindu endur-
nýjunar skipaflota sjóbjörgunar-
sveitanna. Landsbjörg gekk í sum-
ar frá samningi við finnsku
skipasmíðastöðina KewaTec í
Finnlandi um smíði á þremur nýj-
um björgunarskipum.
„Í þessum fyrsta fasa eru þrjú
skip. Við erum með viljayfirlýsingu
frá ríkinu upp á sjö í viðbót þegar
þessum fyrsta hluta er lokið. Stóra
planið okkar er að endurnýja öll
þrettán skipin og verðum við að
vinna að því markmiði leynt og
ljóst næstu tíu til þrettán árin.“
Örn segir að safnað hafi verið í
sarpinn í töluverðan tíma er hann
er spurður hvernig gangi að fjár-
magna verkefnið. „Það hefur geng-
ið ágætlega vegna þess að við höf-
um notað afgang af rekstrar- og
viðhaldsfé í endurnýjunarsjóð,
þannig að við erum ágætlega stödd
í því. En það breytir því ekki að við
erum með alla anga úti og erum nú
þegar að vinna í viðbótar-
fjármögnun til þess að geta haldið
þessu verkefni áfram. Við erum að
reyna að velta fjármagninu sem við
erum búin að tryggja okkur inn í
næsta fasa og erum klárlega að
leita til atvinnulífsins og sjávar-
útvegsins um frekari stuðning en
hingað til hefur verið, sem hefur
þó alltaf verið ríkulegur stuðn-
ingur. En oft var þörf en nú er
nauðsyn.“
Fjöldi í takt við aldur skipanna
Um mönnun skipanna sem sjó-
björgunarsveitirnar búa yfir segir
hann ekki sjálfgefið að hægt sé að
fá nægilega marga sjálfboðaliða.
„En það gengur ekki illa og alltaf
má gera betur. Í því samhengi er
reynsla okkar á Ísafirði ágæt. Við
æfum reglulega með þyrluáhöfnum
Landhelgisgæslunnar í svokölluðu
næturflugi – á haustin byrja þeir
að koma með beiðnir til að viðhalda
flugtímanum sínum. Á [björgunar-
skipinu] Gunnari Friðrikssyni sem
var þá voru þetta svona fimm sex
sem mættu í þessar þyrluæfingar,
en þegar þeir fengu yngra skip –
sem var nú ekki nema árinu yngra
– þá voru 26 sem mættu.“
Örn segir ljóst að Landsbjörg
hafi tryggar áhafnir en það séu að-
eins of fáir sem taka virkan þátt.
„Búnaðurinn er ekki nógu spenn-
andi, hann selur ekki mönnum
þátttöku. Það er ekkert rosalega
gaman að fara síendurtekið í útköll
á skipum sem ganga mjög hægt og
lítil sem engin aðstaða um borð.“
Ný Hafbjörg hvatti
sjálfboðaliða
„Í Neskaupstað er það þannig að
við erum svolítið að vinna sjómenn-
ina aftur inn í útkallið þar. Þeim
hefur fjölgað töluvert aftur með
þeirri skipaendurnýjun sem var
þar. Þannig að það helst alveg í
hendur aldur skipanna, virkni fé-
laganna og fjöldi félagsmanna,“ út-
skýrir Örn.
Vísar hann til þess að notað
björgunarskip hafi verið keypt frá
Svíþjóð og var það smíðað 1997.
Ber það nú nafnið Hafbjörg og er
nýjasta björgunarskip Norðfirð-
inga. Hafbjörg hin eldri var hins
vegar smíðuð 1985 og hefur verið
flutt til Reykjavíkur þar sem skip-
ið er orðið nýr Ásgrímur S.
Björnsson, en eldri Ásgrímur var
kominn til ára sinna enda smíðaður
1978. „Þetta sýnir að við erum að-
eins sein til í þessum
endurnýjunarframkvæmdum.
Þörfin er orðin svo rík að við gát-
um eiginlega ekki annað en stokkið
á þetta skip sem bauðst í Svíþjóð
til að fasa út þetta elsta skip okkar
sem við erum með í Reykjavík. Það
var kominn tími á verulegt viðhald
þar eða þá að skipta út með þess-
um hætti.“
Spurður hvort það sé markvisst
verið að reyna að höfða til sjó-
manna til að auka mönnun svarar
Örn því játandi. „Við erum alltaf að
vinna að því að ná betur til þeirra
og ná stærri hópi af þeim til baka í
starfið okkar.“ Hann segir sjó-
mönnum hafa fækkað í útkalls-
hópum sjóbjörgunarsveitanna á
undanförnum árum. „Við sjáum að
ef við getum verið skemmri tíma í
útköllunum eru þeir líklegri til
þess að koma. Þá sérstaklega í út-
stími í þessum útköllum, ef við get-
um stytt það um kannski helming
Vilja sjómenn aftur í starfið
Það er ekki sjálfgefið að fólk gefi tíma sinn og krafta í að aðstoða meðborgara
sína en það gerir fjöldi fólks á sjóbjörgunarskipum Landsbjargar. Hins vegar
hefur þátttaka dvínað nokkuð og er talið að hún muni aukast á ný við end-
urnýjun skipakosts sjóbjörgunarsveitanna.
Finnska skipasmíðastöðin KewaTec mun smíða
þrjú björgunarskp sem afhent verða á næstu ár-
um. Enn þarf þó að endurnýja 10 skip til viðbótar.
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021
Við stuðlum að verðmætasköpun
í íslenskum sjávarútvegi