Morgunblaðið - 28.08.2021, Side 8

Morgunblaðið - 28.08.2021, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is E skja hf. hefur birt sína fyrstu samfélagsskýrslu. Skýrslan telur tuttugu og níu blaðsíður og er grein- argóð samantekt á starf- semi félagsins; stjórn og stjórn- unarháttum, helstu stjórnendum, sögu, gildum og skipulagi eign- arhalds. Við fyrstu sýn kann skýrslan að líta út eins og hvert annað kynningarplagg fyrir fyrirtæki en þegar nánar er rýnt í hana má sjá upplýs- ingar sem ekki eru birtar annars staðar. Ítarlegar upplýsingar um rekst- ur fyrirtækisins má sjá í skýrsl- unni, fyrir rekstrarárið 2020 og 2019 til samanburðar. 1,7 milljarðar í laun Samkvæmt framsetningu í sam- félagsskýrslu Eskju voru rekstr- artekjur félagsins 8,2 milljarðar ár- ið 2020 og 7,2 milljarðar árið 2019. Árið 2020 voru rekstargjöld alls 5,1 milljarður en 4,6 milljarðar árið 2019 svo EBITA áranna er svipuð; 3,2 milljarðar árið 2020 og 301 milljarður árið 2019. Bæði árin greiddi fyrirtækið um 400 milljónir í tekjuskatt og var hagnaður eftir skatt árið 2020 1,4 milljarðar og 1,2 milljarðar árið 2019. Árið 2019 voru tveir milljarðar greiddir í laun og launatengd gjöld hjá Eskju og 1,7 milljarðar árið 2020, á sama tíma námu arð- greiðslur úr fyrirtækinu 300 millj- ónum fyrra árið og 500 milljónum það seinna. Í skýrslunni má sömuleiðis nálg- ast upplýsingar um skattspor Eskju. Þar kemur fram að í heildina sé skattaslóð fyrirtækisins 1.395 millj- ónir árið 2020. Kolefnisgjald upp á 41 milljón Greiddur tekjuskattur var 309 millj- ónir, veiðigjöld námu 52 milljónum, mótframlag í lífeyrissjóði 171 millj- ónum og tryggingagjald 108 millj- ónum. Greidd fasteignagjöld árið 2020 voru 48 milljónir, gjöld í stéttarfélög 23 milljónir og kolefnisgjald árið 2020 nam 41 milljón. Þegar allt er talið, með skatt- greiðslum og lífeyrissjóðsgreiðslum starfsmanna, er skattaslóð Eskju, sem fyrr segir, 1.395 milljónir. Samsvarar skattaslóðin um fjór- tán milljónum á hvern starfsmann fyrirtækisins og 329 þúsund krónum á hvert þorskígildistonn aflaheim- ilda sem fyrirtækið hefur yfir að ráða. Nokkuð ítarleg grein er gerð fyr- ir umhverfismálum fyrirtækisins í skýrslunni. Þar má merkja áherslu á notkun rafmagns í starfsemi, sem áður var knúin með meira mengandi orku- gjöfum, og endurnýjun fiskiskipa- flotans. Eskja hefur alfarið hætt notkun svartolíu. „Eskja er að gefa út sína fyrstu samfélagsskýrslu og tilgangur með útgáfu hennar er bæði að auka gagnsæi í okkar starfsemi og gera grein fyrir árangri okkar auk áhrifa á umhverfið og samfélagið,“ segir Páll Snorrason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Eskju. Vinna að bættri flokkun og hreinsun „Við erum stolt af okkar árangri á síðasta ári og höfum lært margt í þessu ferli en við tökum okkar sam- félagslegu ábyrgð alvarlega en get- um gert betur. Á næstu misserum ætlum við okkur að vinna enn betur að flokkun á úrgangi sem fellur til í okkar starfsemi, erum að vinna að hreinsunarátaki á okkar athafna- svæði eftir miklar framkvæmdir undanfarinna ára. Að auki mun fé- lagið skoða leiðir til kolefnisjöfn- unar og fjárfestingarkosti sem dregur úr okkar kolefnisspori,“ seg- ir Páll. Meira gagnsæi með samfélagsskýrslum Sjávarútvegsfyrirtækið Eskja hefur birt á vef sínum sína fyrstu sam- félagsskýrslu. Skýrslan nær til ársins 2020 og er notast við lykilmæli- kvarða sem miða við GRI (Global Reporting Initiative) um sam- félagslega ábyrgð. Aðalsteinn Jónsson SU-11 er eitt flaggskipa Eskju, smíðaður árið 2004 í Noregi. Eskja hefur einsett sér að minnka notkun eldsneytis og hætta notkun svartolíu. Ljósmynd/Gungör Giunnar Tamzok Eskja rekur hátæknifrystihús á Eskifirði. Félagið er eitt fárra sjávarútvegsfyrirtækja sem gefið hafa út samfélagsskýrslu. Páll Snorrason Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is Þ að er enginn vinnslustjóri eins og staðan er núna svo við verkstjórarnir skiptum með okkur verk- efnum,“ segir Árdís Inga Höskuldsdóttir, verkstjóri og nýút- skrifaður sjávarútvegsfræðingur hjá Ísfélagi Vestmannaeyja á Þórs- höfn um skipulag vertíðarinnar þar í bæ í ár. Makríl- og síldarvertíð, sem yf- irleitt rennur í eitt fyrir norðan, er í algleymingi og er langt frá því að vera fyrsta vertíð Árdísar, sem hélt á sína fyrstu vertíð árið 2001. „Ég fór á mína fyrstu vertíð árið 2001 þegar ég var sextán ára, á loðnu,“ segir Árdís frá. Ellefu vertíðum síðar Vertíðir á Þórshöfn urðu síðan ár- viss viðburður hjá Árdísi þegar markríll fór að veiðast í nokkru magni við Íslandsmið árið 2009 og hefur Árdís tekið þátt í þeim allar götur síðan ef undanþegið er eitt ár. Innan skamms var Árdís orðin verkstjóri á vertíðum og flutti hún svo til Þórshafnar alfarið árið 2014 og varð verkstjóri allan ársins hring í fiskvinnslu Ísfélagsins. Lesblind og með athyglisbrest „Ég ákvað síðan að láta slag standa og reyna við sjávarútvegsfræði. Ég er lesblind og með mikinn athygl- isbrest og kláraði aldrei neinn framhaldsskóla en komst inn í Há- skólann á Akureyri á meðmælum,“ segir Árdís sem fékk undandþágu til að skrá sig í nám í háskólanum. „Ég hafði lokið ýmsum nám- skeiðum og var búin að láta meta mig upp í fisktækni en ég hafði engann akademískan grunn, þú getur rétt ímyndað þér hvað það var erfitt að fara í þetta nám fyrir mig.“ Af hverju ákvaðstu að skrá þig í þetta nám? „Bara mjög mikill áhugi á sjávar- útvegi, mikið að gerast í iðnaðinum og ýmsir starfsmöguleikar á ýms- um sviðum.“ Árdís segir að mest hafi komið sér á óvart við að fara í háskóla að þar eru sömu fíflin að finna eins og annars staðar. Raungreinar áskorun „Ég hélt að allir væru svo mikið klárari en ég sem færu í háskóla en svo kem ég þarna og það eru allir spaðgrillaðir,“ segir Árdís og hlær. Hún segir að henni hafi mest vaxið í augum að takast á við raun- greinarnar. Í sjávarútvegsfræði þarf að standa skil á stærðfræði, efnafræði, eðlisfræði, líffræði, örverufræði, matvælafræði og nokkrum hagfræðikúrsum. Þér tekst að komast í gegnum allar þessar raungreinar með lítinn grunn. Hvernig tókst þér þetta? „Þetta hafðist með ótrúlega góð- um hópi. Við vorum náinn og þéttur hópur að læra saman, þetta hefði ekki tekist án samnemenda minna. Það eru einnig góðir kennarar við skólann.“ Skemmst er frá því að segja að Árdís útskrifaðist með ágætis- einkunn í vor. Sömu fíflin alls staðar Árdís Inga Höskuldsdóttir, verkstjóri á markríl- og síldarvertíð hjá Ísfélagi Vestmannaeyja á Þórshöfn, er nýútskrifaður sjávarútvegsfræðingur. Árdís hefur starfað í fiskvinnslu af ýmsum toga í mörg ár en ætlaði aldrei að þora að sækja sér menntun í faginu. Árdís útskrifaðist í vor með BS-gráðu með fyrstu einkunn. Árdís Inga Höskuldsdóttir verkstjóri. Makríl- og síldarvertíð stendur nú yfir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.