Morgunblaðið - 28.08.2021, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 28.08.2021, Qupperneq 18
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is M atthías Matthíasson tók ný- verið við sem fram- kvæmdastjóri hjá Borg- arplasti og verður gaman að fylgjast með hvert hann leiðir fé- lagið. Matthías býr yfir mikilli reynslu af sölu og þjónustu við sjávarútveginn en hann var áður framkvæmdastjóri flutningasviðs Eimskips og fór þar áð- ur fyrir starfsemi Komatsu í Dan- mörku. Spurður hvort róttækra breytinga sé að vænta kveðst Matthías ætla að halda óbreytti stefnu að svo stöddu. „Við höldum áfram að byggja á þeim sterka grunni sem lagður hefur verið af fyrri stjórnendum á þeim fimmtíu árum sem liðin eru frá stofnun Borg- arplasts,“ segir hann. Fyrirtækið hefur þróast jöfnum skrefum og látið að sér kveða bæði á innlendum og erlendum mörkuðum. Starfsemin hefur í gegnum tíðina að mestu byggst upp í kringum þjónustu við íslenskan sjávarútveg og þróun á hagkvæmum og góðum umbúðalausn- um fyrir sjávarafurðir, að sögn Matt- híasar „Undirstaðan er framleiðsla á kerjum til notkunar í sjávarútvegi en með samrunanum við Plastgerð Suð- urnesja árið 2018 bættust frauð- plastkassar fyrir ferskan fisk og hús- eingrun við vöruframboðið.“ Matthías segir einkar brýnt að huga vel að þörfum sjávarútvegsins sem reiði sig á sterkbyggð, létt og endingargóð ker. Hann segir að líkja megi kerjavæðingu íslensks sjávar- útvegs á sínum tíma við gámavæðingu skipaflutninga því plastkerið var risa- stökk í meðhöndlun sjávarfangs frá því sem áður var. „Eins og rauðu blóð- kornin sem flytja súrefni um líkamann flytja kerin sjávarafurðir í lokuðu hringrásarkerfi frá veiðum til vinnslu og á markað, og jafnvel til kaupenda Geta hæglega þjónað sínu hlutverki í fimmtán ár Með notkun plastkerja urðu kaflaskil í íslensk- um sjávarútvegi og risa- stökk var tekið í með- höndlun og kælingu sjávarafurða. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon pappakössum svo lengi sem fiskurinn er í hitastýrðu umhverfi frá upphafi til enda ferðarinnar, en því miður geta flutningskeðjur sjávarútvegsins verið bæði langar og flóknar og um leið og bretti af fiski er tekið út úr kæligámi eða lest flugvélar og látið standa við 20 gráðu hita í einhvern tíma byrjar hrá- efnið fljótt að skemmast ef einangr- unar frauðplastsins nýtur ekki við.“ Morgunblaðið/Eggert Ef ekki væri fyrir kerin væri íslenskur sjávarútvegur staddur á allt öðrum stað í dag hvað varðar afköst og gæði. ekki komið fram á sjónarsviðið val- kostur sem geti keppt við frauðplastið hvað varðar styrk, vatnsþéttni og ein- angrunargetu. „Hafa þarf hugfast að frauðplastkassar eru notaðir til að verja dýrmæt matvæli og tryggja bæði að hráefni fari ekki til spillis og að gæðaorðspor framleiðandans skað- ist ekki. Það mætti, ef því er að skipta, flytja ferskan fisk á milli landa í Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Rotþrær, olíuskiljur og fráveiturör eru mikilvægur hluti af starfseminni og m.a. framleidd úr endurnýttum plastafgöngum sem verða til við kerjaframleiðsluna. úti í heimi. Hönnun kerjanna einfaldar flutninga og veitir góða hitaeinangrun svo varan skilar sér til viðtakanda í eins góðu ástandi og mögulegt er,“ segir hann. „Ekki má heldur gleyma því að öll sú þróunarvinna sem hefur átt sér stað við hönnunina nýtist í dag fyrir ýmislegt fleira en sjávarafurðir, svo sem við geymslu og flutning á mjólkur- og kjötafurðum.“ Þarf að skoða líftíma kersins Matthías undirstrikar að Borgarplast leggi mikla áherslu á að umgangast náttúruna af virðingu, og gæti þess að endurvinna allt sem fellur til í fram- leiðslunni. „Þá höfum við einnig mark- að okkur sjálfbærnistefnu þar sem markmið okkar er að reksturinn sé til fyrirmyndar út frá viðurkenndum við- miðum um umhverfismál ásamt því að leggja áherslu á að innleiða hug- myndafræði hringrásarhagkerfisins.“ Segir Matthías plast búa yfir ein- stökum eiginleikum og vandséð að önnur efni geti komið alfarið í staðinn en miklu skipti að umgangast plastið rétt og farga því eða endurvinna með réttum hætti. Í tilviki kerja undir sjávarafurðir verði að taka með í reikninginn þau umhverfisáhrif sem hljótast af notkun kersins yfir líftíma þess: „Það er ekki óalgengt að fiskiker endist í fimmtán ár enda er vandað til við hönnun þeirra og framleiðslu. Gerðar hafa verið áhugaverðar til- raunir með framleiðslu kerja þar sem bæði einangrun og skel kerjanna er úr sama plastefninu sem auðveldar end- urvinnslu en þau ker hafa þann ókost að vera töluvert þyngri sem svo aftur getur gert störf sjómanna um borð í skipum erfiðari, aukið slysahættu og hækkað flutningskostnað þar sem meira eldsneyti þarf til að flytja við- bótarþyngdina í kerjunum,“ segir Matthías. „Það er meiri áskorun að endurvinna ker sem steypt er úr tveimur ólíkum plasttegundum, en slíkt ker er ekki endilega verra fyrir umhverfið.“ Að því sögðu bendir Matthías á að hjá Borgarplasti sé allt plast endur- unnið eins og frekast er unnt og eru t.d. afgangar sem falla til þegar fiski- ker eru steypt settir í sérstaka kurl- unarvél og síðan nýttir til annarrar framleiðslu, t.d. í rotþrær, olíuskiljur og fráveituvörur sem er annar mik- ilvægur þáttur í starfsemi fyrir- tækisins. Matthías bætir við að það sé út- breiddur misskilningur að frauð- plastkassar séu ekki endurvinnanlegir en eins og alltaf hvíli það á endanot- andanum að umgangast vöruna rétt og koma henni í hendur aðila sem hafa rétta búnaðinn og þekkinguna til að endurvinna hráefnið. „Við endur- vinnum allt frauðplast sem til fellur við okkar frauðplastframleiðslu og nýtum það í framleiðslu á húsein- angrun. Þá höfum við einnig lagt okk- ar af mörkum með því að taka við frauðplasti til endurvinnslu frá stóru íslensku tölvuþjónustufyrirtæki þar sem daglega fellur til mikið af frauð- plasti utan af tölvubúnaði.“ Frauðplastið ver verðmæti Matthías segir áhugavert og mik- ilvægt að fylgjast vel með þróuninni í umbúðalausnum fyrir sjávarafurð- irnar en það gerist best í nánu sam- starfi við alla hagsmunaaðila. Enn hafi „Eins og rauðu blóðkornin sem flytja súrefni um lík- amann flytja kerin sjáv- arafurðir í lokuðu hringrás- arkerfi frá veiðum til vinnslu og á markað, og jafnvel til kaupenda úti í heimi.“ 18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Matthías segir að umhverfis- áhrif ólíkra gerða plastkerja verði að skoða með tilliti til alls notkunartíma þeirra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.