Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Side 6
AFP
Sjónhverf-
ingar í
sundlaug
Egypsku sundkonurnar Laila
Ali og Hanna Hiekal keppa í
listrænu sundi á Ólympíu-
leikunum í vatnamiðstöðinni
í Tókýó á þriðjudag. Svo virð-
ist sem þær hafi verið tvöfald-
aðar og séu fjórar í lauginni.
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.8. 2021
A
fbrigði“ er eitt af orðum sum-
arsins. Ný afbrigði af kór-
ónuveirunni skjóta upp koll-
inum og vekja jafnan ugg um að þau
séu ýmist meira smitandi eða hættu-
legri en fyrri útgáfur, nema hvort
tveggja sé. Þetta þurfum við að taka
alvarlega.
Sérfræðingar telja alls óvíst að
heimsbyggðin losni nokkurn tímann
við veiruna, meðal annars vegna þess
að sífellt muni koma fram af henni ný
og ný afbrigði, auk þess sem fólk sem
er bólusett og hefur áður smitast get-
ur smitast aftur, þótt líkur á alvar-
legum veikindum séu litlar. Ef nýja
kórónuveiran sem veldur covid-19 er
komin til að vera má segja að við horf-
um fram á „líf með afbrigðum“. Það
er svolítið kaldhæðnislegt frá sjónar-
hóli tungumálsins, vegna þess að
„með afbrigðum“ þýðir venjulega
„framúrskarandi“. En eitt af verk-
efnum okkar í dag er einmitt að meta
hvernig við gerum lífið aftur framúr-
skarandi með hliðsjón af þessum nýja
veruleika.
Framúrskarandi árangur
Mörgum finnst ábyggilega að „von-
brigði“ sé annað af orðum sumarsins,
vegna bakslags í baráttunni með
auknum fjölda smita að undanförnu.
Smitin eru meðal annars afleiðing af
hinu nýja afbrigði veirunnar. En önn-
ur ástæða er sú staðreynd að bóluefn-
in vernda fólk ekki eins vel gegn því
að smitast af veirunni og upphaflega
var talið. Blessunarlega virðist vörnin
gegn alvarlegum
veikindum þó vera
svo góð að yf-
irgnæfandi meiri-
hluti þeirra sem
greinast með veir-
una eftir bólusetn-
ingu finnur ein-
ungis til
smávægilegra ein-
kenna. Fyrir þetta kraftaverk bólu-
setningar getum við verið þakklát.
Jafnvel þótt veiran geti enn valdið al-
varlegum veikindum heyrir slíkt til
undantekninga hjá þeim sem hafa
þegið bólusetningu, þótt slík tölfræði
sé vitaskuld lítil huggun þeim sem eru
svo ólánsamir að veikjast illa.
Í fréttum heyrum við mikið fjallað
um smit og veikindi á meðal bólusettra
einstaklinga. Við verðum að túlka
þessar fréttir í því samhengi að bólu-
efnin eru ekki fullkomin. Annars gæt-
um við dregið þá ályktun að þau virki
ekki. Það væri kolröng ályktun. Þau
draga stórkostlega úr líkum á alvar-
legum veikindum. Tölurnar sýna þetta
svart á hvítu. Við verðum að minna
okkur sjálf á að mikilvægasta mark-
mið viðbragða okkar við útbreiðslu
smitsjúkdóma er að draga úr hættu á
alvarlegum veikindum.
Við höfum fært miklar fórnir í
varnarbaráttunni. Þjóðin hefur stutt
dyggilega við vörnina með því að
sætta sig við miklar skerðingar á
frelsi sínu í þágu almannahagsmuna.
Þessar skerðingar hafa komið mis-
jafnlega illa við fólk. Við verðum að
horfast í augu við að langvarandi ótti,
takmarkanir á félagslegum stuðningi,
snertingu og nánd hafa margvísleg
skaðleg áhrif. Það er því ekki bara
„hagsmunamál“ að koma samfélaginu
aftur í eðlilegra ástand, heldur er það
okkur lífsnauðsynlegt út frá líkam-
legri og andlegri heilsu, þ.e.a.s. lífinu
sjálfu.
Rannsóknir frá fyrstu mánuðum
faraldursins bentu til að á heildina
hefðu aðgerðir ekki komið illa við
andlega heilsu fólks, að meðaltali.
Skýringin var eflaust sú að mörgum
hugnaðist hinn rólegri taktur sem
fylgdi því að það hægðist á flestu. En
meðaltalið segir ekki allt og breiðir
yfir þá staðreynd að aðrir hópar hafa
orðið illa úti vegna sóttvarnaaðgerða.
Þúsundir misstu vinnuna eða stóran
hluta tekna sinna. Skólastarf þúsunda
ungmenna raskaðist þótt reynt væri
að halda sjó. Fólk er líka misjafnlega
vel í stakk búið til að þola aukna fé-
lagslega einangrun, og fólk er mis-
jafnlega viðkvæmt fyrir ótta og kvíða.
Og ekki alls fyrir löngu fengum við
fréttir af rannsóknum sem sýna að
andleg líðan ungmenna hefur versnað
í faraldrinum. Mögulega má setja það
í samhengi við fréttir af mjög mikilli
fjölgun innlagna á barna- og
unglingageðdeild Landspítalans. Alla
þessa heildarmynd þurfum við að
hafa í huga. Við þurfum ekki bara að
verja viðkvæmustu hópana fyrir veir-
unni; við þurfum líka að verja við-
kvæmustu hópana fyrir afleiðingum
félagslegrar einangrunar, frelsis-
skerðingar og ótta. Aukið heimilis-
ofbeldi og fjölgun tilkynninga til
barnaverndaryfirvalda eru sömuleiðis
alvarlegar afleiðingar sem taka þarf
með í heildarmat okkar.
Endurmat á stöðunni
Reynist það rétt, sem ýmsir sérfræð-
ingar telja líklegt og ég held að verði
raunin, að kórónuveiran nýja komi til
með að fylgja okkur um ókomna tíð
þurfum við einfaldlega að endurmeta
stöðuna. Þessi framtíðarsýn virðist ef
til vill ógnvekjandi,
en við nánari skoð-
un þarf svo ekki að
vera. Veiran sem
olli spænsku veik-
inni og margvísleg
afbrigði hennar
hafa verið með okk-
ur alla tíð frá því
hún olli heimsfar-
aldrinum sem hófst 1918, án þess að
setja samfélagið á hliðina. Þá voru
engin bóluefni sem dugðu til að efla
mótstöðuna. Nú hefur kraftaverk vís-
indanna sett okkur í allt aðra stöðu
með því að draga með afgerandi hætti
úr eyðileggingarmætti veirunnar.
Áhugavert er að sjá því sjónarmiði
vaxa ásmegin í Danmörku að líta
þurfi á áframhaldandi kórónuveiru-
smit sem viðvarandi ástand sem kalli
ekki á umfangsmikil inngrip. Um
þetta er fjallað í Politiken og rætt við
Sören Riis Paludan prófessor í veiru-
og ónæmisfræðum við Árósaháskóla.
Öll samfélög búa við margvíslegar
hættur og ógnir. Samstaða okkar Ís-
lendinga um að búa samfélagið undir
að takast á við slíkar hættur er þjóð-
areinkenni. Það sannast reglulega
þegar óveðursský af ýmsum toga
hrannast upp á himni og þegar áföll
dynja yfir. Það sannaðist enn þegar
við héldum okkur til hlés til að hindra
útbreiðslu veirunnar síðasta vetur.
Og það átti sannarlega við þegar við
hópuðumst í bólusetningu með upp-
brettar ermar.
Vonandi mun það áfram eiga við að
við horfumst óhrædd í augu við það
sem að höndum ber í tengslum við
heimsfaraldurinn, þakklát fyrir þann
góða undirbúning sem bólusetningin
mun áfram gefa okkur til þess að taka
því sem að höndum ber.
Líf með afbrigðum
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
’
Við verðum að
minna okkur sjálf á
að mikilvægasta mark-
mið viðbragða okkar við
útbreiðslu smitsjúkdóma
er að draga úr hættu á
alvarlegum veikindum.