Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.8. 2021
G
rein Carls Baudenbacher, fyrr-
um forseta EFTA-dómstólsins,
sem Morgunblaðið birti að ósk
hans, vakti verulega athygli og
þá auðvitað einkum þeirra sem
hafa kynni eða nasasjón af efn-
inu sem er óaðgengilegt í eðli sínu. Það má þó halda
því fram að þessi takmörkun á lesendahópnum dragi
ekki úr gildi birtingarinnar.
Dómaranum er þungt
Höfundurinn drepur á margvísleg álitaefni í grein
sinni og er mikið niðri fyrir. Og mjög er misjafnt hvað
hefur helst náð athygli einstakra lesenda. Íslendingar
í fámenni sínu eru gjarnan dálítið uppteknir af þátt-
um sem snúa að einstökum persónum og þar með af
persónugerðum deilum. Þá er ekki ólíklegt að margir
hafi höggvið eftir hugtakanotkun sem var framandi
og allt að því ógeðfelld. Þannig má nefna að grein-
arhöfundur telur að almennar reglur um „frjálsa för“
gildi, en ekki orðanna hljóðan í norskum lögum um al-
mannatryggingar, en sú löggjöf „hafi ekki verið ann-
að“ en „afleidd EES-löggjöf,“ segir hann. Það er eng-
inn vafi á að fjöldi ákvarðana hefur verið tekinn eftir
upphaf EES samningsins án minnstu raunverulegrar
skoðunar af íslenskum embættismönnum sem standa
undir þeirri skilgreiningu. Ríkisstjórnin á hverjum
tíma segist treysta sínum embættismönnum, sem
hefur verið fjölgað jafnt og þétt sem hefur verið frek-
ar til bölvunar en hins, því þeir líta á verkefni sitt að
hóa á sveitamennina heima að afgreiða allt þegjandi
og hljóðalaust. Þeir birta svo eins og barnakennarar
skýrslu um hverjir hafi verið seinastir við að innleiða
„tilskipanir“ af EES-ríkjum. Þingmenn telja sig fá
stjörnur í kladda sinn með því að hleypa því öllu í
gegn óathuguðu. Eftir að þeir Hjörleifur G. og Pétur
Blöndal hurfu af þingi er ekki vitað um nokkurn
mann þar sem kynnir sér löggjöfina sem þeir sam-
þykkja eins og blindir kettlingar.
Forsenda EES-samningsins
er í fullu gildi
Íslendingar eru sem sé ekki einir um um að kok-
gleypa sífellt stærri hluta sinnar lagasetningar al-
gjörlega ólesnar, og þeir eru til sem glamra út í loftið
um að grundvallarákvæði um að Íslendingar gætu
hafnað því sem þeir vildu af aðsendri löggjöf frá ESB
giltu ekki lengur. Þau hefðu gufað upp!? Sá afgerandi
fyrirvari tryggði að EES-samningurinn stæðist ís-
lenska stjórnarskrá. Gufi hann upp fyrir aum-
ingjadóm er samningurinn ekki lengur til og enginn
Íslendingur bundinn af honum.
En hvernig hvarf þetta grundvallaratriði, sem rétt-
lætti að alla samningsgerðina og var forsenda fyrir
samþykki þingsins? Jú, með óskiljanlegu muldri í
pantaðri skýrslu sem starfsmenn utanríkisráðuneyt-
isins gerðu uppkast að og maður utan úr bæ skrifaði
upp á! Það er svo sem ekkert að því að þess háttar
sjónarmið rykfalli í hillu utanríkisráðuneytisins í
óteljandi búnkum með öðrum marklausum pappírum.
En fráleitt er og beinlíns hlægilegt að láta eins og þar
fari ný Magna Carta fyrir íslenska þjóð, en svipti
hana grundvallarréttindum, öfugt við útkomu hins
forna skjals.
Efnislegar og persónulegar
Baudenbacher færir ýmis rök fyrir því að úrskurðir
EFTA-dómsins hafi glatað tiltrú og áliti. En fyrst og
síðast hengir hann þá afturför á aðkomu eftirmanns
síns, Páls Hreinssonar, í forsæti dómstólsins. Úr-
skurðirnir sem hann nefnir til sögunnar segir hann
nýjasta lágpunktinn í þróun sem hófst snemma árs
2018, þegar Páll Hreinsson varð forseti EFTA-
Fróðleg grein og
óvænt birtingarmynd
’
Þeir sem tryggðu meirihluta fyrir EES-
samningi á þinginu kynntu það ítrekað
að Ísland væri ekki bundið af þessum dóm-
stól, frekar en af ákvörðunum Mannréttinda-
dómstóls Evrópu, sem margt bendir nú orðið
til að dómstólar t.d. í Danmörku séu búnir að
fá sig fullsadda af.
Reykjavíkurbréf06.08.21