Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Page 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.8. 2021
Ég hef aldrei áttað mig almennilega á veðurguðunum. Ég meina, hvaða gaurar eru
það eiginlega og hvers vegna vísum við alltaf til þeirra í fleirtölu? „Ef veðurguð-
irnir verða okkur hliðhollir!“ Eru þetta einhverjir undirverktakar hjá almættinu
sem hafa það hlutverk að ráða veðrinu hjá okkur dauðlegum mönnum? Ef svo er þá eru
þeir miklir grallaraspóar. Hvaða hótfyndni er það til dæmis að tjalda hreinlega yfir höf-
uðborgarsvæðið í heilt sumar meðan sólin leikur lausum hala og hver hitabylgjan af
annarri skellur á Norður- og Austurlandi? Hitinn fyrir austan sleikti 30 gráðurnar í vik-
unni og ágúst er að renna sitt skeið á enda. Hvers konar endemis vitleysa er þetta eig-
inlega? Á meðan hírumst við í tjaldbúðunum okkar hér syðra sem halda engu nema sól;
alla vega ekki vatni og vindum. Það vorum við Kjalnesingar minntir rækilega á í vikunni
þegar við þurftum að staulast á fætur klukkan
fjögur að nóttu til að loka garðhliðum okkar
sem fokið höfðu upp. Ég er farinn að skilja
hvers vegna séra Matthías flutti frá Kjalar-
nesi til Akureyrar en ekki öfugt eins og
sumir.
Ég þekki mína menn á Akureyri
það vel að ég veit alltaf hvenær þeir
eru að ýkja frásagnir sínar af veðri.
Og í sumar hafa þeir ekki þurft að
ýkja eitt aukatekið orð, það er frekar
að þeir hafi þurft að draga úr. Sjálfur
náði ég einum degi fyrir norðan í sumar og hann var geggjaður. Golan meira að
segja hlý – allt að brennandi. Mér leið eins og ég væri staddur á Ítalíu eða Spáni.
Í vikunni heyrði ég í vini mínum á Akureyri; hann var að grilla í 28 stiga hita og
þurfti ekki einu sinni að kveikja á gasinu! Dagsatt!
En sól og hamfarahiti eru ekki alltaf tekin út með sældinni. Á dögunum
hringdi Akureyringur nokkur inn á Rás 2 til að biðja um rokklag. Talið barst
að vonum strax að veðrinu og var okkar maður spurður hvort hann væri
ekki himinlifandi með það í sumar. Svarið kom á óvart. „Nei, ég er búinn
að fá alveg nóg af þessu!“ svaraði hann býsna óvænt. Snúðugur. Ha?
Búinn að fá alveg nóg af þessu?!! „Já, það er þetta helvítis lúsmý.
Ég er allur útbitinn.“ Þabblaða. Bað kappinn þá frekar um
gamla góða rokið og rigninguna.
Veðurguðirnir vinir okkar eru sumsé ekki allir þar sem
þeir eru séðir. Eða bera lúsmýsguðirnir ef til vill ábyrgð á
þeirri óværu? Aðrir undirverktakar. Gildir einu. Fólki í hinum ýmsu blóðflokkum er
ekki vært innan um lúsmý og margir eru grátt leiknir eftir að það hefur gert aðsúg að
þeim. Í verstu tilfellunum leggst fólk hreinlega í rúmið með hitavellu og hor í nös, að
ekki sé talað um bannsettan sviðann og kláðann. Jæks!
Eftir að hafa hlýtt á þetta samtal hugsaði ég óhjákvæmilega með mér: Tjald veður-
guðanna er kannski ekki svo slæmt eftir allt saman!
Tjald veðurguðanna
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’
En sól og hamfarahiti
eru ekki alltaf tekin út
með sældinni.
Guðrún Jóhanna
Guðmundsdóttir
Ég óttast mest að verða flóttamaður.
SPURNING
DAGSINS
Hvað óttast
þú mest?
Baldvin Borgarsson
Dauðann.
Sigríður Dögg Geirsdóttir
Að vera ein.
Helgi Kristinn Jakobsson
Ég óttast þegar mamma kallar á
mig með áherslu: Helgi Kristinn!
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Hvernig þáttur er þetta?
Þetta er raunveruleikamannlífsþáttur í bland við stefnu-
mótaþátt. Við kynnumst einhleypu fólki alveg frá tvítugu
og upp úr, alls staðar að. Við erum að skoða aðeins stefnu-
mótamenningu Íslendinga og fylgjum svo fólki á blind
stefnumót.
Hvernig var að fá fólk í þáttinn?
Það kom mikið á óvart hversu vel það gekk. Það sóttu
1.200 manns um. Sumir sóttu reyndar um fyrir vini
sína, sem slógu þó yfirleitt til. Það var erfitt að velja
úr en elsti umsækjandinn var um sjötugt. Við völd-
um að lokum 28 manns, fjórtán pör, sem við fáum
svo að fylgjast með í sjö þáttum.
Hvernig pöruðuð þið fólk saman?
Það var allur gangur á því og engin ein formúla.
Fólk svaraði stórum spurningalista þar sem það
lýsti sér og draumamaka. Það var svo mikið ferli
að púsla þessu öllu saman og auðvitað engin ein
rétt formúla. Sem er bara spennandi.
Er einhver fyrirmynd að þættinum,
eins og First Dates-þátturinn breski?
Nei, upprunalega hugmyndin var að gera þátt
um stefnumótamenningu Íslendinga en eina sem
er líkt með þessum og First Dates er að þetta er
fólk á öllum aldri og gerist á veitingastað. Við
hjá Fyrsta blikinu kynnumst fólki mun betur.
Fólk opnaði sig og fór vel út fyrir þægindaram-
mann.
Kviknaði ástin þarna einhvers
staðar?
Ég get ekkert sagt um það. Það er auðvitað
hernaðarleyndarmál! Þið verðið bara að horfa.
ÁSA NINNA PÉTURSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Á blindu
stefnumóti
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Prentun
Landsprent ehf.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Raunveruleikaþættirnir
Fyrsta blikið hefjast á
Stöð2 hinn 27. ágúst. Í
þáttunum kynnast
áhorfendur fólki í leit
að ástinni sem hefur
verið parað saman á
blind stefnumót.
Stjórnandi er Ása
Ninna Pétursdóttir.