Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Page 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.8. 2021 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ÿ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ÿ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ÿ alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum GLUGGATJÖLD alnabaer.is S vona rétt þegar ég hélt að nú hefði ég séð allt í þessari endalausu baráttu við heimsfaraldurinn birtist frétt um að heilbrigðisyfirvöld vöruðu við því að borða krem. Ekki krem eins og maður fær á súkku- laðiköku heldur krem sem er ætlað til að bera á líkamann við kláða og öðrum ófögnuði, og að mér skilst einkum kláðamaur. Það er nokkuð skýrt að þetta krem á ein- göngu að nota útvortis og meira að segja varað við því að það snerti slímhúðina. Fyrir þá sem ekki vita er einmitt mjög mikið af slímhúð inn- vortis og því ætti að vera nokkuð ljóst að það er alls ekki hugmyndin að gleypa þetta. Það hafa semsagt einhverjir gert og að minnsta kosti einn af þeim endað á spítala. Því fengum við grafalvarleg skilaboð frá forstjóra Lyfjastofnunar um að svona ættum við alls ekki að gera. Og í tilraun til að koma í veg fyrir það þá er reglan sú núna að einungis sérfræð- ingar í húðsjúkdómum megi skrifa upp á notk- un þess. Hér vakna nokkrar spurningar. Ef það stendur beinlínis á umbúðunum að það eigi alls ekki að taka það inn, hvað fær fólk til að gera það? Varla eru læknar að skrifa upp á þetta og blikka svo leynilega þegar þeir segja að það eigi einungis að bera það á líkam- ann. Og svo hitt, sem mér finnst í raun merki- legri pæling: Er þetta rétta leiðin til að taka á svona vandamálum? Áður en lengra er haldið finnst mér rétt að taka fram að ég hef aldrei fengið kláðamaur og get ekki sagt að ég sé spenntur fyrir því. Mér dettur bara engin leið í hug til að fá eitthvað gott úr því að blanda saman þessum tveimur orðum. Kláða og maur. En ef ég fengi svona væri ég þá spenntur fyrir því að bíða í einhverjar vikur eftir því að fá tíma hjá heimilislækni til að geta svo beðið einhverja mánuði eftir að fá tíma hjá sérfræð- ingi í húðsjúkdómum? Held ekki. Ég hef á tilfinningunni að þetta snúist kannski bara um örfáa lækna sem hafa verið aðeins of duglegir á Youtube og eru sann- færðir um að þessi bóluefni séu hluti af risa- stóru samsæri. Væri þá ekki frekar ráð að bregðast við því en að banna öllum heim- ilislæknum að ávísa þessu lyfi? Það hljómar ekki vel ef heilbrigðisyfirvöld treysta ekki sín- um eigin læknum. Þetta er ekki eina reglan. Mörg lyf eru nú aðeins gefin í mánaðar- skömmtum. Sem þýðir að fólk þarf að gera sér ferð í apótekið í hverj- um mánuði til að sækja lyf sem það þó augljóslega þarf að nota allan ársins hring. Það getur líka verið flókið að sækja lyf fyrir maka, foreldra og stálpuð börn. Til þess þarf sérstakt umboð. Svo maður minnist ekki á allt vesenið fyrir fólk í samsettum fjölskyldum þar sem lögheimili passa ekki alltaf saman. Ég held nefnilega að þegar það þarf að bregðast við misnotkun sé mikið atriði að gera það á réttan hátt. Á þann hátt að við van- treystum ekki öllum og setjum alls kyns reglur sem bara flækja lífið hjá venjulegu, heiðarlegu fólki sem kann mögulega að lesa fylgiseðla með lyfjum og áttar sig á muninum á innvortis og útvortis. ’ Mér dettur bara engin leið í hug til að fá eitthvað gott úr því að blanda saman þessum tveimur orðum. Kláða og maur. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Innvortis og útvortis S tórlega efast ég um að nokkur maður beri þetta nafn í hin- um enskumælandi heimi. Sú var þó tíðin að maður nokkur á Eng- landi bar þetta nafn, herra Ýsa. Í huga Íslendinga sem komnir eru til ára sinna var þetta þó enginn ein- hver, heldur sjálfur Austin Mitchell þingmaður Verkamannaflokksins í Grimsby í áratugi og svo mikill Ís- landsvinur að ástæða þótti til að veita honum fálkaorðuna fyrir störf sín í þágu góðra samskipta Íslands og Bretlands. Það gerðist árið 2015. Fyrir þessari viðurkenningu var ríkuleg innistæða. Svo viðsjárverðir tímar voru oftar en einu sinni í sam- skiptum Breta og Íslendinga að klæði þurfti að bera á vopnin í nán- ast bókstaflegri merkingu. Þá var Austin Mitchell til að treysta á. Hann kom til Íslands sem fréttamaður í miðju þorska- stríði árið 1971 þegar byssur voru mundaðar, skorið á troll og rúður brotnar. Austin Mitchell var fréttamaður ITV og um skeið einnig BBC og síð- ar þingmaður fyrir Grimsby. Hon- um fremur en nokkrum öðrum er þakkað að löndunarbanni var aflétt árið 1977 og þegar Icesave-deilan skók samskipti ríkjanna fyrir einum áratug var það Austin Mitchell sem var í fararbroddi þingmanna í breska þinginu sem töluðu máli Ís- lands. Þá var hann formaður þeirrar nefndar þingsins sem hafði sam- skipti Bretlands og Íslands á sinni könnu. En aftur að ýsunni. Það var árið 2002 að nokkrir þingmenn úr sjáv- arbyggðum Bretlands tóku þátt í kynningarátaki fyrir breskan sjáv- arútveg og hugðust breyta nafni sínu og kenna sig við uppáhaldsfisk sinn eða þann fisk sem kjördæmi þeirra byggði afkomu sína helst á. Þegar til kastanna kom var það þó aðeins Austin Mitchell sem lét verða af því að breyta um nafn! Í skemmtilegu viðtali sem Stefán Gunnar Sveinsson blaðamaður átti við hann og birtist í Morgunblaðinu í október 2015 kom fram að fremur hefði hann kosið stórlúðuna að kenna sig við en einhverra hluta vegna hefði það ekki gengið að fá að heita Mr. Halibut. En að öllu gríni slepptu þá var það bláköld staðreynd að Austin Mitchell var raunverulegur málsvari ýsunnar, þorsksins og lúðunnar en jafnframt og sennilega fyrst og fremst sjómannanna í Grimsby. Þeir kusu Íslandsvininn Austin Mitchell aftur og aftur á þing sem talsmann sinn þar. Þeir vissu að vinsemd hans við Ísland byggðist á sameiginlegum hagsmunum og hugsjónum. Breskir sjómenn og íslenskir þyrftu hvorir á öðrum að halda sagði hann, og bæði ríkin, Bretland og Ísland, yrðu að skilja mikilvægi þess að fara vel með auðlindir sjávarins. Austin Mitchell varaði Íslendinga við inngöngu í Evrópusambandið. Taldi hann að hagur ýsunnar yrði ekki best tryggður innan vébanda þess. Þetta kenndi reynsla Breta sagði hann, bæði hvað varðar vernd fiskistofna og hag sjávarbyggðanna. En hann varaði líka við vaxandi auð- ræði í sjávar- útveginum og trúði þessi orð- uhafi Íslands mér fyrir því í spjalli okkar á milli – sem við áttum all- nokkrum sinn- um – að kvóti á hendi örfárra auð- manna, eins og þróunin væri nú á Íslandi, hefði aldrei verið í sínum huga þegar hann varði Ísland. Það gefur góða mynd af Austin Mitchell að eiga trúnað sjómanna í Grimsby þegar þeir sáu fram á tekjurýrnun og atvinnumissi í stríði við land sem þingmaður þeirra vildi hjálpa. Þeir vissu hins vegar að Mr. Haddock yrði alltaf þeirra maður. Jafnvel þótt hann skilaði ýsunafninu og héldi sig við að heita Austin Mitchell. Það gerði hann eftir að rit- arar bresku þingtíðindanna Hans- ard spurðu hann hvort þeir ættu framvegis að skrá hann þar sem Mr. Haddock. Nei, ætli þetta sé ekki orðið gott svaraði þá þingmaður sjó- manna í Grimsby. Þeir syrgja nú þennan gamla mál- svara sinn sem féll frá fyrir fáeinum dögum. Komið var að leiðarlokum hjá þessum 86 ára vini Íslands. Ég elska Ísland, sagði hann við blaða- mann. Það gerði hann svo sannar- lega. En framar öllu var hann trúr sjómanninum í Grimsby sem nú hef- ur misst sinn besta bandamann. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Mr. Haddock Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’ Þeir vissu hins vegar að Mr. Haddock yrði alltaf þeirra maður. Jafn- vel þótt hann skilaði ýsu- nafninu og héldi sig við að heita Austin Mitchell. Austin Mitchell ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.