Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Side 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Side 8
AFGANISTAN 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.8. 2021 Þ eir byrjuðu að birtast í apríl. Ný andlit í hverfinu. Sumir skeggjaðir, aðrir rakaðir, ýmist vel tilhafðir eða fátæklega búnir. Þegar þeir voru spurðir sögðust þeir komnir út af viðskiptum eða nýju starfi. „Þannig vöktu þeir enga athygli, en íbúarnir vissu allir: Þeir eru ekki héðan,“ sagði íbúi í vesturhluta Kabúl í samtali við blaðamann Der Spiegel. Svipaðar frásagnir mátti heyra frá íbúum í öðrum hlutum borgarinnar um aðkomumenn, sem birst hafa undanfarna vikur og mánuði. Að morgni sunnu- dagsins 15. ágúst „komu þeir út úr húsum sín- um með hvíta talíbanafána og margir vopnaðir byssu“, lýsti íbúi í austurhluta Kabúl. Höfðu hreiðrað um sig í Kabúl Í grein í Der Spiegel um fall Afganistans í hend- ur talíbönum er því lýst hvernig þeir voru búnir að hreiðra um í höfuðborginni sig áður en hún féll. Höfundur greinarinnar, Christopher Reu- ter, hefur um langt skeið skrifað frá Afganistan og þekkir vel til. Fyrri hlutann í júlí ræddi hann við einn af helstu foringjum talíbana í atlögunni að Kabúl. Foringinn tók á móti honum í lítt áberandi skrifstofuhúsnæði. Reuter spurði hversu langt talíbanar ættu eftir að Qargha- vatni, sem er í vesturjaðri Kabúl og borgarbúar sækja mikið til í tómstundum. „Alls ekki langt,“ svaraði hann og virtist sallarólegur. „Þeir eru nefnilega löngu komnir. Þeir eru í vörslu á veit- ingastöðum við vatnið, starfa við hringekjuna, vinna við ræstingar. Þegar þar að kemur verður allt fullt af talíbönum.“ Reuter segir síðan frá því að sex vikum eftir að þeir hittust, um miðjan ágúst, hafi foringinn ekið ásamt sínum yfirmanni, sem stjórnaði tök- unni á Kabúl, og tíu lífvörðum í átt að forseta- höllinni í höfuðborginni: „Hann laug ekki þegar hann fullyrti að menn sínir væru þegar meðal þeirra, sem voru að njóta lífsins við vatnið. Það sem hann sagði mér ekki var að þeir væru einn- ig komnir inn í miðja borgina.“ Talíbanar áttu líka furðu auðvelt með að leggja undir sig aðra hluta landsins, þótt þeir hefðu átt að eiga við ofurefli liðs að etja. Land- vinningar þeirra minntu um margt á atburða- rásina þegar Ríki íslams lagði undir sig stóra hluta Íraks 2014 og mótspyrnan virtist einfald- lega gufa upp. Í hverri borginni á eftir annarri gáfust hermenn upp eða yfirgáfu varðstöðvar sínar og talíbanar tóku vopn þeirra og farar- tæki, oftar en ekki bandarísk hergögn. Í þýska blaðinu Frankfurter allgemeine Zeit- ung birtist í vikunni upplýsandi viðtal við sveit- arforingja í afganska hernum. Hann stýrði sveit í suðurhluta Afganistans og lýsir því í viðtalinu hvernig hann upplifði hrun hersins. Segir hann að allt hafi verið eðlilegt þar til síðdegis laug- ardaginn 14. ágúst. Fram að því höfðu talíbanar í tvö ár árangurslaust reynt að leggja svæðið, sem hann hafði yfirráð yfir, undir sig. Þennan eftirmiðdag var honum tilkynnt að næsta hérað væri fallið í hendur talíbönum. Skipað að gefast upp „Ég hafði strax samband við forustu herdeild- arinnar til að fá tilmæli. Mér var fyrirskipað að berjast ekki, segja mönnum mínum að yfirgefa allar varðstöðvar og safna þeim saman í höfuð- stöðvum míns svæðis. Ég fullyrti að við værum tilbúnir til að berjast og værum færir um að hrinda talíbönum af höndum okkar. En mér var sagt að það væri ekki í samræmi við fyrir- mælin.“ Foringinn tók fram að í búðunum hefðu verið aðrar sveitir, þar á meðal sérsveit leyniþjónust- unnar, NDS, sem væri mjög vel búin og þraut- þjálfuð. Í kjölfarið fékk hann upphringingu frá konu sinni, sem hafði miklar áhyggjur af stöðunni. Hann varð að binda enda á símtalið vegna þess að honum var sagt að foringi úr röðum talíbana væri við hlið herbúðanna og vildi ræða við hann. „Hann sagði mér kurteislega að þeir hefðu náð höfuðborg héraðsins og við ættum að gefast upp.“ Foringinn bað um tíma til umþóttunar og hafði samband við sinn yfirmann. „Stjórn her- deildarinnar staðfesti að héraðsstjórinn hefði þegar látið skuggahéraðsstjóra talíbana hafa lyklana að skrifstofum sínum.“ Í kjölfarið yfir- gáfu hermennirnir bækistöðvarnar í her- jeppum. Talíbanarnir við virkishliðið hefðu ver- ið í augljósum minnihluta og leyft þeim að fara óáreittum. Síðar voru þeim boðnar átta þúsund krónur og undirritað og stimplað náðunarbréf frá ísl- amska emíratinu ef þeir sneru aftur í herbúðir sínar og afhentu talíbönum vopn sín. Afdrifaríkur orðrómur? Í greininni í Frankfurter allgemeine Zeitung segir að það hvað héraðsstjórinn var fljótur að gefast upp hafi gefið þrálátum orðrómi byr und- ir báða vængi. „Það er nauðsynlegt að vita að orðrómur getur haft gríðarleg áhrif í afgönsku samfélagi, jafnvel þótt utanaðkomandi geti virst hann fullkomlega ótrúverðugur. Þessi orðróm- ur snýst um svik og að skipta um bandamenn, nokkuð sem í stríðssögu undanfarinna áratuga í Afganistan hefur gerst hvað eftir annað,“ segir í blaðinu. Sveitarforinginn, sem skipað var að gefast upp, segist ekki viss um hvort hann eigi að trúa orðróminum, en er ekki í nokkrum vafa um áhrif hans: „Mikilvægasta ástæðan fyrir því að mótspyrnan koðnaði niður var orðrómurinn um að Bandaríkjamenn hefðu lofað talíbönum í febrúar 2020 í Doha að þeir kæmust til valda og stjórn Ghanis forseta yrði skipt út fyrir þá,“ sagði foringinn. Í þýska blaðinu segir að til þess að skilja hvers vegna orðrómurinn hafi verið tekinn svona alvarlega þurfi að átta sig á því að í Afg- anistan hafi sú fullvissa verið útbreidd, og það upp í efstu þrep valdastigans, að Bandaríkja- menn héldu bak við tjöldin utan um alla þræði í Afganistan og hver vending hefði fyrir fram verið þaulskipulögð. Talíbanar hefðu markvisst ýtt undir þennan orðróm mánuðum saman til þess að grafa und- an baráttuanda afganska hersins og örygg- issveita landsins. Í sumum héruðum hafi talíb- anar sent öldunga í hlutverki ættarhöfðingja til að segja hermönnunum að allt hefði verið ákveðið í Doha og heitið hverjum þeim pen- ingum, sem gengju úr hernum. Frá þessu var sagt í afgönskum fjölmiðlum og um leið að stjórnvöld hefðu hótað öldungunum þungum refsingum. Munu nokkrir hafa verið hand- teknir. Það þótti renna stoðum undir að hin meintu svik hefðu átt sér stað að hluti af samningnum, sem gerður var í viðræðum Bandaríkjamanna við talíbana í Doha án þátttöku afgönsku stjórn- arinnar, var að 5.000 liðsmenn talíbana skyldu látnir lausir úr afgönskum fangelsum 2020. Fallist var á þetta þrátt fyrir andstöðu afgönsku stjórnarinnar og varð það til þess að hún virtist veik fyrir og engin áhrif hafa á ganga mála. John Lee Anderson er annar blaðamaður, sem þekkir vel til mála Afganistans og fylgdist með þegar talíbanar misstu völdin í Afganistan á nokkrum vikum fyrir tæpum tuttugu árum Talíbanar aka um götur Kabúl í eftirlitsferð. Þeir mættu engri mótstöðu þegar þeir lögðu borgina undir sig. AFP Þeir eru nefnilega löngu komnir Talíbanar voru fljótir að leggja undir sig Afganistan. Stjórnarherinn virtist gufa upp þótt hann væri miklu fjöl- mennari og útsendarar talíbana virðast hafa verið búnir að koma sér fyrir í Kabúl löngu áður en höfuðborgin féll. Nú óttast menn að Afganistan verði gróðrarstía íslamskra öfgahreyfinga og sprengjutilræði Ríkis íslams á flug- vellinum í Kabúl á fimmtudag er uggvekjandi fyrirboði um það sem bíður stríðshrjáðs lands. Karl Blöndal kbl@mbl.is ’ Mér var fyrirskipað að berj- ast ekki, segja mönnum mín- um að yfirgefa allar varðstöðvar og safna þeim saman í höfuð- stöðvum míns svæðis. Ég fullyrti að við værum tilbúnir til að berj- ast og værum færir um að hrinda talíbönum af höndum okkar. En mér var sagt að það væri ekki í samræmi við fyrirmælin.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.