Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Page 10
AFGANISTAN
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.8. 2021
eftir árásir hryðjuverkamanna á Bandaríkin 11.
september 2001. Og nú eru þeir komnir aftur.
Anderson segir í grein á vefsíðu tímaritsins
New Yorker að leið talíbana til valda á ný sé
klassískt dæmi um skæruhernað, sem gengur
út á að þreyta andstæðinginn. Flestir þeirra,
sem hann hafi hitt fyrir tveimur áratugum og
börðust gegn talíbönum, séu nú látnir. Næstum
allir hafi verið drepnir, teknir af lífi. Að verki
voru talíbanar.
Þreytistríð þeirra hafi gengið út á að gera
árásir og láta sig hverfa, taka útvalin fórnar-
lömb af lífi, yfirleitt embættismenn og áberandi
konur, til þess að draga úr baráttuþreki and-
stæðinga sinna og fremja hryðjuverk, sem bæði
veiktu stjórn landsins og bjuggu til andrúmsloft
ógnar til að ýta undir auðsveipni fólks þar sem
þeir voru að ryðja sér til rúms.
Um leið hafi talíbanarnir reynt að vinna hugi
og hjörtu fólks. Þeir hafi farið í viðræður við
stjórnvöld og bandamenn þeirra án þess að hug-
ur fylgdi máli til að telja andstæðingum sínum
trú um að talíbanar væru í raun ekki öfgafullir
og væru tilbúnir að ræða málin. Í eðli sínu væru
þeir hins vegar bókstafstrúarmenn og tryðu á
ósveigjanlega útleggingu á Kóraninum.
Illvígari en fyrir 20 árum
Pakistanski blaðamaðurinn Ahmed Rashid er
kunnugri innviðum talíbana en margur annar
og bók hans „Talíban“ frá því um aldamótin var
mikið lesin á sínum tíma. Rashid segir í grein í
tímaritinu The Spectator að talíbanar séu nú
mun herskárri og róttækari en fyrir 20 árum.
Þar spyr hann hvort komið sé fram nýtt af-
brigði af talíbönum. Mennirnir, sem lögðu undir
sig Kabúl, geri sitt besta til að virðast hófsamir.
Þeir segi að konur muni fá að vinna og ganga
menntaveginn. Þeir hafi heitið embættis-
mönnum hinnar föllnu stjórnar sakaruppgjöf,
sem gömlu talíbanarnir hefðu aldrei látið sér
detta í hug. Of snemmt sé að segja til um hvort
við þetta verði staðið. Stóra spurningin snúist
hins vegar ekki um eldri leiðtoga talíbana held-
ur hina ungu foringja, sem í raun lögðu Kabúl
undir sig.
Rashid segir að talíbanar hafi aldrei sýnt
áhuga á að flytja sína útgáfu af íslömsku bylt-
ingunni út í heim. Þeir hafi aðeins verið með
Afganistan í huga. „En nýju ungu liðsmennirnir
eru mun herskárri og róttækari,“ skrifar hann.
„Margir hafa setið í fangelsi fyrir öfgahyggju.
Þó nokkrir hafa setið í Guantanamo þar sem
þeir urðu fyrir miklum áhrifum af al-Qaeda og
þeirra gerð af alþjóðlegu dsjíhadi (heilögu
stríði).“
Hann rekur að um tugur harðlínuhópa frá
Pakistan, Mið-Asíu, Rússlandi og jafnvel Kína
hafi barist við hlið talíbana árum saman. Þeir
séu farnir að hafa gríðarleg áhrif meðal
óbreyttra liðsmanna. „Nú munu þessir ungu
gikkir segja: „Hvers vegna að nema staðar í
Kabúl? Við vorum að sigrast á mesta herveldi
heims! Við ættum að fara með okkar dsjíhad til
múslímskra granna okkar og fá þá til liðs við
okkar málstað,““ skrifar Rashid og bætir við að
hinir eldri talíbanar hafi minni áhuga á að fara
þessa leið, en óljóst sé hver völd þeirra séu.
Í bandalagi við al-Qaeda
Innrásin í Afganistan í lok árs 2001 var gerð til
þess að kæfa ógnina af hryðjuverkum eftir árás
al-Qaeda undir forustu Osama bin Ladens á
Bandaríkin 11. september það ár. Atburðir síð-
ustu daga í Afganistan hafa orðið til þess að
áhyggjur, sem undanfarið hafa farið vaxandi um
að hryðjuverkahópum sé nú að vaxa ásmegin,
hafa orðið háværar.
Í grein í New Yorker kom fram að áður en ta-
líbanar tóku völd hafi liðsmenn al-Qaeda í Afg-
anistan verið orðnir sex hundruð, samkvæmt
sérfræðingum. Ekki hafi farið mikið fyrir þeim,
en þeir hafi leikið lykilhlutverk þegar talíbanar
lögðu landið undir sig. Bruce Hoffman, sérfræð-
ingur um hryðjuverkasamtök og öryggismál hjá
Council of Foreign Relations, bandarískri hug-
veitu um utanríkismál, og höfundur bókarinnar
„Inside Terrorism“, sagði við blaðið að þeir
hefðu verið hryggjarstykkið í sókn talíbana.
Kunnátta þeirra í upplýsingaöflun og sam-
skiptum auk bardagahæfni hafi gefið talíbönum
aukinn sóknarþunga. Vígamenn al-Qaeda væru
„betur menntaðir og veraldarvanari en talíb-
anarnir, sem eru nýkomnir niður úr fjöllunum.
Þeir bæta miklu við her sveitastráka. Þeir voru
ekki margir, en skiptu þeim mun meira máli“.
Hoffman er þeirrar hyggju að staðan sé válegri
nú en hún var 1999 og 2000.
Það hefur ekki farið leynt að liðsmenn al-
Qaeda hafi barist við hlið talíbana. Í desember
greindi afganska varnarmálaráðuneytið til
dæmis frá því að 15 vígamenn al-Qaeda hefðu
verið felldir í átökum við talíbana í héraðinu
Helmand.
Átök talíbana við Ríki íslams
Þegar Bagram-flugvöllur féll í hendur talíbön-
um eftir að Bandaríkjamenn fóru þaðan í
skyndingu opnuðu þeir dyr Pul-i-Charkhi-
fangelsisins þar skammt frá og hleyptu út fimm
þúsund föngum. Meðal þeirra voru bæði liðs-
menn al-Qaeda og hryðjuverkasamtaka, sem
nefnast Ríki íslams-Khorasan (ISIS-K) og eru
grein af Ríki íslams, sem fyrir sjö árum lagði
undir sig stóra hluta Íraks og Sýrlands og stofn-
aði svonefnt kalífat. Þar sáu margar öfgahreyf-
ingar griðastað og auðveldir sigrar Ríkis íslams
fylltu öfga- og harðlínumenn eldmóði. Þar á
meðal voru vígamenn úr röðum talíbana í Pak-
istan, sem nokkrum mánuðum eftir að lýst var
yfir stofnun kalífatsins í Írak og Sýrlandi 2014
klufu sig frá talíbönum og lýstu yfir tryggð við
Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtoga Ríkis íslams. Í
frétt AFP segir að þau tengsl hafi orðið formleg
árið eftir og undirsamtökin fengu nafnið Ríki
íslams-Khorasan. Khorasan er gamalt heiti á
landsvæðinu þar sem hreyfingin hefur náð
mestri fótfestu í Afganistan, en nær einnig inn í
Pakistan og Íran. Samkvæmt Sameinuðu þjóð-
unum eru á þeirra vegum útsendarar og hópar
víða í Pakistan og Afganistan, svefnsellur, sem
láta lítið á sér bera, en eru tilbúnir að láta til
skarar skríða þegar kallið kemur. Í skýrslu,
sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna birti í júlí,
er talið að virkir vígamenn á vegum samtak-
anna geti verið allt frá 500 til nokkur þúsund. Í
frétt AFP kemur fram að Ríki íslams-Khorasan
hafi myrt almenna borgara bæði í Afganistan og
Pakistan í moskum og á almannafæri. Liðs-
menn þess hafa sérstaklega beint aðgerðum
sínum gegn múslimum, sem tilheyra greinum
íslams, sem þeir telja villutrú, þar á meðal sjít-
um. Í fyrra voru samtökin sökuð um villimann-
lega árás á fæðingardeild í hverfi í Kabúl þar
sem búa margir sjítar. Myrtu þeir sextán konur,
sem voru nýbúnar að eignast börn eða voru
barnshafandi.
Samtökin hafa hins vegar ekki náð að leggja
neitt landsvæði undir sig. Ástæðan fyrir því er
ekki aðeins sú að Bandaríkjamönnum hafi tek-
ist að halda þeim í skefjum, heldur er grunnt á
þvi góða milli þeirra og talíbana. Talíbanar og
Ríki íslams-K deila um trúaratriði og hvorir séu
með réttu hinir einu og sönnu fánaberar hins
heilaga stríðs, dsjíhad.
Komið hefur til blóðugra átaka milli hreyfing-
anna og höfðu talíbanar betur fyrir tveimur ár-
um þegar Ríki íslams mistókst að leggja undir
sig landsvæði líkt og í Írak og Sýrlandi.
Í yfirlýsingum Ríkis íslams eru talíbanar kall-
aðir trúníðingar. Þegar aðrar íslamskar öfga-
hreyfingar fögnuðu sigrum talíbana í Afganist-
an sakaði Ríki íslams þá um svik með því að
ganga til samninga við Bandaríkjamenn og hétu
því að halda baráttunni áfram.
Grunur hafði leikið á um að liðsmenn Ríkis
íslams-K myndu láta til skarar skríða með ein-
hverjum hætti til að egna saman talíbönum og
Bandaríkjamönnum. Höfðu viðvaranir komið úr
ýmsum áttum, meðal annars frá bandarískum
embættismönnum, um að vígamenn tengdir
Ríki íslams-K hygðust gera sjálfsmorðs-
sprengjuárás á flugvellinum í Kabúl til að skapa
glundroða áður en brottflutningi þaðan lyki um
mánaðamótin. Á fimmtudag sprungu tvær
sprengjur við flugvöllinn og lýsti Ríki íslams
ábyrgðinni á sjálfsmorðssprengjuárásinni á
hendur sér. Yfir 85 manns féllu í valinn, þar af
12 bandarískir hermenn. Er það mesta mann-
fall í röðum Bandaríkjamanna í Afganistan á
einum degi í tíu ár.
Hin illræmda Haqqani-hreyfing
Önnur hreyfing hefur einnig rutt sér til rúms í
landinu og er öllu nánari talíbönum. Hún er
kennd við Jalaluddin Haqqani, sem á níunda
áratug 20. aldarinnar var einn af forkólfum and-
spyrnunnar við Sovétmenn. Hann var þá mikil-
vægur tengiliður bandarísku leyniþjónust-
unnar, CIA, þegar Bandaríkjamenn,
Pakistanar og fleiri sendu peninga og vopn til
þeirra, sem börðust gegn Sovétmönnum í Afg-
anistan. Meðan á þeim átökum stóð var Haqq-
ani í tengslum við íslamska hryðjuverkamenn,
þar á meðal Osama bin Laden. Þegar talíbanar
tóku völdin í Afganistan 1996 gekk hann til liðs
við þá og var ráðherra í stjórn þeirra þar til hún
féll eftir innrásina í Afganistan 2001 undir for-
ustu Bandaríkjamanna.
Jalaluddin Haqqani lést 2018 og tók þá sonur
hans, Sirajuddin, við forustu Haqqani-hreyfing-
arinnar. Hreyfingin nýtur nokkurs sjálfdæmis,
en er þó hluti af talíbönum, og er alræmd fyrir
grimmd og miskunnarleysi. Haqqani-hreyfing-
in hefur framið mörg blóðug hryðjuverk í Afg-
anistan á undanförnum tveimur áratugum og
gerir iðulega sjálfsmorðssprengjuárásir og hik-
ar ekki við að ráðast á hernaðarmannvirki og
sendiráð. Því hefur einnig verið haldið fram að
hún hafi náin tengsl við pakistönsku leyniþjón-
ustuna, en Pakistanar neita því. Hún er einnig
nátengd al-Qaeda. Bandaríkjamenn hafa lagt
háar fjárhæðir Sirajuddin og Anasi bróður hans
til höfuðs. Nú er hreyfingin þátttakandi í stjórn-
armyndun í Afganistan og Sirajuddin næst-
æðstur í valdapíramída talíbana.
Ekki er nokkur leið að sjá fyrir hvernig mál
munu þróast í Afganistan eftir að skelfingar-
ástandinu í kringum brottflutninginn þaðan lýk-
ur. Verður landið gróðrarstía öfga og ofbeldis
og stökkpallur fyrir hryðjuverkamenn til að
fremja ódæðisverk um allan heim? Talíbanar
láta sem þeir séu hófsamari en fyrir 20 árum
þegar þeir stjórnuðu af mikilli grimmd, beittu
konur kúgun og aftökur og limlestingar fóru
fram á almannafæri. Enda vilja þeir koma í veg
fyrir að landið eingangrist . Nú hafi konur og
embættismenn hinnar föllnu stjórnar ekkert að
óttast, en hins vegar hafa þeir lýst yfir að tekið
verði upp íslamskt réttarkerfi, sjaría, sem þeir
framfylgdu af einstrengingslegri hörku á sínum
tíma. Þar til annað kemur í ljós má búast við
hinu versta.
Særður maður fluttur á
sjúkrahús eftir sjálfsmorðs-
sprengjuárásina á flugvöllinn
í Kabúl. Talið er að 85 manns
að minnsta kosti hafi dáið.
AFP
Talíbani gengur með alvæpni fram hjá snyrtistofu í Kabúl þremur dögum eftir fall borgarinnar.
Myndir af konum utan á stofunni hafa verið afskræmdar með málningu úr úðabrúsum.
AFP
’
En nýju ungu liðsmennirnir
eru mun herskárri og róttæk-
ari. Margir hafa setið í fangelsi
fyrir öfgahyggju. Þó nokkrir hafa
setið í Guantanamo þar sem þeir
urðu fyrir miklum áhrifum af al
Qaeda og þeirra gerð af al-
þjóðlegu heilögu stríði.