Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.8. 2021
B
andarískir fjölmiðlar hafa ekki verið
samstíga síðustu misseri og ár, svo
lágstemmd einkunnagjöf sé notuð.
Og þótt enn örli svo sannarlega á
sundurlyndi og þorri gleraugna sé
sárgrætilega vanstilltur og þau
jafnmörg eða fleiri og fréttamennirnir sem setja
þau á nef sér þar vestra, áður en þeir tilkynna
helstu 0fréttir, þá varð pínulítil breyting sl. fimmtu-
dag sem ekki verður auðveldlega tekin aftur.
Sumt verður ekki tekið aftur
Bandaríska þjóðin skynjaði að eitthvað hefði gerst
og ekkert yrði sennilega samt, þótt reynt yrði af
öllu afli. Of stór hluti þjóðarinnar nam eða fékk á
tilfinninguna að fréttaheimurinn væri loks farinn að
horfa á sömu myndir og hún sjálf og að þær mynd-
ir væru að fá fókus og hann yrði ekki heldur aftur
tekinn.
Í einni setningu má segja að niðurstaða dagsins,
með fáeinum undantekningum, hafi verið sú, að
fimmtudagurinn sá hefði verið versti dagur Joe Bi-
dens síðan hann tók við embætti.
Ekki aðeins vegna þess sem gerðist. Heldur
fremur vegna hins að fjölmiðlakórinn treysti sér
ekki lengur til að halda lagi og lúta sprotastjórn,
eins og hingað til, upp í opið geðið á þjóðinni, sem
er farið að gruna að Mr. (Joe) Bean hafi verið
smyglað inn í Hvíta húsið. Reyndar var þessi vondi
dagur Bidens og Bean ekki einn á ferð. Þeir fóru
fleiri saman og dagarnir sem á undan fóru voru
býsna daprir líka.
Hrakför með heiminn á
áhorfendabekk
En munurinn var sá, að þennan dag varð mesta
mannfall hjá Bandaríkjaher sem orðið hafði síðan
2011! Þrettán hermenn féllu úr þeirra liði og
Bandaríkin horfðu varnarlaus á. Og fjöldi annarra
týndi lífi og aðrir særðust.
Joe Biden hafði, eins og fleiri á undan honum,
margendurtekið, að hann vildi binda endi á stöð-
ugan straum af líkkistum frá Afganistan og heim til
Bandaríkjanna. Og hann vitnaði gjarnan til Víet-
nam. Það var ekkert skrítið þótt almenningur fengi
á tilfinninguna að þarna væri um að ræða stöðugt
og óþolandi mannfall úr röðum ungra Bandaríkja-
manna. En þetta var mjög villandi mynd. Þess
vegna kom það á óvart, svo ekki sé meira sagt, að
dauði hinna ungu hermanna, eftir heimabrúks-
klúður Joe Bidens forseta, væri mesta mannfall úr
röðum Bandaríkjahers frá árinu 2011! Og ekki nóg
með það. Það féll enginn bandarískur hermaður í
Afganistan síðasta árið sem Donald Trump var þar
forseti! Ekki einn!
Enginn hermaður hafði fallið þar í eitt og hálft
ár!
Biden og veruleikinn
fara oftast á mis
Talið í Joe Biden virtist svo sannarlega draga upp
allt annað ástand en það sem átti stoð í veru-
leikanum. Veruleikinn og Joe Biden hafa sjaldan
átt skap saman og verður að segja það eins og það
er, að þar á Joe mun meiri sök en veruleikinn, sem
gerir sitt besta.
Eftir að hafa verið margleiðréttur heldur Joe
áfram, þegar vel liggur á honum, að segja frá því
þegar hann bjargaði Nelson Mandela, forseta Suð-
ur-Afríku, úr fangelsinu á Robben-eyju. Það hefur
hann gert löngu áður en lífsmyndin varð mun
þokukenndari en áður.
Bréfritari hefur komið þangað og farið í klefa
þjóðhetjunnar og í saltnámurnar. Allt var það eftir-
minnilegt, en óhjákvæmilegt er að viðurkenna að
bréfritari bjargaði Mandela ekki þaðan. Megin-
ástæðan var sennilega sú, að Mandela var löngu
farinn, þegar þarna kom sögu. Er ekki hugsanlegt
að Joe Biden hafi lent í þessu sama?
Ég elti þá uppi!!!
Biden las af spjöldunum, með leikrænum tilþrifum,
en dálítið hallærislegum, að hann hefði ekki gleymt
voðaverkinu og myndi aldrei gleyma því og hann
myndi láta elta þá þrjóta uppi og refsa þeim. Þetta
var næstum því brjóstumkennanlegt. Joe Biden var
sá eini í Obama-stjórninni sem ekki vildi fara í
Osama bin Laden!
Bandaríkjaher er umkringdur og er á förum, ef
hann getur, og mun þurfa að svíkja fjölda manna,
einnig sína menn, ef fer sem horfir. Seinustu
fréttamyndir sýna að Biden ratar ekki hjálparlaust
inn í Oval office!
Biden mun engin tök hafa á því að elta uppi einn
né neinn í Afganistan! Eina sem hann getur er að
segja í tíma og ótíma að klúðrið hafi verið Trump
að kenna!
Tony Blair er sennilega nærri því að vera póli-
tískur bróðir Bidens en margur annar. En hann
sagði ákvörðun Bidens vera „imbecile“ framkvæmd.
Loka eina brúklega flugvellinum, fara burt með lið-
ið og þykjast svo ætla að bjarga öllum þeim sem
vilja fara. Láta svo talíbana fá nöfn og heimilisföng
Bandaríkjamanna og þeirra sem hjálpuðu þeim.
Nöfn manna sem talíbanar hafa leitað nótt sem
nýtan dag til að pína þá og drepa!
Það er rétt hjá Blair, að þetta gera bara imbecil-
ar. Hefði venjulegur Bandaríkjamaður gert annað
eins og þetta, þá hefði hann með réttu verið sak-
aður um landráð.
Nær og fjær er myndin særandi
Auðvitað er sjálfsagt og þess rækilega gætt, að
benda á (og einnig svo ómerkingar snúi ekki út úr),
að hvert eitt mannfall er einu of mikið.
En myndirnar og fréttirnar sem dregnar eru upp
eru þó stundum æði sérkennilegar. Síkakó er fræg
borg af ýmsum ástæðum. En hún sker sig þó ekki
algjörlega úr. Það er ekki einungis vegna „kappa“ á
borð við Al Capone. Borgin var einnig frægur vett-
vangur kosningasvindls, sem dugði til að mati
margra, þótt það hafi ekki verið neitt svipað að um-
fangi og haldið hefur verið fram að hafi viðgengist í
kosningunum 2020.
Margar kvikmyndir og sjónvarpsseríur hafa verið
gerðar um tilþrif slíkra hér á árum áður.
Andstaðan við Al Capone var Elliot Ness, foringi
hinna „ósnertanlegu“ en þótt nafn hans sé frægt þá
entist hann ekki vel og féll frá 54 ára gamall, illa
haldinn, fátækur óreglumaður. Al Capone varð ekki
gamall heldur og sat ekki af sér fullan dóm fyrir
„skattsvik“ eins og lögin létu það heita þá.
Og hvernig skyldi ástandið vera í Síkakó einum
sjötíu árum síðar? Um síðustu helgi, sem var sem
Handritið er til, próförk
hefur verið lesin, en
gengur dæmið upp?
’
Biden er næstur á undan Cuomo í staf-
rófinu. Nú er komið að honum. Upphaf
söguþráðar mun auðvitað ganga út á þetta
venjulega, að það sé samsærisrugl að eitthvað
hafi verið að hjá Biden þar til nú á haust-
mánuðum.
Reykjavíkurbréf27.08.21