Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.8. 2021
MINNING
Það geta allir fundið eitthvað
girnilegt við sitt hæfi
Freistaðu
bragðlaukanna
... stærsti uppskriftarvefur landsins!
Charlie Watts, Mick Jagger, Keith Richards og Ron Wood léttir í bragði fyrir
framan dómkirkjuna á Rauða torginu í Moskvu fyrir fyrstu tónleika The Rolling
Stones í borginni sumarið 1998. Sprellstuðullinn lágur hjá Watts að vanda.
AFP
AFP
Mick Jagger, Charlie Watts, Keith Richards og Ron Wood á tónleikaferð í
Montevideo snemma árs 2016. Watts sem fyrr minna úfinn en félagar hans.
AFP
The Rolling Stones í Lundúnum á sokkabandsárum bandsins 22. júlí 1965.
Trymbillinn Charlie Watts, gítaristinn Brian Jones, gítaristinn Keith Richards,
söngvarinn Mick Jagger og Bill Wyman bassaleikari. Löng vegferð fram undan.
AFP
Charlie Watts þar sem hann kunni best við
sig, bak við trommusettið. Hér er hann í
hljóðprufu með hliðarverkefni sínu, djass-
bandinu The A, B, C, & D of Boogie Woog-
ie, í djassklúbbnum Le duc des Lombards í
París 2010.
Charlie kom með
rólið í rokkið
Einn ástsælasti trommari sögunnar, Charlie Watts í Rolling Stones, lést í vik-
unni, áttræður að aldri. Fjölmargir, leikir sem lærðir, hafa minnst hans af
mikilli hlýju enda ber flestum saman um að prúðari pilt sé varla hægt að
finna í rokkheimum. „Charlie kom með rólið í rokkið,“ orðaði kollegi hans,
Ben Thatcher úr rokkdúettnum Royal Blood, það svo skemmtilega.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is